Tíminn Sunnudagsblað - 16.04.1972, Blaðsíða 14

Tíminn Sunnudagsblað - 16.04.1972, Blaðsíða 14
skrykkjótt gekk hún. Fordbil ók mað- ur, sem Jón hét og var Sigmundsson. Hann var frá Ameriku og eitthvað á vegum Ford-umboðsins. En vegirnir voru nú ekki betri en svo, að bilarnir lágu i þeim, ef nokkur vætutið var, og vou þá hestar oft spenntir fyrir bilana og látnir draga þá upp. Ekki var nú umferðarmenningin nútimalegri en þetta. En það var ákaflega gaman að vera á Þingvöllum. Félagsskapurinn var eins og bezt varð á kosið og andinn góður. Sjálfur var maður ungur og ærslafenginn og naut lifsins i rikum mæli. — Svo liða árin og þú ferð að gefa þig að sjónum? — Já, það var óhjákvæmilegt og gat ekki öðru visi farið. Sjórinn hafði alltaf staðið mér nærri og allt að þvi sjálf- gefið, að ég sneri mér þangað, þegar að þvi kom, að ég færi að spila á eigin spýtur. — Þar hefur vist ekki skort tilbreyt- ingu og ævintýri? — Það gerðist margt, og sumt af þvi er hægt að segja, en fleira er þó þess eðlis, að hæpið er að láta það á þrykk út ganga. Þó get ég sagt hér frá einum atburði, sem mér þótti dálitið ein- kennilegur. Það var eitt sinn, að skipið, sem ég var á, lá hérna i Reykjavik, rétt þar fram undan, sem oliugeymar B.P. eru núna. Veður var ágætt og allir farnir i land, nema ég. Ég lagðist til svefns um kvöldið, en vaknaði við það, eitthvað nálægt lágnættinu, að mér fannst eins og komið væri við mig. Ég reis upp við dogg og leit yfir á bekk i káetunni. Sá ég þá, að þar sat strákur, eitthvað á liku reki og ég. Ég varð ekki neitt hræddur, og varð mér að lita af honum aðeins andartak. En þegar mér varð aftur litið á bekkinn, var þar enginn strákur, en i staðinn heyrði ég rok úti. Ég þaut út og upp á þilfar, og sé þá að strákarnir, skipsfélagar minir, sitja þar uppi á klöppinni og garga til min aðsleppa i land bátnum, sem hékk aft- an i skipinu. Ætluðu þeir að komast á honum út til min. Þetta sá ég, að var tóm vitleysa. Þeir myndu ekki gera annað en brjóta bátinn, og alla vega ekki ráða neitt við hann, þvi þetta var álandsvindur. Ég lét þvi bátinn eiga sig, en fór heldur að huga að akkeri. Fremra akkerið var bundið upp, og ekki annað að gera en leysa það eða skera niður. Ég man nú ekki, hvort ég gerði, en svo mikið er þó vist, að ég lét drekann detta. Og þetta fór allt saman vel. Strákarnir héldu i bæinn og sváfu þar um nóttina, en ég var kyrr um borð, og leið vel. — En strákurinn, sem þú sást. Veiztu nokkur deili á honum? 302 — Onei, ekki get ég nú sagt það. En við spurðumst einu sinni fyrir um hann, og þá var okkur sagt, að það hefði einhvern tima tekið unglingspilt út af þessu skipi. Meira veit ég nú ekki. En það voru fleiri en ég, sem þóttust hafa orðið hans varir. Hvort hann hef- ur verið að vara mig við þarna um nóttina, veit ég auðvitað ekki, en þó er mér nær að halda, að svo hafi verið. — Varst þú ekki einn með þeim fyrstu, sem stunduðu lúðuveiðar á Grænlandsmiðum? — Ég veit ekki, hvort rétt er að telja mig með þeim fyrstu, sem það gerðu, en svo mikið er vist, að fyrir mörgum árum lenti ég þangað, ásamt fleiri mönnum, og var að veiðum heilt sum- ar. — Hvenær var þetta? — Það var sumarið 1927. Ég hafði þá lengi verið kunnugur Guðmundi Magnússyni, föður Guðmundar 1. Guð- mundssonar, fyrrum ráðherra. Hann réði mig á enskt skip, sem hét Im- perialist, en skipstjóri var Tryggvi Ófeigsson. Leiðangurinn átti að hefj- ast frá Hafnarfirði rétt um 20. júni um sumarið, en ekki skiluðu sér nú allir, sem gert höfðu ráð fyrir að koma. Sumir óttuðust hafisinn og hættu við ferðina af þeim sökum. Aður en lagt var af stað, vorum við allir látnir skrifa undir samning, og þar sem hann er talsvert sérstætt plagg, held ég, að ég verði að lofa þér að birta ofurlitlar glefsur úr honum. Þar segir svo meðal