Tíminn Sunnudagsblað - 01.03.1970, Blaðsíða 5
Lög um tilbúning og verzlun
með ópíum og fleira
1. gr.
Bannaður er tilbúningur, innflutningur og út-
flutningur á unnu ópíum og verzlun með það.
Undir bann þetta falla og ópíumleifar allar og
hvers 'kyns afgangur, einnig það sem eftir verður
þegar ópíum er reykt.
2. gr.
Lyfsölum er heimilt að búa til og vinna úr,
flytja inn og út og verzla með óunnið ópíum til
lækninga, morfín, 'kókain og heróin svo og hvers
konar efnisblöndun, sem í er meira en %% af
morfíni eða meira en 1/10 af heróin og kóain.
Dómsmá 1 aráðuneytið semur nánari reglur um af-
hendingu lækna á umgetnum lyfjum. Áfengis-
verzlun ríkisins er heimilt að útvega læknum lyf
þessl frá úflöndum, svo sem önnur lyf.
Dómsínálaráðuneytið setur nánari ákvæði um til-
búning og úrvinnslu, inn- og útflutning, svo og
verziun og afhendingu á nefndum efnum, og set-
ur reglur um eftirlit með slíkri iðju og verzlun.
3. gr.
Unnið og óunnið ópiurn, ópíurn til læknislyfja,
morfín, kóain og heróin ber að skilja í lögum
þessum samkvæmt skilgreiningum alþjóðar-ópíum-
fundar 23. janúar 1912.
4. gr.
Dómsmálaráðuneytið getur úrskurðað, að ákvæði
kga bessara gildi um öll efni, hvort sem þau eru
afleidd af morfíni, kókaini eða söltum þeirra oða
ekki, enda hafi sannazt við vísindalega rannsókn,
að misnóta miegi þau á líkan hátt, eða að þau hafi
lík skaðvænleg áhrif sem efni þau, sem nefnd
eru í 2. gr.
- . . 5' gr'
Oheimilt er að hafa undir höndum eða varð-
veita, veita viðtöku, gefa, afhenda, selja eða
verzla með hvers konar lyf og efni, er ákvæði
laga þessara taka til og ólöglega eru flutt inn eða
framleidd. Gera skal upptæka til ríkissjóðs slíka
vöru og hagnað af verzlun með hana.
6. gr.
Brot á lögum þessum og reglum settum sam-
kvæmt þeim, varða sektum allt að 1 milljón
króna eða varðhaldi og fangelsi allf að 6 árum.
ef urn stórfellt brot er að ræða. Það telst stórfellt
brot, ef lyfjum þeirn eða efnum, sem undir lögin
falla og ólöglega eru flutt inn eða framleidd, er
dreift til hóps manna eða þau seld gegn veru-
legu gjaldi, eða ef uir er að ræða innflutning, út-
flutning, vörzlu, verzlun, mótltöku, afhendingu.
framleiðslu eða vinnslu þessara iyfja eða efna í
því skyni að selja þau eða dreifa þeim til hóps
manna eða gegn verulegu gjaldi með öðrum hætti
en lög þessi eða lyfsölulög heimila.
Með mál út of brotum á lögum þessum skal
fara að hætti opinberra mála.
í Englandi og Bandaríkjunum
hafa 70% ávana- og fíknilyfja-
ine.vtenda byrjað á hass- og marí-
júanareykingum. Engin skynsam-
leg ástæða er til að ætta, að ís-
Iendingar séu í því staðfastari eða
forsjálli 1 háttum sínum en aðrar
þjóðir.
Það talar sínu máli, að ungling-
ar, sem nýlega eru byrjaðir hass-
revkingar ugga margir hverjir
ekki að sér. Hér á eftir fara við-
töl við ungt fól'k, sem lýsir áhrif-
um ávana- og fíknilyfja og skýr-
ir frá, hvers vegna það hefur neytt
þeirra. Margt af því virðist ekki
gera sér grein fyrir því, að hér
þurfi að taka fast í taumana. Það
ætlar liiin nýju lög um varnir
gegn nelzlu þeirra af ströng, jafn-
vel ástæðulaus.
★
Hér koma einnig við sögu lyf
ýms, sem æfluð eru til lækninga,
en eru iðulega misnotuð.
T í M I N N — SUNNUDAGSBLAÐ
Ávana- og fíkniefnum er hægt
að skipta í fjóra flokka. Fíkniefni
eru ópíumflok’kurinn og ofskyni-
unarefni, en ávanaefni eru örv-
andi, deyfandi og róandi lyf.
í ópíumflokknum eru efnin
MORFÍN — KÓDEIN — HERÓÍN
— KÓKAÍN — MEPERDÍNE —
METHADONE. Þessi fíkmiefni
verka á þrautir, liræðslu, angist og
hugsunina, auk þess sem þau
deyfa verki. Hugmyndaflugið
eykst, þannig að neytendur eru í
draumkenndu ástandi og áhyggju-
lausir. Morfín verkar einstaklega
vel á kveisu (kolíverkanir) af ýmsu
tagi og getur haft læknandi áhrif
á gall- og nýrnakveisu, því að efn-
ið Iosar um 'krampa í þessum tíf-
færum.
Aukaverkanir samfara inntöku
þessara lyfja eru ógleði, uppköst,
hægðatregða, þvaglátstruflun,
kláði, slappleiki, veiMun, og þau
geta orsakað lömun í öndunarfær-
um, ef um stóra skammta er að
ræða.
Neytendur eru fremur órólegir,
þegar þá vantar inngjöf. Þeir
geispa í sífellu, fá nef- og tára
rennsli, svitna, fá ógleði, uppköst
og niðurgang.
Ávanahættan er gífurleg, veik-
geðja og áhrifagjörnu fólki
er miklu hættara við að verða háð
slikum efnum en öðrum .Því oftar
sem efnið er tekið inn, þeim mun
stærri skanunta þarf, því að líkam-
inn venst efninu.
PEDIDIN er skylt þessum efn-
um, en léttara og aukaverkanir
færri.
Ofskynjunarlyf eru LYSERGÍN
(LSD) — MESKALÍN — PSILO-
CYBIN — DIMETHYLTRYPTA-
MINE (DMT) KANNABIS (IfASS,
MARIJÚHANA, INDERSKUR
HAMPUR, TYRKNESKT HASS) —
METHL DIMETHOXY METHYL
PHENYLETHLMINE (STP).
LSD-neytendur eru í leiðslu eða
mókkenndu ástandi, sitja mikið og
liggja. Þeir virðast hræddir við al-
14*