Morgunblaðið - 06.05.2004, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 06.05.2004, Blaðsíða 2
FRÉTTIR 2 FIMMTUDAGUR 6. MAÍ 2004 MORGUNBLAÐIÐ SAMNINGSDRÖG Samninganefnd Launanefndar sveitarfélaganna lagði fram ítarlegt tilboð í formi heildstæðs kjarasamn- ings á fundi með Kennarasambandi Íslands vegna grunnskólans í húsa- kynnum ríkissáttasemjara í gær. Næsti fundur viðsemjenda er áformaður á föstudag. Bush heitir refsingum George W. Bush Bandaríkja- forseti sagði í viðtölum við arab- ískar sjónvarpsstöðvar í gær, að þeim bandarísku hermönnum sem bæru ábyrgð á „hryllilegum“ pynt- ingum á íröskum föngum í fangelsi í Bagdad yrði refsað. Fréttaskýr- endur sögðu Bush hafa talað fyrir daufum eyrum í flestum arabaríkj- um. Barnabótum breytt? Hugsanlega mætti breyta barna- bótakerfinu til að koma til móts við tekjulágt fólk og niðurgreiða leik- skóla og tómstundastarf í sama til- gangi. Þetta er meðal hugmynda starfshóps sem skilað hefur skýrslu um fátækt sem dreift var á Alþingi í gær. Fjöldamorð í Nígeríu Yfir tvö hundruð múslímar hafa verið myrtir og um 120 er saknað eftir árás herflokka kristinna manna á bæ í Mið-Nígeríu. Sagði einn leiðtoga nígerískra múslíma í gær að fjöldamorð hefði verið fram- ið. Talið er að morðin megi rekja til deilna þjóðflokka um landayfirráð. Metseta Berlusconis Frá og með deginum í gær varð Silvio Berlusconi forsætisráðherra þeirrar ríkisstjórnar Ítalíu sem lengst hefur setið frá því að síðari heimsstyrjöldinni lauk. Stjórnin hefur verið við völd í 1.060 daga. Y f i r l i t Í dag Sigmund 8 Þjónusta 37 Erlent 14/16 Viðhorf 38 Minn staður 18 Minningar 38/43 Höfuðborgin 20/21 Umræðan 44/47 Akureyri 22 Kirkjustarf 48 Suðurnes 23 Bréf 52 Austurland 24 Dagbók 54/55 Landið 26 Íþróttir 56/59 Listir 26/29 Fólk 60/65 Daglegt líf 30/31 Bíó 62/65 Neytendur 32/33 Ljósvakamiðlar 66 Forystugrein 34 Veður 67 * * * Kynningar – Morgunblaðinu í dag fylgir auglýsingablað, Sumarið 2004. Með blaðinu í dag er prentað auglýs- ingablað frá NETTÓ. www.netto.is Verð birt með fyrirvara um prentvillur. Tilboðin gilda frá 6. maí til 12. maí (nema annað sé tekið fram) eða meðan birgðir endast. Nettó Akureyri - Akranesi - Mjódd - Salahverfi Kópavogi 99 Pepsi og Pepsi Max 2ltr Tilboðið gildir fimmtudag - sunnudags 299 199 Grísabógur Tilboðsverð kr. 299 kg. Merkt verð kr. 441 kg Grísahnakki úrbein. Tilboðsverð kr. 699 kg. Merkt verð kr. 1398 kg 32% afsl. 40% afsl. 50% afsl. 25% afsl. Grísasíða Tilboðsverð kr. 239 kg. Merkt verð kr. 399 kg Grísaveisla Nettó samlokubrauð Tilboðið gildir fimmtudag - sunnudags Grísahryggur m.pöru Tilboðsverð kr. 509 kg. Merkt verð kr 849 kg Grísahakk Tilboðsverð kr. 358 kg. Merkt verð kr. 477 69 40% afsl. Ódýrt og gott Morgunblaðið Kringlunni 1, 103 Reykjavík. Sími 5691100 Innlendar fréttir frett@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson, aðstoðarfréttaritstjóri, aij@mbl.is Sigtryggur Sigtryggsson, aðstoðarfréttaritstjóri, sisi@mbl.is Erlendar fréttir Ásgeir Sverrisson, fréttastjóri, asv@mbl.is Viðskipti vidsk@mbl.is Ólafur Stephensen, aðstoðarritstjóri, olafur@mbl.is Úr verinu Hjörtur Gíslason, fréttastjóri, hjgi@mbl.is Daglegt líf Guðbjörg Guðmundsdóttir, gudbjorg@mbl.is Listir menning@mbl.is Orri Páll Ormarsson, ritstjórnarfulltrúi, orri@mbl.is Umræðan|Bréf til blaðsins Magnús Finnsson, fulltrúi ritstjóra, magnus@mbl.is Hallur Þorsteinsson, hallur@mbl.is Minningar minning@mbl.is Hilmar P. Þormóðsson, Stefán Ólafsson Dagbók|Kirkjustarf Ellý H. Gunnarsdóttir, elly@mbl.is Íþróttir sport@mbl.is Sigmundur