Morgunblaðið - 03.05.2004, Blaðsíða 4
FRÉTTIR
4 MÁNUDAGUR 3. MAÍ 2004 MORGUNBLAÐIÐ
Heimsferðir bjóða beint flug til Barcelona alla
fimmtudaga í sumar á hreint frábærum kjörum.
Þú getur valið um flugsæti eingöngu, flug og bíl
á frábærum kjörum eða eitt af okkar vinsælu
hótelum í
hjarta Barcelona. Bókaðu núna
og tryggðu þér bestu kjörin.
Skógarhlíð 18, sími 595 1000.
www.heimsferdir.is
Verð kr. 23.995
Flugsæti m.v. hjón með 2 börn, 2-11 ára,
m.v. 27. maí. Netverð.
Verð kr. 49.990
Vikuferð, flug og gisting með
morgunmat og sköttum, m.v. 2 í herbergi,
Zenit Borrell, 27. maí. Netverð.
Munið Mastercard
ferðaávísunina
· Flug
· Flug og bíll
· Flug og hótel
Síðustu sætin
Barcelona
27. maí
frá kr. 23.995
MAGN úrkomu á vetrum hefur
meira að segja um vatnabúskap
stórra jökla en hiti á sumrum. Þetta
er vegna þess að mest bráðnun á sér
stað þegar komið er niður á skít-
ugan snjó og ís, þar sem endurkasts-
stuðullinn er þá minni og meiri orka
fer inn í jökulinn. Þetta var meðal
þess sem fram kom í erindi sem
Helgi Björnsson jöklafræðingur hélt
á vorfundi Jöklarannsóknarfélags
Íslands í Norræna húsinu, en Helgi
hefur, ásamt fleiri vísindamönnum,
mælt „tekjur og útgjöld“ í vatnabú-
skap jökla í mörg ár.
Helgi sagði í erindinu frá helstu
aðferðum sem nú er beitt við rann-
sóknir á afkomu og veðri á Vatna-
jökli og þeim niðurstöðum sem þær
hafa leitt í ljós. Þá sagði hann einnig
frá veðurathugunum sem gerðar
hafa verið á jöklinum, en sjálfvirkar
veðurathugunarstöðvar safna gögn-
um um hitastig, vindhraða, raka,
geislun frá jökli, sólargeislun, leys-
ingu og fleira sem hefur áhrif á af-
komuna.
Mælingarnar fara þannig fram að
á vorin er metið það magn snjós sem
fallið hefur á jökulinn um veturinn
og að hausti er metið hversu mikið
hefur bráðnað um sumarið og runn-
ið burt sem leysingavatn. Að sögn
Helga hefur verið „tap á rekstri
Vatnajökuls“ síðan árið 1994. Árið
2001 féllu um 10,5 rúmkílómetrar af
vatni á hann, en 15,5 bráðnuðu af
honum. Þá virðist úrkoma vetrarins
sem leið hafa verið heldur léleg. Ár-
ið 1997 tapaði jökullinn afar miklu
vatni. „Það ár var úrkoma frekar lít-
il og náði bráðnunin því fljótt niður á
óhreinan snjó og ís frá því árið áð-
ur,“ sagði Helgi og bætti við að
öskulög úr eldgosum gætu einnig
aukið bráðnun töluvert, þar sem
askan minnkaði endurkastið frá
jöklunum umtalsvert.
Endurkast geislunar hefur mikil
áhrif á bráðnun jökla, en því minna
sem endurkastið er, því meiri orku
tekur jökullinn í sig. Hreinn snjór
kastar nær allri geislun til baka, en
því óhreinni sem hann verður, þeim
mun meiri bráðnunaráhrif verða, að
sögn Helga. „Endurkast geislunar
minnkar eftir því sem líður á sum-
arið, þar sem snjórinn bráðnar og
tekur jafnóðum í sig meiri og meiri
orku,“ sagði Helgi.
Erfitt er, að sögn Helga, að spá
fyrir um afkomu og veðurfar á jökl-
um með því að líta til veðurs utan
þeirra. „Lítil sem engin fylgni er
milli hitastigs á og af jökli,“ sagði
Helgi og bætti við að stórir jöklar
skapi sitt eigið veður og séu á vissan
hátt nokkuð óháðir því veðri sem
ríkir annars staðar, þar sem hitastig
þar fer aldrei upp fyrir frostmark.
Þannig kæla jöklarnir niður heitt
loft sem berst inn á þá af söndunum,
þar sem loftið hitnar og skila því
niður í svonefndum fallvindum.
