Morgunblaðið - 03.05.2004, Blaðsíða 12
Búðardalur | Stærsta bú í Dölum, Lyngbrekka á
Fellsströnd, var með opið hús nýlega í tilefni af
því að miklar breytingar hafa verið gerðar á fjós-
inu en því hefur verið breytt í lausagöngufjós
með mjaltabás. Á bænum búa hjónin Sigurður
Björgvin Hansson og Bára Sigurðardóttir og
stunda búskap ásamt syni sínum, Kristjáni, sem
er í búfræðinámi á Hvanneyri.
Þau hófu búskap á Lyngbrekku árið 1976 og
eru nú á búinu 550 fjár og 50 mjólkandi kýr, sem
gerir Lyngbrekkubúið að stærsta innleggjanda í
Mjólkursamlagið í Búðardal. Fjósið er allt hið
glæsilegasta, með fullkomnum mjaltabás og sjálf-
gjafarkerfi, bæði fyrir hey og kjarnfóður. Fjósið
er tölvuvætt og er hægt að lesa upplýsingar um
gripina, bæði hvað þeir eta og nyt þeirra, í tölvu.
Innréttingar, Weelink-fóðurkerfi og búnaður
er frá Landstólpa ehf., súrkornabás og ISO-
loftræstimænir er frá Vélavali í Varmahlíð, SAC-
mjaltabás 2x5 og tveir tölvustýrðir kjarnfóður-
básar eru frá Remfló.
Sáu þeir feðgar að mestu leyti um að setja inn-
réttingarnar upp sjálfir. Mjólkurkvótinn er 260
þús. lítrar og styrkir þetta bú stöðu Dalanna í
mjólkurframleiðslu og býður aðstaðan upp á enn
meiri stækkun. Framkvæmdin við fjósið hófst í
febrúar í fyrra og kostaði alls um 17 miljónir, og
breyttist meðal annars hlutverk hlöðu sem var
byggð á bænum1979 og er hún nú hluti af fjós-
inu.
Þau hjónin segja þessar framkvæmdir lið í að
bregðast við vaxandi samkeppni á mjólkurmark-
aði og vona að mjólkursamningarnir verði bænd-
um hagstæðir. Á sumrin rækta þau korn á u.þ.b.
15 hekturum lands og hafa þau keypt korn-
þreskivél til kornskurðar fyrir sig og aðra korn-
bændur í sveitinni.
Ekki er þetta það eina sem þau hafa fyrir
stafni, heldur á Bára fullkomið söðlasmíðaverk-
stæði og framleiðir vörur undir merkinu Flugu-
reiðtygi, sem eru bæði hnakkar, beisli og annað
sem viðkemur hestamennsku. Einnig smíðar hún
glímubelti, hundaólar o.fl. Þá er hún með umboð
fyrir Vélar & þjónustu sem selja rúlluplast, garn,
rúllunet, sáðvörur og ýmsar rekstrarvörur fyrir
bændur.
Þrír nýbornir kálfar, sem komu í heiminn
þennan dag, glöddu augu gestanna. Sá er síðast
fæddist er hundraðasti nautgripurinn á bænum.
Ljósmynd/Helga H. Ágústsdóttir
Í fjósinu: Bára Sigurðardóttir, Sigurður Björgvin
Hansson og Kristján sonur þeirra í mjaltabásnum.
Lausagöngufjós á stærsta búi í Dölum
Fjölgun: 100. gripurinn nýkominn í heiminn.
Akranes | „Eftir tíu ár ætla ég að vera fram-
kvæmdastjóri á einhverjum virtum og stórum
golfvelli,“ segir Bjarni Hannesson en hann
heldur til Bandaríkjanna á næstu dögum þar
sem hann mun dvelja í ár við nám og störf í
golfvallafræðum. Bjarni, sem varð nýlega 23
ára gamall, hefur undanfarin þrjú ár stundað
nám í golfvallafræðum við Elmwood-háskólann
í skoska bænum Cupar, og hefur nú gert samn-
ing um að dvelja vestanhafs í ár til þess að
fræðast enn frekar um golfvelli og umhirðu
þeirra. Bjarni er fæddur og uppalinn á Akra-
nesi og hefur undanfarin 9 sumur unnið á golf-
velli Leynismanna á Garðavelli en faðir hans
Hannes Þorsteinsson, líffræðingur og golf-
vallahönnuður, er hugmyndasmiðurinn á bak
við skipulag Garðavallar.