Ó. Steinarsson, fréttastjóri, sos@mbl.is Fólk í fréttum Skarphéðinn Guðmundsson, skarpi@mbl.is Útvarp|Sjónvarp Andrea Guðmundsdóttir, andrea@mbl.is mbl.is netfrett@mbl.is Guðmundur Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl.is „ÉG hef nú aldrei notið trausts þeirra í stjórnmálum og aldrei vitað til þess að Ingibjörg Sólrún hafi treyst mér til nokkurra verka í stjórnmálum þannig að það kemur mér ekki á óvart að hún vilji nota þetta sem átyllu til að heimta að ég hætti sem ráðherra. Það er ekkert nýtt. En mér finnst nú að fólk verði að gæta sín hvað það gengur langt í kröfum og verði að hafa málefnalegar ástæður fyrir sínum kröfum. [Ingibjörg Sólrún] sem aðrir,“ segir Björn Bjarnason um þau ummæli Ingi- bjargar Sólrúnar Gísladóttur og Magnúsar Þórs Haf- steinssonar að Birni beri að segja af sér í kjölfar álits umboðsmanns Alþingis. „Magnús Þór hefur nú skrifað sjálfur og beðist afsök- unar á árásum á mig og forseta þingsins þess efnis að það ætti að sprengja okkur í loft upp. Þannig að hann hefur aldrei verið neinn sérstakur stuðningsmaður minn og notar núna þessa átyllu enn og aftur til þess að heimta að ég hætti.“ Björn segir því viðbrögð þingmannanna tveggja ekki koma sér á óvart. „Mér finnst þau í samræmi við þeirra afstöðu og hvað þau ganga yfirleitt langt í dómum sín- um og miklu lengra en efni standa til. Miðað við þetta, þetta er spurning um lögfræðileg álitaefni, ég veit ekki hvaða þekkingu þau hafa á því yfirleitt.“ Ummælin koma ekki á óvart INGIBJÖRG Sólrún Gísladóttir, varaþingmaður Samfylkingar, lýsti því yfir á Alþingi í gær að Björn Bjarnason dómsmálaráðherra ætti að sjá sóma sinn í því að segja af sér embætti dómsmálaráðherra. Hún sagði álit umboðsmanns Al- þingis áfellisdóm yfir embættisfærslu dómsmálaráðherra. „Hann hefur kastað til höndum við mat á hæfni og hann hefur brugðist almannahagsmunum,“ sagði hún og bætti því við að ráðherra hefði jafn- framt orðið ber að því að beita geð- þóttavaldi. Halldór Ásgrímsson utanríkisráð- herra blandaði sér í umræðuna og sagði fráleitt að hún skyldi fara fram að dómsmálaráðherra fjarstöddum. Magnús Þór Hafsteinsson, þing- flokksformaður Frjálslynda flokks- ins, sagði af sama tilefni: „Ég er alveg sammála því að það er fyllilega kom- inn tími til að hæstvirtur dómsmála- ráðherra fari nú að athuga stöðu sína og leita sér að nýrri vinnu; hann ætti að segja af sér.“ Össur Skarphéðins- son, formaður Samfylkingar, sagði að dómsmálaráðherra hlyti að taka stöðu sína til alvarlegrar athugunar í kjölfar álits umboðsmanns. Sögðu tíma til kominn að ráðherra segði af sér  Ráðherra/10 SNJÓRINN sem lét á sér standa í vetur, þegar skíðafólkið beið með óþreyju við brekkurnar, virðist loks vera kom- inn, í það minnsta norðanlands, þar sem snjóað hefur und- anfarna daga. Kalt hefur verið víða um land og við Mý- vatn var í gær mjög vetrarlegt um að litast eins og myndin ber með sér. Höfuðborgarbúar hafa ekki sloppið, frekar en aðrir landsmenn, við vind og kulda og samkvæmt upplýsingum frá Veðurstofu eru litlar líkur á að vindinn lægi næsta sól- arhring. Áfram verður hvöss norðanátt og leiðindaveður um land allt, eins og veðurfræðingur Veðurstofunnar orð- aði það í samtali við Morgunblaðið í gærkvöldi. Búast má við slyddu eða rigningu þegar líða tekur á daginn norðan- og austanlands. Ekkert dregur þó úr vindi að heitið geti. Á morgun, föstudag, má þó búast við því að vind taki að lægja og heldur fari að hlýna. Morgunblaðið/BFH Víða vetrarlegt enn RÍKISLÖGREGLUSTJÓRI, fyrir hönd lögreglunnar í landinu, og Sam- band íslenskra sveitarfélaga