Þetta einkennist af stöðugum vind-
um sem blása niður af jöklum.
Kröftugir sunnanvindar geta þó rót-
að upp í fallvindakerfinu að sögn
Helga.
Þannig er vindátt á mælinga-
stöðvum við jökulrendur gjarnan af-
ar stöðug.
„Það helsta sem þessar rann-
sóknir kenna okkur er hvernig á að
skilja hvernig þetta er núna svo við
getum skilið hvernig þetta þróast í
framtíðinni. Þetta gefur okkur viss
viðmið,“ segir Helgi. Þannig geta
menn búist við að með hlýnandi veð-
urfari á jörðinni styttist vetur og
endurkast jökulsins minnki auk þess
sem geislun frá andrúmslofti eykst
með auknum gróðurhúsaáhrifum, en
sú aukning kemur sem hrein viðbót
við hina stöðugu geislun sem sólin
veitir.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Talið er að Vatnajökull dragi nafn sitt af hinum fjölmörgu vötnum sem frá honum streyma.
„Tap á rekstri“ Vatna-
jökuls frá árinu 1994
Vetrarúrkoma hefur meira að segja um vatnabúskap
stórra jökla en hiti á sumrum, segir Helgi Björnsson
SNJÓFLÓÐAHÆTTUMAT fyrir Ólafsvík hefur verið
samþykkt hjá sveitarfélaginu og bíður staðfestingar um-
hverfisráðherra. Samkvæmt hættumatinu er lítill hluti
byggðarinnar á hættusvæðum en sú sérstaka staða er
samt uppi að heilsugæslustöðin er ein örfárra bygginga á
hættusvæði. Sérstaða málsins felst einnig í því að heilsu-
gæslan flokkast hvorki sem íbúðar- né atvinnuhúsnæði og
því er ekki hægt slá því föstu fyrirfram til hvaða ráða verði
gripið, þ.e. uppkaup sveitarfélagsins með stuðningi Of-
anflóðasjóðs, bygging snjóflóðavarna eða hvorugt.
Spurður um málið segir Smári Þorvaldsson, verkefna-
stjóri Ofanflóðasjóðs, að vangaveltur um hvað verði gert á
endanum skipti ekki máli á þessu stigi. Tekin verði afstaða
til málsins að lokinni frumathugun en henni sé ætlað að
draga fram í dagsljósið til hvaða aðgerða verði gripið.
Hætta undir Tvísteinahlíð
Húsnæði heilsugæslustöðvarinnar var byggt á sínum
tíma í svokallaðri Tvísteinahlíð, í 100 metra hæð yfir sjáv-
armáli. Að sögn Kristins Jónassonar bæjarstjóra hefur
einu sinni í bæjarstjóratíð hans þurft að loka stöðinni
vegna snjóflóðahættu og þá í tvær klukkustundir, en það
var árið 1998.
Kristinn segir ljóst að verja þurfi íbúðablokk í eigu bæj-
arins auk heilsugæslustöðvarinnar en báðar byggingarnar
eru undir Tvísteinahlíð. Þá þurfi að huga að nokkrum
gömlum fiskvinnsluhúsum utarlega í bænum, sem einnig
lenda inni á hættusvæði.
Snjóflóð féll á heilsugæslustöðina 20. mars 1995 og olli
skemmdum. Fór flóðið inn um glugga og lagði tæki og
búnað í rúst og fyllti herbergi í álmunni. Milliveggir
hrundu sem og klæðningar úr lofti. Árið 1984, þegar
heilsugæslan var í smíðum, féll flóð upp að byggingunni. Í
flóðinu 1995 skemmdist einnig bygging þáverandi steypu-
stöðvar. Þær ráðstafanir sem þegar hafa verið gerðar á
heilsugæslustöðinni felast í uppsetningu gluggahlera sem
þola jafnmikinn þrýsting og veggir. Að sögn Kristins er
talið nægjanlegt að setja upp stoðmannvirki í Tvísteina-
hlíð en slíkt bíður frekari ákvörðunar.
„Mér þykir það auðvitað mjög leiðinlegt að heilsugæsl-
an skuli vera á þessu svæði því hún er öryggistæki sem
þarf að vera tiltækt þegar eitthvað gerist, eins og snjó-
flóð,“ segir Kristinn. „Það væri ekki óhætt að flytja fólk
þangað ef eitthvað kæmi upp á. Þess vegna þurfum við að
bregðast við með því að verja hana.“
Sveitarfélög hafa 6 mánuði til að hefja vinnu við að-
gerðaáætlun eftir að staðfest hættumat liggur fyrir.
