Tíminn Sunnudagsblað - 30.06.1973, Síða 9

Tíminn Sunnudagsblað - 30.06.1973, Síða 9
Au&vitað var ég ekki frýnilegur ásýndum, barinn og blóðugur i framan vaðlafullur af vatni og linan min sjálf- sagt i'flækju. Fyrst varð mér fyrir að fara úr vöðlunum og losa mig við vatnið úr þeim. Auðvitað fylgdu hosurnar og sokkarnir með. Ég hellti nú vatninu úr þeim, vatt sokka og hosur og fór so að klæðast að nýju. Ef belssuð vorsólin, heið og hlý, hefði ekki verið, mundi ég áreiðanlega hafa gengið á vit feðra mina af vosbúð og kulda og þá hefðu þessir þættir aldrei verið skrifaðir, og þar með hefði orðið stórt skarð fyrir skildi i islenzkum bókmenntum. Ég tók nú stöngina mina og fór að vinda linuna upp á hjólið. Þótt furðu- legt megi virðast kom hún greið inn á hjólið og ekki svo mikið sem marin á einum né öðrum stað. Tók ég nú veiðidótið mitt saman og hélt upp að kofa, breiddi þar úr vöðl- unum á móti sólu. Þar skyldu þær þorna á meðan ég skryppi heim. Ég tók laxinn minn og hélt af stað áleiðis aö bilnum minum. Heimferðin gekk vel. Laxinn var veginn og mældur og reyndist ekki þyngri en rúm fimm pund. — Konan min vó hann á eldhús- vogina sina. — Nei, góða min. Fimm punda lax verður ekk fullorðnum karlmanni þvi nær að bana. — Hann er nú lika rúm fimm pund, Kristján minn Karl, sagði hún svona dálitiö útundan sér. Það var einhver broddur i þessu, — rétt eins og það mætti lesa úr orðunum að stærri þyrfti nú laxinn ekki að vera til þess að ráða niðurlögum minum. Það skal aldrei spyrjast. Ég seildist i úlpuvasa minn, náði þar i þrjár eða fjórar blýsökkur, sem ég geymdi þar, og laumaði þeim upp i ginið á drjóla, svo að litið bar á. — Vigtaðu hann aftur góða, sagði ég svo ósköp bljúgur. —■ Hvað er þetta? Trúirðu mér ekki, maður? Hann er fimm pund og rúm- lega það. Þú verður að sætta þig við að geta ekki staðið af þér fimm punda lax. Hana nú, þarna fékkstu nú gusuna Kristján minn Karl. Þetta áttirðu skilið fyrir að ætla þér að leika á sjálfa konuna þina og reyndar óflekkaöa persónu sjálfs þins lika. — Æ, þú gerir það nú fyrir mig, góða min, að vigta laxinn aftur, bað ég undirgefinn og bljúgur. — Jæja, komdu þá meðhann, og það var enginn hlýleiki i röddinni, heldur vottaði fyrir þykkju vegna tortryggni minnar. — Hvað er þetta, hálfhrópaði konan min. — Mikil undraskepna er þetta. Heldur áfram að þyngjast þótt stein- dauður sé. Það er ekki um að villast, hann hefur þyngzt um pund siðan áðan. Þú gjörir svo vel og ferð burt með hann úr minum húsum, — og það á stundinni. Ég skal rétt láta þig vita, Kristján Karl, að ég kæri mig ekki um að láta hann sprengja húsið utan af okkur, en þaö gerir hann, ef hann heldur áfram að þyngjast svona. — Sex pund skal hann vera, sagði ég, og var dulin hreykni I röddinni. Það var miklu meiri fróun í því aö verða undir sex punda laxi en fimm. — Ég greip laxinn af eldhúsvoginni, laumaðist upp I giniö á honum og hirti sökkurnar minar og stakk þeim I vasa minn aftur. Þær voru búnar aö gera sitt gagn. Konan færði mér hrein og þurr föt að fara I. Þegar þeirri athöfn var lokiö, fór ég að brjóta heilann um það, aö ekki væri hollt fyrir mig að vera einn að veiðinni. Það sýndi hin napra reynsla mér um morguninn. Akvaö ég þvi að reyna að verða mér úti um ,,meöveiðimann”. Kom mér þá I hug Gunnar Júl. frændi minn. Þannig stóö á fyrir honum, aö það hefði veriö krukkað i tábergsvöðvunum á öörum fæti hans, svo að hann var haltur og hálf skakkur eins og ég. Þvi hæföi þaö vel, að við værum saman. Ég hringdi þvi i frænda minn. — Heyrðu frændi, hefurðu lyst, sagði ég formálalaust. — Já, auðvitað hef ég lyst. Hefuröu fengiðnokkuð?, sagði hann. Það þurfti ekki aö stafa það fyrir hann ~ Gunnar minn Júl. Hann er fljótur aö átta sig á hlutunum. — Einn fimm, — nei, sex punda, tók ég mig á undir eins. — Segi þér seinna 537 Sunnudagsblað Tímans

x

Tíminn Sunnudagsblað

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn Sunnudagsblað
https://timarit.is/publication/301

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.