Tíminn Sunnudagsblað - 16.08.1970, Blaðsíða 4

Tíminn Sunnudagsblað - 16.08.1970, Blaðsíða 4
TORFI ÞORSTEINSSON: ENDURMINNINGAR ÚR BREIÐDAL Á Randversstöðum I Breiðdal. Vorið 1918 fluttist ég m<j3 for- eldrum mínum að Randversstöð- um í Breiðdal í Suðurmúlrsvslu og dvaldist þar vil vors 1919. Þetta ár mun með réttu mega telja eitt af atburðaríkustu ámm þessarar aldar. Margir hinna stærri atburða þessa árs voru mér þó eims og niður af fjarlægum stormsveip, sem ég skynjaði ekki að fullu sökum æsku, því að ég var þá aðeins fullra 9 ára. Aðrir smærri og hversdagslegri arburð- ir, sem ég minnist frá þessu ári eru að mestu leyti séreign mín. En sé á hina hversdagsfegu at- burði litið með nokkru raunsæi, gætu þeir að vissu marki verið sameign allra þeirra íslendinga, sem lifðu og hrærðust í aldarfari þess tíma. Ég ætla því að freista þess að rifja hér upp nokkra þess- ara atburða. Bærinn Randversstaðir stend- ur suðvestan megin Breiðdalsár u.m það bil miðja vega í bæjarröð, sem í daglegu tali er kölluð Suð- urbyggð. Uppi yfir bænum er hátt og hrikalegt fjall og heitir efsti hluti þess, sem frá bænum verður séður, Tröllhamrar. Niður frá hömrunum er grasi vaxin hlíð, sem skiptist í smáhjalla, en hjall- aTj?r eru sundur skornir af lækj- um sem eiga upptök sín við ræt- ur Tröilhamra. Þessir lækir liðast stall af stalla niður hjallana á leið til undirlendisins, en sameinast þar í stærri kíla, sem falla í Breið- daisá. í hversdagskyrrð eru læk- ir þessir meinleysið sjálft, en í vetrarþey og vorleysingum geta þeir átt til að skipta um ham. Tveir þessara lækja renna, hvor til sinnar handar við tún staðarins og komu nokkuð við sögu siðar um veturinn. Randversstaðir eiga allmikið landrými fyrir fénað, en auk þess höfðu þeir upprekstur fyrir b*ga- lömb í landi Fagradals, sem á mik- ið og kostaríkt fjaUlendi. Ekki er mér kunnugt um, hvort Randvers- staðir hafa átt þarna ítak, eða að þetta hefur verið samningsatriði á milli bæjanna, ein sennilegt er að fjallabeitin hafi verið endurgold- in með engjum frá Randversstöð- um, en sá bær á kostamiklar engj- ar 1 Randversstaðablá, sem árlega fær ókeypis áburð, er Breiðdalsá flæðir yfir bakka sína. Það ár sem hér verður sagt frá, var tvíbýli á Randversstöðum og hétu bændur þar Guðni Árnason og Ófeigur Snjólfsson, en foreldr- ar mínir voru vinnuhjú hjá Guðna. Ári síðar en þetta gerðist, er orðið þríbýli á Randversstöðum og þá yrkir aldinn hagyrðingur, Björn Björnsson, bæjarímur um bændafólk í Breiðdal, en þar eru tveim af Randversstaðabændum þessar vísur tileinkaðar: Enn þar Guðni unir sér, annar bóndi talinn. Þarna góð við efni er, eg mun þekkja halinn. Þriðja Ófeig þar ég fann, — þeytti málatólin. Mikið gerði mennta hann Möðruvallaskólinn. Ekki munu vísur þessar nú geta ta-list mikil heimild um Randvers- strðabændur. Þó má af annarri þe3rra sjá að hinn síðar nefndi hef- ur eitt sinn fágast við menntaset- ur Hjaltalíns á MöðruvöRum, en því mun slíkt fram dregið i Tjóði, að mjög þótíi nú stúdentsbragur- inn íarinn að mást í hversdags- önn. Þetta ár voru heimilismenn hjá ófeigi þau hjónin og tveir synir í bernsku. En í heimili hjá Guðna voru 8 menn, þar af þrír drengir í bernsku og eitt gamalmcnni. Bær Guðna var fremur lítið tímburhús, ein hæð og ris og skúr við norður- og austurvegg, en hlað- in tóft þar umhverfis. Nokkru norðar og nær fjalli var hlaða og fjós, sem innangengt var í frá bæj- arhúsum. Nokkru norðaustar í þorpinu stóðu _ leifar af gömlum bæjarl um Ófeigs og var þar fjós hans, en til hliðar við það stóð lítill kindakofi, en bær Ófeigs, sem var einlyft timburhús í tóft, stóð nokkru framar á hlaðinu og fremur mjótt sund á milli bæj- anna. Fráfærur og fénaðargæzla. Veturinn 1918 var einn mesti frostavetur á þessari öld. Þá krap- aði Berufjörð út undir Djúpavog og gengið var yfir hann innanverð- an á heldum ís. Frost mun þá víða hafa gengið dýpra í jörð en dæmi eru til síðar og viða hvarf ekki allur þeli úr jörð yfir sumar- ið. Víða rifnaði jörð af. ofþenslu klakans og frostsprungur voru svo miklar í Breiðdal þetta sumar, að slysahætta var af fyrir búfénað. Jörð var meira og minna kalin og víða varð mikill grasbrestur. Eins og áður er sagt, áttu Rand- versstaðir grasgefnar engjar í „Blánni“, þó \oru þar víða mikil kalsvæði, sem áður höfðu veríð stararsvæður Heyfengur varð þó fremur góður hjá Randversstaða- bændum þetta sumar og víða að komu menn þtngað í leit að engj- um. Meðal annarra var þar maður einhvern tíma sumars frá Elísi Jónssyni, kaupmanni á Djúpavogi. Var heyfengur hans fluttur til Breiðdalsvikur á hestum, en það- an til Djúpavogs með vélbátnum „Síðu-Halli“. Um 40—50 ær voru í kvíum á Randversstöðum þetta sumar og man ég eftir erfiðri ferð, sem ég var þátttakandi i með lambarekst- ur að Fagradal. Gæzla kvíaánna var líka að miklu leyti mitt starf, þótt ég ekki væri nema 9 ára. Frá þeirri fjárgæzHu á ég ótal margar endurminningar. Margar af ánum áttu sín sér- stæðu lyndiseinkenni eins og mennimir. Sumar voru ljúfar og viðmótsþýðar, aðrar voru sérsinna og stirðar í skapi. Einkum minnist ég einnar hvitrar tvævetlu, sem hl'aut nafngiftina „Frenja“ vegna skapbresta. Veturgamall sauður, kallaður „Blettur“, tók tryggð við kvíaærn- ar snarnn'a sumarff og fylgd: þeim til haustnátta. Lagðist hann jafnan sso T I M I N N — SUNNUDAGSBLAÐ

x

Tíminn Sunnudagsblað

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn Sunnudagsblað
https://timarit.is/publication/301

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.