Tíminn Sunnudagsblað - 30.06.1973, Qupperneq 4
Baldur Guðmundsson Bergi:
Miðkvíslarþula
Akureyri telst ágætur staöur,
er þar margur kynbótamaður.
Tel bara tólf og fjóra
tvigilda menn og stóra:
Bæjarins ráösmann Bjarna
berandi sverð til varna.
Bragi og Sólnes i buxunum
barmafullum af peningum.
Sigurö Óla og Sigurð Jó...
er skammta okkur rafmagn nóg.
Stefán Reyk og Jón i Iöju,
sem eldinn biása I sömu smiöju
Arna, Björn og Ingólf A..
afkastamenn aö raka og slá.
Þorvald, Steindór og Þorvalds Jón,
þeir boröa aliir með sama spón.
Valur og Jakob veröa svo með
og vinur minn Knútur Ottersteö.
1 fyrrasumar þeir fóru á stjá
fyrir göngur ég segja má
til hinna mývetnsku manna
mátt sinn og veldi aö kanna
Þar átti að byggja þéttbýliskjarna
og þetta var mest úr Bjarna.
Þeir fóru aö heiman I flýti
meö fyrn af dínamiti,
efni, pála og allskonar tólk,
allt átti að klárast fyrir jól,
komu svo þessu upp á klakka,
og köstuöu taumum á makka.
Héldu siöan sinnar leiðar
með sextiu kapla austur heiðar,
en lentu I myrku mýflugnasvarmi
A Miðkvislar eystri barmi.
Svo var þar mikið mýið
aö menn fengu ei áfram stigið.
Urðu svo klyfjar ofan að taka
og halda til baka.
Klyfjarnar lágu þarna lengi
á Ijómandi góðu valllendisengi.
A endanum hitnaði i öllu saman
við uppgöngufiskopið aö framan.
Þegar hitinn fór yfir hundrað stig
heyrðist sprenging ógurlig.
Miðkvislarstiflan splundraðist
og sérhver maður undraðist,
sem yfir þessi ósköp leit.
Svo ærðust beljur i Mývatnssveit.
í ána hljóp mikil vlgja
er sjötiu metra bylgja
skall fram með ógnarafli
Flutt á bls. 550.
Mývetningar komnir að Miðkvislarstiflu og undirbúa uppnám hennar, svo að leið opnist silungi úr ánni I vatniö
(Ljósm: Sr. örn Friðriksson)
532
Sunnudagsblaö Tímans