Tíminn Sunnudagsblað - 01.03.1970, Blaðsíða 13

Tíminn Sunnudagsblað - 01.03.1970, Blaðsíða 13
Valdimar Björn Vaidimarsson. Ljósmynd: Tíminn-&E. f'lutningabilstjóri þarna á þessari leið, sem þú varst að lýsa? — Eiiginlega var það nú ekSd alit í sómanum. Það var í fyrsta lagi mjög mikið vandaverk að hlaða bilinn réttilega, þvi að veg- urinn var svo afleitur á þessum ár- um. Breiðadalsheiðin er snarbrött, og að vestanverðu voru hvorki meira né minna en þrettán beygj- ur, og tvær þeirra svo krappar, að ekki var hægt að komast þær, nema með því að stanza í miðri beygjunni og bakka svo eins langt og hægt var, o.g halda síðan af stað aftur. Þetta var öldungis hábölvað með annað eins háfermi og heyhlass. En maður var dálít- ið kappgjarn á þessum árurn, og mig langaði til þess að komast með sem mest í hverri ferð. Ég varð að fá leyfi sýslumannsins okk- ar, Torfa Hjartarsonar, núverandi tollstjóra, til þess að breikka og lengja pall bílsins ofurlítið með plönkum, svo að ég- kæmi heldur meira á hann. Þetta þýddi það, að ég gat haft tvísetta röð af bögg- um. — En hvað hafðir þú margar „hæðir'* af böggum? — Oftast þetta þrjár, og svo kannski fjórar til sex srnásátur í miðjunni og fram á stýrishúsið. — Mér heyrist nú þet a hafa verið ærið hlass. — Ja, já. Það máttl víst ekkert meira vera. En svo var b'ka eítt, og það var það, að heiðin er svo snarbrött í knöppustu brekkunum, að það mátti bókstaflega engu muna, að bíllinn lyftist ekki upp að framan og færi aftur yfir sig. Ég man alveg sérstaklega eftir einni ferð. Þá höfðu þeir, sem bundu baggana, haft þá svo stóra, að ég varaði mig ekki á þvi, og hlassið varð með allra mesta móti. Rétt áður en ég kom að Breiða- dalsheiði ók ég fram á ágætan mann og góðvin minn. Hann seg- ir við mig: „Á ég nú ekki, Valdi- mar minn, að hjálpa bsr til þess að min-nka eitthvað hlassið, ssm á bílnum er og stafla því liérna? Þú kemst hvort eð er aldrei meö allt þetta yfir heiðina“. „Þakka þér fyrir“, svaraði ég. „Nei, ég held ég taki bara af, þegar ég kem neðst í brek‘kurnar“. Að vísu var það ásetningur minn að fara alls ekkert eftir orðum þessa ágæta oig varfærna manns, en samt urðu þau nú til þess, að ég fór ögn gætilegar, þegar í brekkurnar kom. Þegar þangað kom, tók ég eftir hellu einni mikilli, sem lá utan vegar. Þá stanzaði ég, sótti helluna, tosaði henni upp á fram- stuðarann á bílnum, reisti ha,na þar upp á rönd og batt hana rammlega. Siðan lét ég tvo ungl- ingsstráka, sem með mér voru, liggja sinn á hvoru frambrettinu upp allar brekkur. Og allt gekk slysalaust, en eingöngu vegna þess ara varúðarráðstafana. Því það er ég alveg viss um, að ef við hefð- um ekfcert að gert, en lagt í brekk- urnar með hlassið svona eins og það var, þá hefði illa farið. — Þú varst búinn að lofa mér því, að ss#a mér eitthvað toetur frá búferlaflutningum þínum á æskuárunum. — Já, og ég ska-1 ekki svíkja þig um það. Þegar ég er strákur, líklega á sjöunda árinu, tekur að fjölga í kotinu hjá pabba og snömmu. Við vorum orðin fjögur, börnin, en þá bættist það fimmta við. En svo var nú líka það, að alveg um sama leyti og fimmta systkinið fæddist, tóku pabbi og mamma vinnukonu eða léttastúlku úr annarri sveit, og þá var ég sendur í hálfgildis fóstur fram að Bakka, þar sem ég var fæddur. Og eiginlega var það nú fyrir nýju vinnukonumni, sem ég varð að víkja, í raun og veru ætti ég að haida áfram að tala um hana, því T f M I N N — SUNNUDAGSBLAÐ 157

x

Tíminn Sunnudagsblað

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn Sunnudagsblað
https://timarit.is/publication/301

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.