Tíminn Sunnudagsblað - 16.08.1970, Blaðsíða 17

Tíminn Sunnudagsblað - 16.08.1970, Blaðsíða 17
íþróttamót Ungmennasambands BorgarfjarSar árlð 1919. Björn Jónsson á Ölvaldsstöðum: KAPPSLÁ TTURINN í BORCARFIRÐI í 13. tölublaði Sunnudagsblaði Tímans 1969 er viðtal við Einar Jónsson, fyrrverandi ráðsmann á Hvanneyri hjá Halldóri Vilhjálms- syni skólastjóra. (Einar andaðist síðastliðið sumar). Á blaðsíðu 304 segir Einar: „Á þessum árum var oft háður kappsláttur í Borgarfirði til þess að glæða áhuga manna. Þar sigr- aði Tómas Jóhannsson ævinlega". Hér á Einar við kappslátt, sem háður var fyrst árið 1918 á Hvítár- bafcka og var ein keppnisgreina á iþróttamóti Ungmennasambands Borgarfjarðar. Þegar ég las áður- nefnt samtal við Einar heitinn hafði ég undir höndum gerðabæk- ur stjórnar Ungmennasambands Borgarfjarðar og var að leita eft- tr, hvað finna mætti um íslenzka glímu í Borgarfirði að beiðni Kjartans Bergmanns, formanns Glímusambandsins. Hann er að safna heimildum um glímuna í Borgarfirði. Fór ég nú að athuga, hvað finna mætti um kappsláitinn. En eftir því, sem ég bezt veit, eru aðeins til í héraðsskjalasafni Borgarfjarðar skýrslur stjórn- arinnar (þ.e. stjórnar Ungmenna- sambands Borgarfjarðar) árið 1915 til ársins 1924, en skýrslur vantar árin 1912, 1913 og 1914, einnig árin 1925—1934. En funct- argerðabækur aðalfunda Ung- mennasambandsins eru aðeins til árin 1920—1922. Ef einhver veit hvar þær bækur eru niður komnar, sem ég hef talið hér að framan að vanti, væri vel þegið, ef ég fengi að vita um það. En vegna þess, að svona mikið vantar í gerðabækur Ungmennasambands ins, gat ég ekki fundið það, sem vantaði til að leiðrétta það til fulln ustu, sem missagt hefur verið um þetta. í afmælisriti Ungmennasam- bands Borgarfjarðar, sem gefið var út í tilefni fimmtíu ára afmæl- Is sambandsins, var ekkert að finna um málið, sem að gagni mætti verða í þessu sambandi, enda er ritið ekki ábyggilegt heim- íldarrit. f viðtali við einstaka menn var ekki heldur hægt að fá íullnægjamdi upplýsingar, en hins vegar varð éx var við tals- verðan áhuga hjá 5’jnsum að vita það rétta í málinu, eftir að Þor- steinn Böðvarsson i Grafar- dal sendi leiðréttingu á áður- nefndum ummælum (sjá 17. tölublað Sunnudagsblaðs Tím- ans 1969, blaðsíðu 390), og svo gerir Ármann Dalmanns- son aðra athugasemd í 21. tölu- blaði Sunnudagsblaðsins, blaðsíðu 499 við grein Þorsteins Böðvars- sonar og ummæli Einars heitins Jónssonar. Mun ég síðar vitna að nokkru í greinar Þorsteins og Ár- manns. Það má sjálfsagt segja, að litlu eða engu máli skipti það, hvort Tómas Jóhannsson var á undan Guðmundi Tómassyni að slá þá útmældu reiti, sem þeir hlutu að slá. Það er víst, að allir þessir þrir menn, sem hafa rætt um kapp- sláttinn í Borgarfirði, vilja einung- is hafa það, er sannara reynist. Að slá með orfj og ljá er næstum því horfið' úr heyskaparstörfum, og heyrir því í raun og veru fortíð- inni til. Eins og ég gat um, þá varð ég var við áhuga hfá mönnum að rifja málið upp. Þvi fór ég að leita mér upplýsinga og reyndi að fá afrit af því, sem um málið var sagt i Tímanum. En mér var sagt að á því mundi lítið vera að græða. En dr. Guðmundur Finnbogason skrifaði grein í Tímann 10. ágúst 1918 um kappsláttinn og heitir hún Kappslátturinn á Hvítárbakka sunnudaginn 4. ágúst 1918. Afrit- if af grein dr. Guðmundar var mér sent ljósprentað, svo að þess vegna ætti ekkl neitt að fara á ' T 1 M I N N — SUNNUDAGSBLAÐ m

x

Tíminn Sunnudagsblað

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn Sunnudagsblað
https://timarit.is/publication/301

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.