annars: ,,Hver fiskimaður skal hafa með sér nægan fatnað, sjóklæði, rúmföt og annan út- búnað til ferðarinnar og skal skyldur til að koma um borð með allan útbúnað sinn á tilsettum tima. Ferðakostnaður allur til Hafnarfjarðar, þegar fiski- maðurinn fer þar á skip,, greiðist af honum sjálfum og er óviðkomandi eig- endum. Eigendurnir ákveða einir, hvenær lagt er af stað heim af miðun- um, en þó má það ekki vera siðar en i lok septembermánaðar 1927. Ferðin telst enda, þegar skipið kemur aftur, annað hvort til Hafnarfjarðar eða Hull, en hvor af þessum höfnum það verður, ákveða eigendurnir einir. Eigendurnir ákveða, hvort fiskimenn- irnir verða afskráðir i Hafnarfirði eða Hull”. Það verður að visu ekki sagt, að þetta, sem hér hefur verið tilfært, sé á neinn hátt hneykslanlegt, þótt ekki sé hægt að segja, að mikið sé verið að velta vöngum yfir því, hvernig sjó- mönnunum komi þær áætlanir, sem gerðar voru. En það er ekki allt upp talið enn. Siðar i samningnum segir svo: „Fiskiskipstjórinn hefur fullkom- inn rétt til þess að senda hvern þann fiskimann heim aftur, sem reynzt hef- ur lélegur til verka eða við veiðina, eða hefur sýnt óhlýðni, án þess að viðkom- andi fiskimaður eigi skaðabótakröfur á eigendurna eða fiskiskipstjórann þess vegna. Hver fiskimaður skuld- bindur sig til þess, og leggur þar við drengskap sinn, að fara ekki um borð i önnur skip, eftir að komið er á fiski- miðin, nema þvi aðeins að slikt sé sér- staklega lagt fyrir hann, og yfirleitt skuldbindur hver fiskimaður sig til þess, eftir þvi sem honum frekast er unnt og i hvivetna, að hlýða boðum og fyrirmælum f is k i s k i p s t j ó r - ans....Skyldu skemmdir á skipinu eða skipreki eiga sér stað og veiðarnar hætta af þeim sökum, eða ef aðrar ástæður skyldu gera það að verkum, að eigendurnir ákveða að hætta veið- um, eiga fiskimennirnir enga kröfu á hendur eigendunum út af þvi, allt án tillits til þess, hvenær á veiðitimanum það kynni að verða”. Margt fleira mætti telja, en einhvers staðar verður maður að nema staðar. Þess skal þó getið, að ekki var samn- ingur þessi i alla staði vondur fyrir okkur, sjómennina. Við vorum ráðnir fyrir fast lágmarkskaup, og er mér nær að halda, að það sé fyrsta kaup- trygging islenzkra fiskimanna, sem um getur. Enn fremur átti að greiða okkur kaup, þrjú sterlingspund á viku, ef til þess kæmi, að við færum með skipinu til Hull. Sömuleiðis var okkur heitið friu fæði og húsnæði frá þvi að skipið kæmi til Hull og þangað til lagt yrði af stað til Islands aftur. Til þess kom þó ekki. Við sigldum beina leið til Hafnarfjarðar, og þar fór ég i land, en einhverjir fylgdu þó skipinu á leiðar- enda og fóru með þvi til Hull. — Hvernig var svo þessum veiðum háttað? — Þetta var svokallað doriufiskiri, þar sem fiskimönnum var skipt niður i doriuáhafnir þannig, að hver doriu- áhöfn var einn formaður og fjórir fiskimenn. — Þú værir nú kannski vis að skýra fyrir mér og öðrum fáfróðum sveita- mönnum, hvað doria er? — Þetta voru svona sex lesta bátar, flatbotnaðir, með gafli i annan endann, en hvössu stefni i hinn. Þeir voru hólfaðir i tvennt að endilöngu, og var látjð net i hvort hólf. Og það merkilega v^r, að þótt landað væri úr aðeins öðru hólfinu i einu, þá hvolfdi þeim ekki, þessum kænum, heldur lögðustþær ósköp hæversklega á borð- stokkinn, án þess þó að taka i sig sjó. Ég held, að þarna hafi kverkin, þar sem botn og súð mættust, myndað eins konar kjöl, sem dugði til þess að halda fleytunni ofan sjávar. Svo mikið var að minnsta kosti vist, að það kom aldrei nokkurn tima fyrir, að þær tækju inn á Sunnudagsblað Tímans

x

Tíminn Sunnudagsblað

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn Sunnudagsblað
https://timarit.is/publication/301

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.