Morgunblaðið - 03.05.2004, Side 33
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 3. MAÍ 2004 33
DAGBÓK
STJÖRNUSPÁ
Frances Drake
NAUT
Afmælisbörn dagsins:
Þú ert heillandi, skilnings-
rík/ur og sannfærandi og átt
því auðvelt með að kenna
öðrum. Gerðu ráð fyrir mikl-
um og spennandi breyt-
ingum í lífi þínu á næsta ári.
Hrútur
(21. mars - 19. apríl)
Það fer loks að sjá fyrir endann
á þeim töfum sem hafa ein-
kennt síðasta mánuðinn hjá
þér. Þú ættir því að njóta meiri
velgengni á næstunni.
Naut
(20. apríl - 20. maí)
Að undanförnu hefur þér fund-
ist þú þurfa að taka eitt skref
aftur á bak fyrir hver tvö skref
sem þú hefur tekið fram á við.
Nú ætti þessu loks að vera lok-
ið þannig að þú getur horft með
bjartsýni til framtíðar.
Tvíburar
(21. maí - 20. júní)
Merkúr hefur mikil áhrif á þig
og því hefur erfið afstaða hans
við stjörnurnar þínar haldið
aftur af þér að undanförnu. Nú
ættu hlutirnir hins vegar að
fara að komast í eðlilegt horf.
Krabbi
(21. júní - 22. júlí)
Þú gætir fengið samþykki yf-
irmanns þíns fyrir áformum
sem þú hefur lengi haft í bak-
höndinni. Hlutirnir ættu að
ganga auðveldlega fyrir sig á
næstunni.
Ljón
(23. júlí - 22. ágúst)
Það er kominn tími til að þú
skoðir möguleika þína á fram-
haldsnámi af meiri alvöru.
Meyja
(23. ágúst - 22. sept.)
Þar sem það er búið að ganga
frá lausum endum varðandi
sameiginlegar eignir hefurðu
betri tilfinningu fyrir því hvar
þú stendur. Það er því kominn
tími til að horfa fram á veginn.
Vog
(23. sept. - 22. okt.)
Margar vogir hafa þurft að
takast á við fyrrverandi maka
sína að undanförnu en nú ættu
þau samskipti að vera að baki.
Gerðu eitthvað skemmtilegt.
Þú átt það svo sannarlega skil-
ið.
Sporðdreki
(23. okt. - 21. nóv.)
Tafir og truflanir í vinnunni
hafa haldið aftur af þér að und-
anförnu. Nú ættu hlutirnir hins
vegar að fara að ganga eðlilega
fyrir sig þannig að þú getur
horft bjartsýn/n fram á veginn.
Bogmaður
(22. nóv. - 21. des.)
Maka þínum og nánum vinum
finnst þú leggja of mikla
áherslu á vinnuna þessa dag-
ana. Reyndu að sýna þeim þol-
inmæði.
Steingeit
(22. des. - 19. janúar)
Láttu verða af því að gera
breytingar á heimilinu. Það
mun veita þér ánægju að kaupa
eitthvað til heimilisins.
Vatnsberi
(20. jan. - 18. febr.)
Misskilningur og tafir hafa sett
svip sinn á líf þitt að und-
anförnu. Nú ættu hlutirnir hins
vegar að fara að komast á
skrið.
Fiskar
(19. feb. - 20. mars)
Tilraunir þínar til að fá aðra
vinnu hafa ekki borið mikinn
árangur að undanförnu. Nú
ættu atvinnumöguleikar þínir
hins vegar að fara að glæðast.
Stjörnuspána á að lesa sem
dægradvöl. Spár af þessu tagi
eru ekki byggðar á traustum
grunni vísindalegra staðreynda.
KVÆÐI
Ei glóir æ á grænum lauki
sú gullna dögg um morgunstund,
né hneggjar loft af hrossagauki,
né hlær við sjór og brosir grund.
Guð það hentast heimi fann
það hið blíða
blanda stríðu.
Allt er gott, sem gjörði hann.
Ei heldur él frá jökultindi,
sér jafnan eys á klakað strá,
né nötrar loft af norðanvindi,
sem nístir jörð og djúpan sjá.
