Tíminn Sunnudagsblað - 04.11.1972, Page 18
Þýdd frásögn
Lítið rusl og hreinar lífsvenjur
Frúin sefur betur á nóttunni þegar
hun veit að hreinsunarmaðurinn
finnur aðeinseinn ruslasekk hjá henn-
ar húsi.Aftur á móti mun hann finna 3-
4 hjá nágrönnunum á viku, fulla af
flöskum, dósum, matarúrgangi og
pappir. Hún og maður hennar, sem er
prófessor við háskólann i Washington,
hæla sér af þvi, hvað þau henda litlu
rusli. Þetta er lika fullkomið rusl.
segir frúin, mestmegnis pappir, sem
ég get ekki notað til nokkurs annars.
Þau hafa fengið lifshagfræðina á
heilann, og móta lifsvenjur sinar
þannig, að þau valdi ekki að óþörfu
mengun i umhverfi sinu.
Við hugsum um hverja einustu vöru-
tegund, sem við notum. hver áhrif
notkun hennar hefur á hringrás lifsins,
segir frúin. Notkun á pappir orsakar
að fella þarf tré. sem skilur eftir sár á
landinu. Mikil eyðsla á ýmsum hlutum
veldur þvi að náttúruauðlindirnar
ganga til þurrðar vegna aukinnar
vöruframleiðslu. Aukin notkun eykur
lika úrgang og rusl. svo taka verður ný
landsvæði til þeirra nota. sem svo
mengar og raskar hringrás lifsins i
umhverfinu.
Þú munt ekki finna marga óþarfa
hluti á heimili þeirra hjóna. Þó er rétt
að geta þess. að þau nota rafmagns-
tannbursta og uppþvottavél. og brjóta
þar með sinar eigin reglur varðandi
óþarfa hluti. Þótt þau lifi eftir þessum
ákveðnu reglum sinum, er ekki hægt
að segja að þau lifi meinlætalifi. En
þau eyða litlu, á vetrum t.d. Þau klæða
sig heldur i ullarpeysur heldur en
hækka hitann i stofunum og eyða þar
með meira rafmagni.
F'rúin hatar auglýsingabréfin og
pésana, sem berast, og allan þann
pappir. sem þvi fylgir. Svo hún tekur
pappirana og setur i umslagið, sem
fylgir fyrir svar (pöntun) , og setur i
póstkassann. Auglýsandinn fær sina
pappira og póstþjónustan fær
burðargjaldið.
Umslög fyrir sin einkabréf fær frúin
þannig, að hún limir pappir yfir utaná-
skriftina á eldri umslögum og notar
umslagið aftur. Hún ritar einkabréf
sin aftan á auðar siður á pappir, og
þetta gera allir vinir minir og kunn-
ingjar lika, einnig móðir min, segir
frúin.
Hún kaupir matvörur i verzlunum,
sem ekki nota frauðumbúðir
(styrofoam). Hún kaupir mjólk, hun-
ang og salatoliu i verzlunum, þar sem
hún getur komið með eigin ilát og látið
fylla á.
Hjónin hafa tvo bila. en nota þá svo
litið sem mögulegt er. Hann hjólar á
vinnustað. en hún fer i strætisvagni,
eða gengur, Ég kenni á selló tvo daga i
viku. segir hún, og geri þetta sumpart
vegna þess, að þessa daga get ég þá
jafnframt notað til að gera innkaup
fyrir vikuna. Prófessorinn borðar sinn
hádegisverð á vinnustað, og kemur
heim með pappirinn utan af matnum á
hverju kvöldi. Hún eldar sem mest i
sama pottinum, og hjónin eru aðdá-
endur grænmetisrétta, svo eldhúsborð
hennar er ekki fullt af pottum og
pönnum . Hún leitast við að hafa tvö-
föld afnot af öllum hlutum. Hún biður
með að baka brauð, þar til kvöld-
verðurinn er soðinn. Hún notar
ekki vatn að óþörfu. Við morgunverð-
inn hita ég 3 bolla af vatni. Fyrsta boll-
ann nota ég fyrirkaffi (instant) handa
mér. Þá sýð ég egg i afgangsvatninu.
Þegar eggin eru soðin, hita ég mjólk
handa manninum minum yfirvatninu,
og að lokum skola ég diskana með
vatninu.
Hún býr, til blaðasliður úr tómum
niðursuðudósum. Hún hefur sameigin-
lega timaritaáskrift með vinum sin:
um. og hefur einnig safnað timaritum i
rusli nágrannanna og fært sjúkrahúsi i
nágrenninu. Ég er þannig gerð, segir
frúin. að ég tek upp gúmmiteygju, ef
ég sé hana liggja á götunni.
Hjónin hafa tvo stóra hunda, sem
hjálpa þeim við ýmsa afganga, Það er
lika safnhaugur á lóðinni, og þau nota
aðeins lifrænan áburð i garðinn.
Hún notar uppþvottavélina aðeins
einu sinni i viku. og einstöku sinnum
notar hún teppahreinsara til að
hreinsa burt hundahár.
Þvottavélina notar hún aðeins aðra
eða þriðju hverja viku. Við notum fötin
okkar lengur en áður. segir frúin.
Maðurinn minn notar sömu undirfötin
3 vikur i einu. Við höfum einnig fækkað
bað og steypubaðstimum. Við tökum
einu sinni steypubað og einu sinni bað á
viku og við notum bæði sama bað-
vatnið. Það er engin ólykt af okkur.
Við verðum aldrei verulega óhreín, og
sjáum enga þörf á að taka steypibað
daglega.
Þau hafa hirt batting(2x4). sem var
á floti i Washingtonvatni og notað. Þau
hafa hirt rótarstykki úr auðninni og
gefið þvi nýtt lif með dálitilli máln-
ingu.
Sem eldsneyti i glóðarker riota þau
ýmsar afklippur úr trjágerðinum, i
stað þess að nota aðkeypt efni (brik-
ettur). Slikt minnkar skarnmagnið og
þau sleppa við að finna bragð af gervi-
efnum i matvælum sinum.
Hjónin nota klúta frekar en pappir,
Skúli Þorsteinsson:
VESDAR
Vindar blása, vindar hvína,
vindar fara um holt og börö.
Vindar æöa, vindar dvína,
vindar naga kalinn svörð.
Aldir koma, aldir renna,
aldir hverfa i tímans geim.
Ævir kvikna, ævir fenna,
eldar brenna villtan heim.
(1946)
858.
Sunnudagsblaö Tímans