Óljóst hvernig verja á heilsu-
gæslustöð á hættusvæði
Morgunblaðið/Alfons
Snjóflóð féll á heilsugæslustöðina í Ólafsvík árið 1995.
Á SAMRÆMDUM prófum
haustið 2003 voru nemendur í 4.
og 7. bekk Nesskóla í Neskaup-
stað með hæstu meðaleinkunnina
í stærðfræði. Í íslensku voru
nemendur í 4. bekk Landakots-
skóla hæstir og nemendur í 7.
bekk Brautarholts- og Gnúp-
verjaskóla.
Námsmatsstofnun hefur breytt
framsetningu meðaltala grunn-
skóla á samræmdum prófum og
tekið upp svokallaðan normal-
dreifðan einkunnastiga á bilinu
0–60. Í upplýsingariti stofnunar-
innar segir að ekki sé hægt að
álykta um árangur skólanna út
frá meðaltölum einum og sér
heldur verði að taka tillit til ann-
arra þátta samhliða.
Sveiflur eftir árgöngum
Ólafur Hreggviður Sigurðsson,
skólastjóri Nesskóla í Neskaup-
stað, segist auðvitað vera stoltur
og ánægður með árangur sinna
nemenda. Þetta sé í annað sinn
sem 4. bekkur í hans skóla sé
hæstur. Árangur skólans í stærð-
fræðikennslu í yngri bekkjum sé
góður en erfiðara hafi verið að
fylgja þeim árangri eftir á ung-
lingastigi. Einnig séu sveiflur í
útkomunni eftir árgöngum.
Árið 1996 voru samræmd próf
fyrst lögð fyrir 4. og 7. bekk
grunnskólans en þá höfðu sam-
ræmd próf í 10. bekk viðgengist
lengi. Sigurgrímur Skúlason,
deildarstjóri hjá Námsmatsstofn-
un, segir að síðan 1999–2000 hafi
verið hægt að gera samanburð á
árangri einstakra nemenda fyrst
í 4. bekk og síðan í 7. bekk. Þann-
ig sé hægt að fylgjast með náms-
árangri hvers nemanda upp
skólastigið. Skýrslum um þetta
hafi verið skilað til hvers skóla
fyrir sig.
„Við höfum ekki tekið þetta
saman fyrir skólana í heild. Það
er gert í fyrsta skipti núna,“ seg-
ir Sigurgrímur. Hann segir að
þetta sé mikil framför. Árgangar
nemenda séu misjafnir – helstu
áhrifaþættir á námsárangur séu
námsgeta og áhugi á námi – og
með þessari aðferðafræði sé
komist fram hjá því. Þá sé betur
hægt að horfa á árangur hvers
skóla fyrir sig.
Sigurgrímur segir regluna
vera þá að góður árangur nem-
enda í yngri bekkjum haldist upp
skólastigið. „Þeir sem eru sterkir
í 4. og 7 bekk halda áfram að
vera tiltölulega sterkir. Það kem-
ur líka fram í nemendaeinkunn-
um.“
Spurður hvað hægt sé að læra
af svona niðurstöðum segir Sig-
urgrímur að taka verði snemma á
vandamálum sem upp koma. „Í
kringum 4. bekk virðist koma í
ljós hverjir eigi í erfiðleikum.
Fjórða bekkjar prófið ætti að
vera mikilvægt til að staðfesta
grun, sé hann fyrir hendi. Þetta
er sterkasta mælingin á getu
nemendanna.“
Fylgst með árangri árganga
Ólafur Hreggviður Sigurðsson
segir að svona samanburður geri
skólum kleift að fylgjast með ár-
angri barna upp skólastigið.
Þetta sé ágæt aðferð til að meta
skólastarfið innan skólans en
ekki sérstaklega gert til að bera
skóla saman. Það sé ekki endi-
lega sanngjarnt.
Spurður um ástæður fyrir góð-
um árangri segist Ólafur leggja
áherslu á að hafa kennaramennt-
að starfsfólk í yngri bekkjunum.
Ekki séu viðhafðar aðrar aðferðir
við stærðfræðikennslu í Nesskóla
en annars staðar.
Samræmd próf í yngri bekkjum
gefa mikilvægar vísbendingar
Yngri nemendur
í Nesskóla hæst-
ir í stærðfræði