„Þessi þrjú ár í Skotlandi hafa verið ótrúlega
fljót að líða. Ég bjó í bænum St. Andrews þar
sem allt snýst um golfið og naut þeirra forrétt-
inda sem íbúi bæjarins að fá að leika á völl-
unum sem eru í eigu St. Andrews. Vellirnir eru
í eigu bæjarins og þeir sem vilja geta keypt sér
árskort á rúmar 13 þúsund kr. og til sam-
anburðar greiða gestir um 13.000 kr. fyrir að
leika einn hring á gamla vellinum á St. Andr-
ews. Ég notaði því tækifærið vel og náði rúm-
lega 30 hringjum á gamla vellinum, enda er
ekki hægt að láta slíkt tækifæri fram hjá sér
fara,“ segir Bjarni en hann er með 5 í forgjöf og
byrjaði snemma að leika golf.
„Annað var ekki hægt, mamma og pabbi eru
á kafi í golfinu, afi minn og amma á Akranesi
eru í hópi stofnenda Leynis, og þetta er því
fjölskylduíþróttin hjá okkur,“ segir Bjarni en
móðir hans og eiginkona Hannesar er Þórdís
Artursdóttir, en Þorsteinn Þorvaldsson og Elín
Hannesdóttir, foreldrar Hannesar, voru í hópi
þeirra sem stofnuðu Leyni.
Bjarni segir að hann hafi hug á því að nota
menntun sína til þess að skoða heiminn og
kynnast ólíkum vinnubrögðum við mismunandi
aðstæður. „Ég byrja að vinna á velli rétt utan
við Boston, en völlurinn er í einkaeigu og að-
eins meðlimir Nashawtuc-klúbbsins mega
leika á þeim velli. Í haust mun ég fara suður á
bóginn í Bandaríkjunum og fer þá á heitara
svæði, Flórída eða Texas, en það er ekki komið
á hreint hvar ég enda.
Það er gríðarlegur munur á vinnubrögðum á
golfvöllum, og það er markmiðið hjá mér að
nýta tækifærið vel, til þess að kynnast ólíkum
vinnubrögðum og áherslum. Vonandi tekst
mér að landa góðu starfi á þessu sviði í framtíð-
inni en á meðan ég er ungur og ólofaður get ég
leyft mér að ferðast um heiminn og vinna við
það sem mér finnst skemmtilegast. Og það
hjálpar einnig að geta leikið golf af og til við
bestu aðstæður.“
Að mati Bjarna hafa íslenskir golfvellir tekið
gríðarlegum framförum á undanförnum áratug
og þeir bestu á Íslandi gefa völlum á Bret-
landseyjum ekkert eftir í gæðum. „Það er
óraunhæft að bera saman bestu velli heims og
velli á Íslandi. Peningar skipta öllu máli í gæð-
um valla, því meira fjármagn því betri vellir.
En ég fullyrði að margir vellir í Skotlandi eru
svipaðir að gæðum og bestu íslensku vellirnir.
Enda hafa þeir sem sjá um vellina á Íslandi
menntað sig í golfvallafræðum og náð tökum á
þeim vandamálum sem glíma þarf við á hér á
landi.“
Bjarni er ekki alltaf með hugann við grasið
græna enda er hann meðlimur í hljómsveitinni
worm is green, en sú hljómsveit er á samningi
hjá útgáfufyrirtækinu Thule á Íslandi og síð-
asta afurð sveitarinnar kemur út í Bandaríkj-
unum 8. júní. „Ég verð að setja hljómsveitina á
ís næsta árið, en ég á svo mikið af tækjunum
sem við notum að mér verður ekki sparkað
formlega á næstunni. Ef vel gengur mun
hljómsveitin leika í Bandaríkjunum á næstu
misserum og ég fæ kannski að vera með á ný,“
segir Bjarni en hann titlar sig sem alheims-
reddara í hljómsveitinni, sér um tölvuforritun
og annað sem fylgir bandi sem leikur raftónlist.
Morgunblaðið/Sigurður Elvar
Golf er fjölskylduíþrótt hjá Bjarna Hannes-
syni og hans fólki og nú stefnir hann á frek-
ara nám í golfvallafræðum.
Lífið snýst að mestu um golf hjá Skagamanninum Bjarna Hannessyni
Miklar framfarir undanfarin
ár á íslenskum golfvöllum
MINNSTAÐUR | VESTURLAND
12 MÁNUDAGUR 3. MAÍ 2004 MORGUNBLAÐIÐ
…með allt á einum stað
ÍS
LE
N
SK
A
A
U
G
L
SI
N
G
A
ST
O
FA
N
/S
IA
.I
S
K
RI
2
39
07
04
/2
00
4
Kokkabókastatíf
Verð 3.990 kr.
Klapparstíg 44
Sími 562 3614
Litir: Svart, blátt,
grænt, grátt
Nýtt! drapplitur