Tíminn Sunnudagsblað - 04.11.1972, Side 2

Tíminn Sunnudagsblað - 04.11.1972, Side 2
I I I I Jón Friðriksson, bóndi á Hömrum i Reykjadal, hefur bent þættinum á, að ekki hafi verið alveg rétt með höfunda farið, þegar birtar voru gamlar kosningavisur úr Þingeyjar- þingi um daginn. Björn Lin- dal var ekki i framboði á móti Ingólfi i Fjósatungu, þegar „Hrifludraugur harðsnúinn” gerði honum byltu á hrauninu, heldur var Steingrimur Jóns- son, bæjarfógeti, i kjöri, en Björn Lindal, var á yfirreið hon- um til handa og trausts. Visnasyrpa sú, sem af þessu hlauzt, hófst, segir Jón á Hömr- um, með þessari visu Konráðs Erlendssonar kennara á Laug- um: Ræningjanna brutu bein byrstir striðsmenn forðum. Lindal fæti stakk við stein, stendur lögmál enn i skorðum. Þá mun það og rétt, sem Jón segir, aö visan: Letruð er á lögmanns haug lifsins raunasaga: Enginn mergur, engin taug, ckkert til að naga. sé eftir Konráð Erlendsson á Laugum (en ekki Konráö Vilhjálmsson á Hafralæk). Þessari visu svaraði Björn Lindal svo aftur þannig: Letruð er á Konráðs kinn kynleg harmasaga. Finnur ekkert, auminginn, ærlegt til að naga. Þessi kosningaslagur var hart sóttur, og eftir kosningarnar var eftirfarandi kosningasaga sögð i þessari visu: Rist var svell og riðið hjarn, reiddar voru keriingar. t Fnjóskadal-fæddist barn á fönn um þessar kosningar, og mun hún eitthvað lagfærð frá upprunalegri mynd. Skúli Þorsteinsson fyrrver- andi skólastjóri, orti eftirfar- andi visu i tjaldstað við Þjórsá. þar sem hét Bólstaðir, en hann var þar aðstoðarmaður við landmælingar: Undur mjúkur elfarniður, andardráttur, töframál. Þessi helgi fjallafriður flytur yl i mina sál. A ungmennafélagsþingi fékk Skúli skriflega áskorun frá Norðlendingi um að botna visur. Hann tók vel i það mál með þessu svari: Askorun ég ekki flý, cða beiðnir þinga. Það er létt að yrkja I eyður Norðlendinga. Kennarar á þingi sátu að kaffidrykkju i efsta sal Hótel Sögu, og um hið mikla og fagra útsýni þaðan orti Skúli: Gléður auga bjarta borgin, bláir vogar, fjöll og torgin. Hér er opið alla daga, öllum fagnar Hótel Saga. Um gamaikunnan ósið yrkir Sig. Gislason eftirfarandi visu: Mæðruiungan mjúk og blið malar lof i eyra. Um alla á bak hún yrkir nið eins og grannar heyra. Þessi visa er andlega skyld gamalkunnri visu eftir Indriða á Fjalli: Hrós um dáið héraðslið hamast sá að skrifa, sem er ávallt illa við alla þá, sem lifa. Sig. Gislason orðar þannig hugsun sina um einfarann: Sá, sem hiklaust höfuð ber hátt og engum lýtur, finnur að þungfær þjóðleið er þeim, sem venjur brýtur. Og hér leggur Sig. Gislason mönnum lifsreglu, sem ýmsum hefur reynzt notadrjúg fyrr og siðar: Hjalaðu dátt en hyggðu flátt, heiðurs mátt ef þráir. Skriddu lágt og sviktu sátt, svo að hátt þú náir. Og hér lýsir hann hlutskipti þeirra, sem ekki kunna hið rétta áralag i lifinu: Þeir, sem aldrei leggja lið lygamálum röngum, hafa ei á Fróni frið fyrir afturgöngum. í þingveizlum hafa oft fæðzt hnyttnar stökur, þvi að margir þingmenn hafa fyrr og siöar verið hagorðir. Þessi þing- veizluvisa er eftir Eirik Einarsson frá Hæli: Veizla þessi og vinahót verða ei nema prettir, eftir skammvinn skálamót skirpa þeir eins og kettir. Hér er gömul visu um skötuhjú nokkur, sem undu ástaleik i hlöðu, er að þeim var komið og leiknum spillt: Tvö I hlöðu hjúin vær, hverra sköðum gaman, lágu i töðu líkt sem tvær luktar öður saman. Og i beinu framhaldi af þessu kemur i huga nýleg visa eftir Egil Jónasson. Baldur óskarsson blaðamaður sendi frá sér skáldsögu, sem hét Hita- bylgja, og geymdi meðal ann- ars allberlegar ástalýsingar, en Jón Engilberts, listmálari, teiknaði talandi myndir i sög- una. Þá orti Egill: Hitabylgja hafði gert hunagsilm úr töðunnL og þá var alveg engilbert. ástandið I hlöðinni. Og botn i þáttinn skulum viö slá með þessari haustvisu eftir Björn Schram i Skagafirði, en hann kvað svo, er hann heilsaði vetri: Vindar hrista héluð strá, hímir kvistur magur. Nú sig vistar virðum hjá vetrar fyrsti dagur. Óska visnavinum ánægjulegs visnavetrar. Gnúpur. m 842 Sunnudagsblað Tímans

x

Tíminn Sunnudagsblað

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn Sunnudagsblað
https://timarit.is/publication/301

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.