Guð það hentast heimi fann
það hið stríða
blanda blíðu.
Allt er gott, sem gjörði hann.
- - -
Sveinbjörn Egilsson
LJÓÐABROT
90 ÁRA afmæli. Í dag,mánudaginn 3. maí,
er níræð Anna Steindórs-
dóttir Haarde, Aflagranda
40. Hún er að heiman á af-
mælisdaginn.
NS vinna gott verk í sögn-
um með því að komast í
fimm lauf. En þótt samning-
urinn sé góður, er hann alls
ekki borðleggjandi.
Suður gefur; allir á hættu.
Norður
♠7643
♥Á85
♦Á62
♣G104
Vestur Austur
♠ÁD9 ♠KG852
♥DG96 ♥1073
♦G743 ♦108
♣52 ♣963
Suður
♠10
♥K42
♦KD95
♣ÁKD87
Vestur Norður Austur Suður
-- -- -- 1 lauf
Pass 1 grand Pass 2 tíglar
Pass 2 hjörtu Pass 3 lauf
Pass 5 lauf Allir pass
Norður metur spilin vel
þegar hann þegir fyrst yfir
fjórlitnum í spaða (ef lit skal
kalla) og segir svo tvö hjörtu
við vendingu makkers til að
sýna grandfyrirstöðu.
En hugum að úrspilinu.
Það veltur á vörninni hvern-
ig best er að spila fimm lauf.
Skoðum fyrst þann mögu-
leika að vestur leggi niður
spaðaás og haldi áfram með
spaða í öðrum slag. Í því til-
felli er best að spila upp á öf-
ugan blindan: Suður tromp-
ar spaðann, tekur laufás og
spilar laufi á gosa. Þegar 3-2
legan sýnir sig, heldur sagn-
hafi sínu striki – trompar
spaða hátt, fer inn í borð á
rauðan ás og stingur fjórða
spaðann með síðasta tromp-
inu heima. Fer loks inn á
blindan á hinn rauða ásinn
til að aftrompa austur (og
hendir tígli heima).
Þessi leið byggist á því að
vörnin hjálpi til með spað-
astungurnar. En segjum nú
að vestur byrji á hjarta-
drottningu. Þá vantar inn-
komu í borð til að spila upp
á öfugan blindan. Í því til-
felli tekur sagnhafi tvisvar
tromp, spilar svo tígulkóng,
tígli á ásinn og tígli að D9
heima. Ef austur stingur
með síðasta laufinu verður
hægt að henda hjarta í tígul-
drottningu og trompa hjarta
í borði. Og ef austur hendir í
tígulinn, tekur suður á
drottninguna og stingur tíg-
ul.
Síðari leiðin er auðvitað
ekki eins örugg og sú fyrri,
því spilið tapast ef vestur á
tvo tígla og þrjú lauf.
BRIDS
Guðmundur Páll Arnarson
1. e4 e5 2. Rf3 Rc6 3. Bb5
Rf6 4. O-O Rxe4 5. d4 Rd6 6.
Bxc6 dxc6 7. dxe5 Rf5 8.
Dxd8+ Kxd8 9. Rc3 Bd7 10.
b3 Kc8 11. Bb2 a5 12. h3 h5
13. a4 Be7 14. Hfd1 Hd8 15.
Ba3 Bb4 16. Re4 b6 17.
Bxb4 axb4 18. Reg5 Be8 19.
Hxd8+ Kxd8 20. Hd1+ Ke7
21. g4 hxg4 22. hxg4 Rh6 23.
Rh2 Bd7 24. f3 Ha5 25. He1
Hc5 26. He2 Bc8 27.
Re4 Hxe5 28. f4 Ha5
29. c3 bxc3 30.
Rxc3+ Kf8 31. b4
Ha8 32. f5 Bb7 33.
Hd2 Rg8 34. g5 Re7
35. Hd7 Rxf5 36.
Hxc7 Hb8 37. Rg4
Re7 38. Re5 Bc8
Staðan kom upp í
rússnesku deilda-
keppninni sem lauk
fyrir skömmu. Andr-
ei Volokitin (2600)
hafði hvítt gegn
Alexsej Alexandrov
(2668). 39. Hxe7!
