Morgunblaðið - 03.05.2004, Blaðsíða 10
FRÉTTIR
10 MÁNUDAGUR 3. MAÍ 2004 MORGUNBLAÐIÐ
…með allt á einum stað
ÍS
LE
N
SK
A
A
U
G
L
SI
N
G
A
ST
O
FA
N
/S
IA
.I
S
K
RI
2
39
07
04
/2
00
4
UM þrjú þúsund manns tóku þátt
í kröfugöngu og útifundi í
Reykjavík hinn 1. maí, á bar-
áttudegi verkalýðshreyfing-
arinnar, samkvæmt upplýsingum
lögreglunnar í Reykjavík.
Kröfugangan hófst á Skóla-
vörðuholtinu, rétt eftir hádegi,
og var gengið niður Njarðargötu,
Sóleyjargötu, Fríkirkjuveg, vest-
ur Vonarstræti, norður Suð-
urgötu og Aðalstræti inn á Ing-
ólfstorg. Lúðrasveit verkalýðsins
og Lúðrasveitin Svanur fóru fyrir
göngunni.
Samkvæmt upplýsingum Morg-
unblaðsins fóru þó einhverjir á
mis við gönguna, því margir
töldu að gengið yrði niður Skóla-
vörðustíginn, í stað Njarðargöt-
unnar.
Eftir gönguna fór fram úti-
fundur á Ingólfstorgi, þar sem
Finnbjörn A. Hermansson, for-
maður Samiðnar, og Halldóra
Friðjónsdóttir, formaður BHM,
fluttu m.a. ræður.
Morgunblaðið/Júlíus
Þrjú
þúsund
manns í
kröfugöngu
ÖGMUNDUR Jónasson, formaður
BSRB, Bandalags starfsmanna ríkis
og bæja, sagði í ræðu sem hann flutti
á Höfn í Hornafirði í tilefni af 1. maí,
baráttudegi verkalýðshreyfingarinn-
ar, að ríkisstjórnin hefði sýnt með
verkum sínum að hún hugsaði meira
um hag fjármálamanna en almenn-
ings. Bæði Ögmundur og Halldóra
Friðjónsdóttir, formaður Bandalags
háskólamanna, BHM, gagnrýndu
frumvarp um réttindi og skyldur op-
inberra starfsmanna, sem lagt hefur
verið fram á Alþingi.
Ögmundur Jónasson hvatti til sam-
stöðu innan verkalýðshreyfingarinn-
ar og varðstöðu um hag öryrkja og at-
vinnulausra. „Við skulum standa vörð
um húsnæðiskerfið, menntakerfið og
heilbrigðisþjónustuna,“ sagði Ög-
mundur. „Við skulum aldrei sofna á
verðinum gagnvart öryrkjanum, hin-
um atvinnulausa og öllum þeim sem
búa við bág kjör. Ríkisstjórnin slær
sér á brjóst og segist hafa bætt kjör
atvinnulausra. Ráðherrar verða
meira að segja reiðir þegar sagt er að
ekki sé nóg að gert, sömu menn og
ætluðu að skerða kjör atvinnulausra
fyrir aðeins fáeinum mánuðum.
