Tíminn Sunnudagsblað

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Saqqummersitaq pingaarneq:

Tíminn Sunnudagsblað - 23.02.1969, Qupperneq 16

Tíminn Sunnudagsblað - 23.02.1969, Qupperneq 16
ið lík þar á fjöru. Líkið var með prjónað kviðband, og þekktist á því að þetta voru jarðneskar leif- ar Bjarna Gíslasonar. Séra Brand- ur var þá kominn að Ásum og jarðsöng lík þetta- Séra Brandur talaði af sinni alkunnu mælsku yf- ir moldum Bjarna á UppsöTum. Eitt af síðustu fermingarbörn- um séra Brands hér var Sigríður, móðir mín. Bróðir hennar, Bene- dikt, var fylgdarmaður séra Brands, þegar hann fluttist frá Einholti að Prestsbakka í Hrúta- firði og reiddi þá Hallfríði Brands- dóttur, tveggja ára. Gamli Steinn. Kálfafellsstaðarkirkja fauk af grunni í fellibylnum (Knútsbyl') 8. janúar 1886. Vegna þess að engin kirkja var á Kálfafellsstað á næsta vori, fermdi sóknarpresturinn, séra Jóhann Benediktsson, börnin úr Suðursveit í Einholtskirkju. Fermingarbörnin voru sex að tölu og voru þessi: Björn Steinsson á Breiðabóls- stað, Valgerður Sigurðardóttir á Kálfafelli, Sveinbjörg Pétursdótt- ir, fósturdóttir prestsins, Gísli Bjarnason á Uppsölum, Brynjólf- ur Eiríksson, bróðir Jóns í Vola- seli, og Þorsteinn Guðmundsson í Borgarhöfn (ísdal). Þetta voru allt börn betri bænda í Suðursveit. Áður en messa skyldi hefjast, kemur séra Jóhann að máTi við Uppsalahjón, Bjarna og Þóru, og segir þeim, að Steinn á Breiðabóls- stað sé að biðja sig að Táta Björn son sinn standa fremstan. Það var guð vel komið frá þeirra hendi. Bftir messu víkur Steinn á Breiða- bólsstað sér að systursyni sínun\ SigurÓj á KálfafeTTi, og biður hann að láta allt, sem börnin eigi, koma að Hólmi. Þar eigi hann geymdan hjá Jóni bónda fjögurra potta brenriívínskút. Þarna var vist fast drukkið. Kona, sem þar var, sagði svo frá, að þetta hefði verið ein skemmtilegasta stund ævi sinnar. Eirihvern hvitasunnudag var hér margt fóik við kirkju, þar á meðai Ólafur Eínarsson frá Siýjum í Meðallandi, þá vinnumaður á Upp- söium. Fyrir messuna víkur Steinn sér að Ólafi og segir um Teið og hann tekur alTfast í trefiT hans: „Stattu þig nú vel hjá ekkjunni, karl minn.“ ÓTafur þótti nokkuð bráður og ruku þeir saman, en leikurinn end- aði með því, að fallegi flostrefill- inn fór i taetlur. Að því búnu fóru allir í kirkju, og söng Steinn stand andi, hiátt upp yfir alla aðra. Hann hafði sterka rödd, en óvíst er, að alltaf hafi verið sungið eftir nót- um. Steinn var tvíkvæntur. Þegar hann kvæntist síðari konu sinni, Þórunni Þorláksdóttur frá Hauka- felli, efndi hann til íburðarmikill- ar veizlu og fékk valið lið til að annast frammistöðu. Meðal frammi stöðumanna var Sæbjörn EgiTsson, sem eitthvað var forframaður, og Þóra, dóttir óðalsbóndans í Hólmi. Hún átti tvær harmónikur. Þarna var fram borið í trogum hangi- kjöt, bringukolTar, pottbrauð og smjör og rófusósa, og rúsínuvell- ingur með kanel í eftirmat. Einn- ig voru nóg vínföng. Frammistöðumaðurinn, Sæ- björn Egilsson, bar fram lausa diska og hnífapör. Þeim ýtti Steinn frá sér og taldi sér óvirðingu gerða með tómum diskum, jafnmikinn veizlukost og hann væri búinn að draga saman. Krafðist hann þess, að mega nota sinn hornspón og vasahnif. Þegar að eftirmatnum kom, færði Sæbjörn Egilsson brúð gumanum skál með vellingi, og áttu brúðhjónin bæði að borða úr söniu skálinni. Steinn tók þá skál- ina til sín og sagði við brúðina: „Færð þú ekki aðra skál, gæzka. Sá býr bezt að sínu, sem búið get- ur.