Kxe7 40. Rxc6+ Kd6 41.
Rxb8 Kc7 42. Rd5+ Kxb8
43. Rxb6 hvítur hefur nú tvö
samstæð frípeð sem svartur
ræður ekkert við. 43...Be6
44. a5 Kb7 45. b5 f6 46. Ra4
Kc7 47. b6+ Kb8 48. Rc5
Bf5 49. a6 og svartur gafst
upp. Atkvöld Taflfélagsins
Hellis hefst kl. 20.00 í kvöld
í félagsheimlinu Álfabakka
14a. Öllum er velkomið að
taka þátt og freista þess að
fá ljúffeng verðlaun frá
Dominos!
SKÁK
Helgi Áss
Grétarsson
Hvítur á leik.
KISTLABOMBA • 50% AFSLÁTTUR
Laugavegi 20b • Sími 552 2515 • OPIÐ kl. 11-18 og Auðbrekku 1 • Sími 544 4480 • OPIÐ kl. 13-18.
Verðsprengja á kistlum í maímánuði,
takmarkað magn.
Verð áður frá
kr. 5.900
Verð m/afslætti
nú frá kr. 2.950
H
rin
gb
ro
t
ÁRNAÐ HEILLA
HLUTAVELTA
Morgunblaðið/Kristján
Þessi myndarlegi hópur hélt nýlega hlutaveltu á Akureyri
til styrktar Rauða krossi Íslands og söfnuðust 4.155 krón-
ur. Þau heita, f.v., Sylvía Björk Birgisdóttir, Guðrún Vaka
Þorvaldsdóttir, Skarphéðinn Freyr Þorvaldsson, Silja
Dögg Birgisdóttir, Hafsteinn Gauti Ágústsson og fremst er
Harpa Lísa Þorvaldsdóttir.
MORGUNBLAÐIÐ birtir til-
kynningar um afmæli, brúð-
kaup, ættarmót og fleira les-
endum sínum að kostnaðar-
lausu. Samþykki afmælis-
barns þarf að fylgja afmælis-
tilkynningum og/eða nafn
ábyrgðarmanns og síma-
númer. Fólk getur hringt í
síma 569-1100, sent í bréfsíma
569-1329, eða sent á netfangið
ritstj @mbl.is. Einnig er hægt
að skrifa:
Árnað heilla,
Morgunblaðinu,
Kringlunni 1,
103 Reykjavík
KIRKJUSTARF/ÞJÓNUSTA
Áskirkja. Hreyfi- og bænastund kl. 12 í
neðri safnaðarsal.
Hallgrímskirkja. Æskulýðsfélagið Örk kl.
20.
Laugarneskirkja. Opinn 12 sporafundur
kl. 18 í safnaðarheimilinu. Allt fólk velkom-
ið. Vinir í bata.
Neskirkja. 6 ára starf kl. 13.30. Sögur,
söngur, leikir og föndur. TTT-starf kl.
16.30. Starf fyrir 10–12 ára börn. Leikir,
ferðir o.fl.
Árbæjarkirkja. Mánudagar: Kl. 15 STN-
starf með sjö til níu ára börnum í safn-
aðarheimili kirkjunnar.
Fella- og Hólakirkja. Stúlknastarf fyrir 11–
12 ára kl. 16.30. Æskulýðsstarf fyrir ung-
linga í 8., 9. og 10. bekk kl. 20–22. Um-
sjón Stefán Már Gunnlaugsson.
Grafarvogskirkja. KFUK fyrir stúlkur á aldr-
inum 9–12 ára kl. 17.30–18.30. Kirkju-
krakkar í Engjaskóla kl. 17.30–18.30 fyrir
7–9 ára. TTT (10–12 ára) í Engjaskóla kl.
18.30–19.30.
Seljakirkja. KFUK 9–12 ára kl. 17.30.
Fríkirkjan í Hafnarfirði. Opið hús fyrir 16
ára og eldri kl. 20–22.
Ástjarnarsókn. Ponzý (unglingastarf ætl-
að árg. 1990 og upp úr) á mánudögum kl.
