Tíminn Sunnudagsblað - 01.03.1970, Qupperneq 4
Maðurinn hefur að mestu leyti útrýmt rándýrunum — þau verða fáum
að aldurtila. En sjálfur hefur hann magnað á sig skaðvalda, sem leggja í
rústir lif og hamingju milljóna. Einhver ægilegasti bölvaldurinn er eitur-
lyfin — hin svonefndu fiknilyf. Þetta böl hefur verið að grafa um sig hér-
lendís síðustu ár — og nú loks erum við að vakna við vondan draum.
Fórnarlömbin unglingar-
gróðinn glæpahringanna
mmmwmmmmammmmmmmm
wsmmmmmmmmm
Því verður ekki neitað, að
toeyzla cannabis, aðallega hass,
hefur vaxið ört síðast liðið ár.
Þeir, sem þessa neyta, eru aðal-
lega unglingar, sem sumir hverjir
hafa dvalizt erlendis — í Dan-
mörku og víðar — og hafa marg-
ir verið Iátnir fara kornungir og
einir síns liðs úr landi til dvalar
ytra. Þeir komast í kynni við hass
neytendur, og hasssölumenn, taka
þátt í hassreykingum og koma
heim með hass, sem þeir gefa eða
6elja kunningjum sínum. Þegar
það er þrotið, er þeir komu með,
fá þeir nýjar sendingar frá út-
veganamönnum utan lands.
Eftir fleiri leiðum herst hin.g-
að hass, vafalaust bæöi atf Kefla-
víkurflugvelii og með fólki, sem
er í förum miilli landia.
Hassið reyfeja oft dá'lMir hóp-
ar í sameiningu í herbergjum ein-
hverjum eða jafnvel íbúðum, sem
fengnar eru að láni 1 þessu skyni.
Þar að auki er farið að bera tals-
vert á hassneyzlu í vínveitinga-
húsum 1 Reykjavík.
Yfirvöld landsins hafa verið
tómlát um þetta til skamms tíma,
löggjöf engin til, er styðjast mætti
við í baráttu gegn þessum ófögn-
uði fyrr en hún var sett í v«.tur,
og svo að heyra, að lögreglan hafi
tæpast gert sér grein fyrir því,
hvert stefndi.
Fjöldi manma reykir hass í fyrsta
sfldpti af einskærri forvitni, og
margk halda þvi áfram í þeirri
trú, að það sé ekkf sérlega háska-
legt. En það eru glæpahringir,
sem hafa með höndum dreifingu
og sölu á hassi. Þó að hreint hass
sé fáanlegt, er hitt tíðast, að ópí-
um sé blandað í það allt að helm-
ingi, en ópíum er hættulegt, vana
bindandi nautnalyf. Þetta er bein
línis gert í því skyni að ánetja
fólk, leiða það lengra og lengra
út á háskalega braut og gera það
háð nautnalytfjunum.
Swmir halda því fram, að hass
reykimgar séu ekki viðsjárverðari
en áfengisneyzla og dæmið iðulega
sett upp eins oig milli hass og
bennnivíns sé að velja. Þetta er
blekking. Engar líkur eru til, að
annað yrði valið í reynd, en hinu
hafnað. Hassið yrði viðbót, nýtt
vandamál ofarn á áfengisvandamál-
ið, og leiddi fyrirsjáanlega til eit-
urlyfjaneyzlu. Rannsóknir sýna, að
Valdís Oskarsdóttir tók saman
144
T í M I N N — SUNNUDAGSBI.AÐ