Tíminn Sunnudagsblað - 30.06.1973, Blaðsíða 10

Tíminn Sunnudagsblað - 30.06.1973, Blaðsíða 10
frá þvi. Þú kemur þá eftir hádegið. A ég að taka þig? Ég sagði þetta siðasta með þeim hreim, að hann mátti skilja, að ég vildi það siður. — Nei, nei. Ég kem á Saabinum, þegar ég er tilbúinn. — Já þú kemur þá. Sagði ég hressi- legri og af sannfæringu. Ég var þess fullviss, að hann mundi koma. Ég þóttist heyra það á raddblænum. Ég ákvað nú að leggja mig, fram yfir hádegið. Ég lokaði augunum, og ævintýri morgunsins rann eins og á færibandi fyrir hugarsjónum minum. — Liklega hef ég blundað, þvi ég heyröi sjálfan mig hrópa út i stofu- kyrrðina: — Það er lax á færinu! — Það er lax á færinu! — Hvaða óskapa læti eru þetta? heyrði ég sagt rétt við höfðalagiö hjá mér. Ég staðhæfi að ég heyrði eitthvað detta og brotna. — Það er naumast að þú fékkst bröndu. Að þú skuiir geta fengiö af þér að láta si svona, fullorðinn maðurinn. Séröu nú bara hvað þú hefur gjört? Lézt mér bregöa svo við, að ég missti kristalskæra vatnskönnuna úr höndunum og hún fór i þáuund mola. Ég held að þú ættir nú að hætta þessari veiðidellu, og taka þér eitthvað ærlegra fyrir hendur. Þö ferð alveg á taugum á þessu, maður. Þetta var konan min. Hún hafði verið að vökva blómin og henni haföi brugðið svona við hrópið i mér. Afleiðingin varð sú, sem hér mátti sjá: Allt hornið i stofunni þakið glerbrot- um. — Hvað er þetta kona. Ég ræð ekki draumförum minum, sagði ég bljúgur og iðrunarfullur. Þegar ég hafði borðað hádegismatinn dreif ég mig af stað. Ég var i léttu skapi þrátt fyrir ófarir minar um morguninn, — nema þetta með könnuna. Það var nú meira óstandið. Ætli það hafi verið fyrirboði? Þvi gæti ég bezt trúað. Það fór um mig ónota- legur kuldahrollur við tilhugsunina Ef það hefur verið fyrirboði, þá er vist að ég fæ ekki bröndu það, sem eftir er dagsins. Það þyrmdi yfir mig. Það var eins og það drægi úr mér allan mátt og áhuginn dvinaöi. Ef áhuginn er ekki vakandi, er veiðivonin glötuð. — Grána min lallaði ósköp letilega fram veginn, upp með ósnum og skilaði mér fram i Vatnsnes eftir óra- tlma, fannst mér. Ég lagði bilnum og hélt svo af stað fram að kofa. Skelfing var ég ónógur sjálfum mér. — Vöðlurnar voru orðnar þurrar og þvi ekkert til fyrirstööu að láta þær skýla mér I vosbúðarsvalli árinnar. Ég fór þvi i þær og lallaði svo niður að sefinu. Jú, ekki bar á öðru, hann var þarna enn, lónaði út við strauminn og lét hann vagga sér til og frá svo að glitti i skjannahvitan kviðinn á honum. Þarna lyfti hann sér eftir flugu, lét sig siga i hylinn likt og selur i sæ. Ég náði i maðkaboxið mitt og beitti fjórum, silspikuðum möðkum. Mikið var þetta falleg beita. Ég þóttist þess fullviss, að ef ég væri lax, þá stæðist ég ekki þessa freistingu. Þetta er nú eitt- hvað annað e'n þessi mýfluguræksni, sem hann var að sækjast eftir rétt áðan. Nú hófst sami leikurinn og um morguninn, hann át alltaf beituna af, hvernig svo sem ég reyndi að tæla hann á krókinn. Það er ekki að orð- lengja það, að þarna var ég að reyna við kauða þangað til klukkan var að verða fimm. Þarna gafst ég upp enda orðinn kaffi þurfi. Ég lallaði út i móa og fór að drekka kaffið. Mig furðaði mest á þvk, að Gunnar minn Júl skyldi ekki vera kominn. Einhverjar ÞeI!gj ingar lutu að þvi hvort eitthvað he^ komiðfyrir hann. Það vantaði ekk*’ f hugsana-heimur minn málaði dók myndir um það hvernig ásigkomu frænda mins væri nú háttað. A'j&''1 j væri hann nú limlestur eða ja‘f) j dauður. Hver gat sagt um það? *•’ , hann ég. sitjandi hér fram i al ’ þambandi kaffi úr 2ja litra bru Ef frændi minn væri nú limlestur ^ jafnvel dauður, fannst mér endilega ég yrði að sýna minningu hans hverja hluttekningu frændseminn ^ — og það kom kökkur i hálsinn á h1^ rétt eins og ég ætlaði að fara að hryh músum, en auðvitað ætlaði ég aö 1J við kaffið mitt fyrst og gráta ^ minningu frænda mins ,Rétt i þvi a ^ var að ljúka við síðasta s°Pannn(ji geyminum, birtist Gunnar fr$ nr minn, lfkt og hann hefði sprottið upP jörðinni. jj^ — Ertu búinn að fiska mikið, segir hann. Hann hefur vist athugað vel ásjónuna á honum m° { bróður sinum, hann Gunnar Jd'- . n maðurinn ekki séð, hvað svipur m jjj var fýidur. Menn athuga ekki dv -r kringumstæðurnar vel, aður en P tala. Ónei. a — Fiskað. hu. Ekki kvikindi. nenjn þessa lækjarlontu, sem var nærr' ^ að drepa mig i morgun, og var völ þvi, að konan min mölbraut uppöna könnuna sina. ag Nú, og með þvi að ég var far'n.narn tala, þá gat ég alveg eins haldið á*r og áður en ég vissi af, var ég búinn j sleppa út úr mér allri frægðarsög um viðureignina um morguninn- uojlll Hann var góður áheyrandi, 1 Gunnar Júl. Akaflega er þaö Qg munandi, hvernig menn hlusta hvernig maður finnur hluttekniné -r sem streymir á milli þess, sem s .. frá og hins, sem hlustar. Góður h Sunnudagsblaö Tim3llS 538

x

Tíminn Sunnudagsblað

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn Sunnudagsblað
https://timarit.is/publication/301

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.