“ Hún svaraði: „Nei, nei, Steinn minn, þetta er móðins.“ Þá svarar Steinn: „Ha, hg, stopp, kall minn, skítt með allan móð.“ Að loknum veitingum stóð Steinn upp og Týsti því yfir í heyr- anda hljóði, að hann kynni betur við, að sér væri þakkað fyrir veit- ingarnar; Einn óþokki hefði farið án þess að þakka fyrir sig. Steinn á Breiðabólsstað var hár maður og giTdvaxinn, gestrisinn og góður heim að sækja, tryggur og vinfastur, en nokkuð ráðríkur og metorðagjarn. Þórbergur Þórð- arson segir um Stein, afa sinn, að hann hafi ef til vill ekki verið heimskur, en illa uppiýstur! Þóra, tengdamóðir min, minnt- ist oft með gTeði brúðkaups þeirra Steins og Þórunnar. Oddný á Gerði. Haustið 1884 giftust Vilborg, móðursystir mín, og maður henn- ar, Páll Bjarnason. Meðal veizlu- gesta var Oddný Sveinsdóttir á Gerði. Þá var farið yfir Hestgerð- iskamb á tæpri götu. Svell var í götunni, svo að allir fóru af baki. Oddný steig tæpt í götuna, rann tl í spori og hrapaði niður fyrir, Hún missti meðvitund, en kom fljótt til' sjálfrar sín aftur og fór þá að þreifa eftir vasapela, sem hún hafði borið á sér. Hún fékk skurð á höfuðið, og var brugðið við að sækja manninn með lækn- ishendurnar, Bjarna Gislason á Uppsölum. Hann gerði að sárum hennar og hirti um þau, þar tii hún var gróin og fylgdi 'henni síð- an heim. Oddný Sveinsdóttir var skáld. mælt vel, greind og minnug. Heyrt hef ég eftir henni, að hún hafl höfuðkúpubrotnað, en vinur henn- ar, Bjarni á Uppsölum, hafi grætt sig. Ekki veit ég sönnur á þvf. En eitt er víst, að ekki hefur heli Oddnýjar skaddazt, því að minni hélt hún til dauðadags. Daði í Hellum. Lengi þótti mér mannsnafnið Daði fremur Teiðinlegt. Mun sú til- finning hafa mótazt af því, að mér þóttu Daði í Snóksdal og Daði Hall dórsson ekki góðir menn. Sárt þótti mér, hvað Ragnheiður bisk- upsdóttir varð að líða fyrir Daða Halldórsson og þó enn meira fyr- ir strangleika föður síns, Brynj- ólf'S biskups. Ekki jók það virðingu á nafn- inu, að hér í sveit var maður með þessu nafni, en það var Daði Guð- mundsson í Hellum. Um Daða í Hellum voru til ýmsar gamansög- ur, og þótti mér þwí vafasamur vegsauki að eiga hann í ætt minni. Þegar Ingibjörg, kona Daða, ól þeirra fyrsta barn, átU hann að segja: „Fannstu ekki ósköp til, Ingi- björg?“ Hún svaraði: „O-jú, jú.“ Þá segir Daði: „Mörg konan hefur nú átt barn og ekki ærzt og sprungið.11 Líka átti Staðar-Móri eitt sinn að éta allan jólamatinn af diskun- um þeirra. En seinna heyrði ég aðra sögu um Daða, og þá fór mér að þykja virðing í að eiga hann að ættingja. Saga sú er frá sjóslys- inu mikla frá Skinneyjarhöfða ár- ið 1843. Jón bóndi í Sfcálafellsseli var 160 T í MI N N — SUNNUDAGSBLAÐ

x

Tíminn Sunnudagsblað

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn Sunnudagsblað
https://timarit.is/publication/301

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.