20–22.
Lágafellskirkja. Barnastarf kirkjunnar,
Kirkjukrakkar, er í Varmárskóla. Bæna-
stund kl. 19.45. Al-anon fundur kl. 21.
Landakirkja í Vestmannaeyjum. Kl. 17.30
Æskulýðsstarf fatlaðra, eldri hópur. Helgi-
stund og gott samfélag. Hulda Líney
Magnúsdóttir æskulýðsfulltrúi og sr. Þor-
valdur Víðisson.
Þorlákskirkja. Biblíufræðsla kl. 20.
Borgarneskirkja. TTT-starf kl. 15.30–
16.30.
Hjálpræðisherinn á Akureyri. Kl. 15 heim-
ilasamband. Allar konur velkomnar. Majór
Anne Marie Reinholdtsen talar.
Safnaðarstarf
Morgunblaðið/SverrirGufudalskirkja
LANDSPÍTALI – HÁSKÓLASJÚKRA-
HÚS
SLYSA- OG BRÁÐADEILD, Fossvogi sími 543 2000.
BRÁÐAMÓTTAKA, Hringbraut sími 543 2050.
BRÁÐAMÓTTAKA BARNA, Barnaspítala Hringsins sími
543 1000.
BRÁÐAMÓTTAKA GEÐDEILDA, Hringbraut sími
543 4050.
NEYÐARMÓTTAKA v/nauðgunarmála, Fossvogi sími
543 2085.
EITRUNARMIÐSTÖÐ sími 543 2222.
ÁFALLAHJÁLP sími 543 2085.
LÆKNAVAKTIR
BARNALÆKNIR er til viðtals á stofu í Domus Medica á
kvöldin v.d. kl. 17–22, lau., sun. og helgid., kl. 11–15.
Upplýsingar í s. 563 1010.
LÆKNAVAKT miðsvæðis fyrir heilsugæsluumdæmin í
Reykjavík, Seltjarnarnesi, Kópavogi, Garðabæ og Hafn-
arfirði, í Smáratorgi 1, Kópavogi. Mótttaka kl. 17–23.30
v.d. og kl. 9–23.30 um helgar og frídaga. Vitjanabeiðni og
símaráðgjöf kl. 17–08 v.d. og allan sólarhringinn um
helgar og frídaga. Nánari upplýsingar í s. 1770.
TANNLÆKNAVAKT – neyðarvakt um helgar og stórhá-
tíðir. Símsvari 575 0505.
APÓTEK
LYF & HEILSA: Austurveri við Háaleitisbraut. Opið kl. 8–
24, virka daga, kl. 10-24 um helgar. Sími 581 2101.
LYFJA, Lágmúla: Opið alla daga ársins kl. 8–24. S.
533 2300.
LYFJA, Smáratorgi: Opið alla daga ársins kl. 8–24. Sími
564 5600.
NEYÐARÞJÓNUSTA
BAKVAKT Barnaverndarnefndar Reykjavíkur er starf-
rækt eftir kl. 16.15 virka daga, allan sólarhringinn aðra
daga. Sími 892 7821, símboði 845 4493.
HJÁLPARSÍMI Rauða krossins, fyrir þá sem þjást af dep-
urð og kvíða og eru með sjálfsvígshugsanir. Fullum
trúnaði heitið. Gjaldfrjálst númer: 1717, úr öllum símum.
VINALÍNA Rauða krossins, s. 561 6464. Grænt númer
800 6464, er ætluð fólki 20 og eldri sem þarf einhvern til
að tala við. Svarað kl. 20–23.
BILANAVAKT BORGARSTOFNANA, sími 5 800 430 tek-
ur við tilkynningum um bilanir og liðsinnir utan skrif-
stofutíma.
NEYÐARSÍMI FORELDRA 581 1799 er opinn allan sólar-
hringinn. Vímulaus æska- Foreldrahús.
KVENNAATHVARF: Athvarf og viðtalsþjónusta fyrir
konur sem beittar hafa verið ofbeldi í heimahúsum eða
orðið fyrir nauðgun. Opið allan sólarhringinn, 561 1205.
Neyðarnúmer fyrir allt landið - 112