Þeirri árás var hrundið með samein-
uðu átaki verkalýðshreyfingar og fé-
lagslega sinnaðs fólks á Alþingi.“
Ögmundur sagði að það væri hægt
að hrinda árásum á kjörin og snúa
vörn í sókn. „Það er hægt að hefja að
nýju að húni baráttufána fyrir fé-
lagslegum jöfnuði, þar sem sú regla
er við lýði, að sá fær aðhlynningu sem
er hjálpar þurfi án þess að hafa
tryggingakort upp á vasann. Þér er
hjálpað vegna þess að þú ert veikur,
en ekki vegna þess að þú ert með
tryggingakort. Þannig hugsar ís-
lenska verkalýðshreyfingin og þann-
ig hugsar verkalýðshreyfing allra
landa.“
Ögmundur gerði frumvarp fjár-
málaráðherra, Geirs H. Haarde, um
breytingu á lögum um réttindi og
skyldur starfsmanna ríkisins, einnig
að umtalsefni. Frumvarpið, sem er til
meðferðar á Alþingi, kveður m.a. á
um að felld verði niður sú skylda að
áminna starfsmann formlega vegna
brots í starfi. Ögmundur sagði að með
samþykkt frumvarpsins væri verið að
veita stjórnendum rétt til að reka fólk
úr starfi án skýringa. „Halda menn
að þetta verði ekki fínt á fréttastofu
Ríkisútvarpsins, til dæmis ef menn
verða með óþægilegar fréttir? Eða
hjá ríkislögreglustjóra, þar verður
hægur vandinn að reka menn, sem
eru gefnir fyrir óþægilegar rann-
sóknir. Þá má fýra fyrirvaralaust og
án skýringa, það er að segja, ef rík-
isstjórnin fær sínu framgengt með
makalausu lagafrumvarpi sínu.“
Ekkert samráð við samtök
opinberra starfsmanna
Halldóra Friðjónsdóttir, formaður
BHM, gagnrýndi sama frumvarp í
ræðu sem hún flutti á útifundi á Ing-
ólfstorgi hinn 1. maí. Sagði hún að
frumvarpið hefði verið lagt fram án
nokkurs samráðs við samtök opin-
berra starfsmanna.
„Í rökstuðningi með frumvarpinu
er sagt að með því sé verið að auka
sveigjanleika og færa opinbera mark-
aðinn nær þeim almenna. Öll samtök
opinberra starfsmanna hafa lýst sig
andvíg þessari breytingu enda er
nægt svigrúm til uppsagna í lögunum
eins og þau eru,“ sagði hún.
Halldóra gerði fæðingarorlofslögin
og launamun kynjanna einnig að um-
talsefni. Um fæðingarorlofslögin
sagði hún að þau hefðu verið stórt
skref í átt til jafnréttis. Hún átaldi
hins vegar þau áform ríkisstjórnar-
innar að setja þak á greiðslur úr
sjóðnum. „Ef okkur þykir forsvaran-
legt og siðferðilega rétt að greiða
ákveðnum einstaklingum há laun þá
verðum við einfaldlega að sætta okk-
ur við að greiðslur úr sjóðum eins og
fæðingarorlofssjóði séu í samræmi
við það. Raunverulegu jafnrétti verð-
ur ekki náð fyrr en foreldrar deila
ábyrgð á heimili og barnauppeldi og
það eitt og sér er besta tryggingin
fyrir jafnri stöðu kynjanna á vinnu-
markaði.“
Kvennastörfin ekki metin
til jafns við karlastörfin
Um launamun kynjanna sagði
Halldóra að það væri vandamál, sem
alltof hægt gengi að útrýma. „Launa-
munurinn er enn til staðar og er ekki
síst fólginn í því að kynin velja sér
ólíkan náms- og starfsvettvang. Störf
sem konur velja sér eru ekki metin til
jafns við karlastörfin og ábyrgð á
barnauppeldinu er enn að mestu á
herðum kvenna þótt atvinnuþátttaka
þeirra sé meiri hér en víðast annars
staðar. Þess vegna er auðveldara fyr-
ir karlana að vinna lengri vinnudag
auk þess sem okkur gengur illa að
losna við þann gamla þankagang að
það sé karlinn sem er fyrirvinnan og
trúlega er það ein helsta ástæða þess
að karlar fá mun frekar alls kyns
aukagreiðslur og hlunnindi eins og
allar launakannanir síðustu ára stað-
festa. Það er enginn kynjamismunun
í kjarasamningum og verkalýðs-
hreyfingin reynir til hins ítrasta að
koma í veg fyrir að launafólki sé mis-
munað á grundvelli kynferðis. Þess
vegna er afar mikilvægt að launakerfi
séu gagnsæ og aðgengi stéttarfélaga
að upplýsingum um kjör félags-
manna sinna er ekki síður mikil-
vægt.“
Formenn BSRB og BHM í ræðum á baráttudegi verkalýðsins
Gagnrýndu starfs-
mannafrumvarp
Halldóra
Friðjónsdóttir
Ögmundur
Jónasson