Tíminn Sunnudagsblað - 01.03.1970, Blaðsíða 16

Tíminn Sunnudagsblað - 01.03.1970, Blaðsíða 16
fremur kaupandi en seljandi slíkra gersema“. En hvort sem þeir nú ræddu þetta Iengur eSa skemur, þá fór þó svo, að karl keypti nokkra steina fyrir hátt verð, sem hann greiddi út í hönd, og var hann þó fastur á fé sitt. Auðvitað fékk hann steina af báðum kynjum, á- samt nákvæmum lýsingum á því, hversu með skyldi fara. Nú er það nokkuð löngu eftir þetta, að karl kemur, heldur úf- inn í skapi til þess.e r selt hafði, honum steinana og segir: „Þetta passar ekki, sem við vor- um að kaupslaga um í sumar“. „Nú?“_ „Nei. Ég hef ekki auðgazt síðan ég fékk steinana, og yfirleitt ekki gengið að neinu leyti betur fyrir mér“. „Hvernig fórstu að?“ Því miður man ég nú ekki sam- talið orðrétt, en svo rnikið er víst, að nú kom löng lærdómsruna frá þeim, er selt hafði steinana. Það var ekki sama, hvort tungl var fullt eða hálft, þegar nota skyldi steinana. Ekki var sama, hvort stórstreymt var eða smástreymt, ekki sama hvort aðfall var eða út- fall, ekki sama á hvaða tíma sólar- hringsins maður var að verki, ekki heldur sama hversu veðri var hátt- að, einkum þó með tilliti til úr- komu annars vegar og þurrviðris hins vegar. Því síður gilti einu, hvernig reykurinn hagaði sér, hvort hann steig beint upp úr strompinum eða blykkjaðist niður og fylgdi jörð. En þó var eítt erfið- ast af öllu: Þessi ytri fyrirbæri áttu ekki við alla steinana jafnt. Sum tóku aðeins til þeirra steina, sem blauðir voru, önnur aðeins til þeirra, sem voru graðir, en sum fyrirbærin giltu um bæði kynin jafnt. Þessa hafði galdramaðurinn ekki gætt sem skyldi, og í því var fall hans fal'ið. — Kanntu ekki fleiri sögur af þessurn ágæta galdramanni? — Ojú. Ég skal lofa þér að heyra eina í viðbót. f Seljadal, sem er svo sem tutt- ugu mínútna gang frá Hnífsdal, er á ein, sem Vígðaá heitir, því að talið er, að Guðmundur biskup góði hafi vígt hana. Það var trú þessa karls, að ekki þyrfti annað en að skyggna vatnsflöt árinnar vel þá sæi maður þar andlit þess manns, sem stolið hefði frá manni. Nú bar svo til einhverju sinni, að karli hunfu peningar, og gat hann e'kki fundið á því neina aðra skýringu en þá, að þeim hefði ver- ið stolið. Vildi hann nú flest til vinna að ná aftur fé sínu, því að hann var skaðasár rnjög. Hljóp nú karl við annan mann út að á og vildi kenna andlit þjófsins þar á vatnsfletinum. En ekkert hafði hann upp úr því. Það voru al'ltaf einhverjir bölvaðir gárar á vabn- inu, svo að myndin kom aldrei fram. Svo fór um sjóferð þá. Eins og ég hef þegar látið að liggja, var karl þessi fégjarn mjög og samhaldssamur, og líklega hef- ur hann átt eitthvað af peningum í handraðanum. Það orð hefur leg- ið á, að hann hafi grafið peninga sína í Stóru-Urð, fyrir ofan ísa- fjarðarkaupstað. Líklega hefur hann falið þá of vel, því að stumd- um á efstu árum hans sást hann á rölti um urðina eins og hann væri að Ieita einhvers. — Mér heyrist á öllu, að galdra- kunnátta Vestfirðinga hafi verið mjög til þurrðar gengin á dögum karls þessa. Hann hefur nánast ver ið seinasti kalkvisturinn á dauðum meiði, sem eitt sinn stóð með blóma. — Já, það má sjálfsagt orða það svo. — Er nökfcur von um það, að svona fcynlegir kvistir haldi áfram að skjóta upp kollinum til þess að gera mannlífið litríkara? — Það held ég vaiila. Að minnsta kosti efcki á Vestfjörðum. Elnangrun þeirra hefur nú að fullu verið rofin, og nútíminn ef riðinn í hlað, með öllum sínum ysl og þys, argi og gargl. Þar með er það algerlega útilokað, að nokkur maður gefi sér tíma til þess að nema galdur — þó svo, að ein- hver væri til þess að kenna. VS. \ 160 T í M I N N — SUNNUDAGSBLAÐ

x

Tíminn Sunnudagsblað

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn Sunnudagsblað
https://timarit.is/publication/301

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.