undirrit- uðu nýlega viljayfirlýsingu um að efla samstarf lögreglu og sveitarfélaga. Átti ríkislögreglustjóri, Haraldur Jo- hannessen, frumkvæði að því að koma þessu samstarfi formlega á í upphafi og fékk hann góð viðbrögð frá stjórn Sambands íslenskra sveitarfélaga. Meðal markmiða viljayfirlýsingar- innar er að koma á fót virkum sam- starfsnefndum í öllum lögregluum- dæmum, vinna sameiginlega að fækkun afbrota og slysa, öruggara samfélagi og velferð barna og ung- menna. Einnig er ætlunin að styrkja hverfis- og grenndarlöggæslu og auka tengsl lögreglu og almennings. Í samstarfsnefndirnar á að skipa fulltrúa lögreglu og sveitarfélaga í hverju umdæmi fyrir sig. Síðan eiga ríkislögreglustjóri og Samband ís- lenskra sveitarfélaga að skipa sam- ráðshóp, sem til að byrja með á að starfa til ársloka 2007. Samráðshóp- urinn á að vera vettvangur fyrir störf samstarfsnefnda og fara m.a. yfir töl- ur og aðrar upplýsingar um afbrot, stöðu þeirra og þróun í landinu öllu og hverju sveitarfélagi fyrir sig. Miklir hagsmunir Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson, for- maður Sambands íslenskra sveitarfé- laga, sagðist í samtali við Morgun- blaðið binda miklar vonir við þetta verkefni, það væri mjög jákvætt að efla samstarf lögreglu og sveitarfé- laga í landinu. Sveitarfélögin og íbúar þeirra hefðu mikla hagsmuni af því að vel væri staðið að grenndarlöggæslu og almennri löggæslu. Vilhjálmur sagði mörg dæmi vera um gott samstarf lögreglu og sveitar- félaga á ýmsum sviðum, t.d. í Graf- arvogi þar sem lögreglan er í sam- starfi við félagsmiðstöðina í Miðgarði. Grafarvogsbúar væru ánægðir með samstarfið og nefndi Vilhjálmur þann möguleika að þetta gæti verið viss fyrirmynd á fleiri stöðum. Með vilja- yfirlýsingunni væri verið að gefa þessu samstarfi formlegan vettvang og skipulag. „Lögreglan er að gera marga góða hluti sem ekki fer hátt um. Hún gerir meira en að eltast við afbrota- og mis- indismenn. Við viljum vekja athygli á þessu og auðvelda samstarf lögreglu við sveitarfélögin og íbúa þeirra,“ sagði Vilhjálmur. Viljayfirlýsing undirrituð um aukið samstarf lögreglu og sveitarfélaga Vinna saman að fækkun afbrota og öruggara samfélagi Morgunblaðið/Júlíus Haraldur Johannessen ríkislögreglustjóri, Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson, for- maður Sambands íslenskra sveitarfélaga, Þórður Skúlason, framkvæmda- stjóri sambandsins, og Guðmundur Guðjónsson yfirlögregluþjónn. INGVAR Guðjónsson, fram- kvæmdastjóri Íslandsmarkaðar, vonast til að hægt verði að stækka kaupendahópinn á hérlendum fisk- mörkuðum með því að auðvelda er- lendum fiskkaupendum að taka þátt í uppboðum þar, en Íslandsmarkað- ur hefur gert samstarfssamning við franska þjónustufyrirtækið Oojee í þessum tilgangi. Ingvar vonast til að með þessu megi ná fram hærra en um leið jafn- ara fiskverði. „Undanfarið hefur verið mikið framboð á fiski á mörkuðunum og verð lækkað. Með því að stækka kaupendahópinn vonumst við til að verð hækki á ný og verði jafnframt stöðugra í framtíðinni,“ segir Ingvar Guðjónsson. Vilja erlenda kaupendur á fisk- markaðina  Erlendir/D1 GERA má ráð fyrir því að kaupend- ur fyndust að ljósvakamiðlum Norð- urljósa ef til þess kæmi að skipta þyrfti félaginu upp og Baugur þyrfti að selja ljósavakahluta Norðurljósa. Þetta segir Gunnar Jóhann Birg- isson, stjórnarformaður Íslenska sjónvarpsfélagsins, sem rekur Skjá einn. Hugmyndin var að sameina rekstur Skjás 1 og Norðurljósa Gunnar minnir á að á sínum tíma hafi viðskiptabanki félaganna beggja haft milligöngu um að stuðla að sam- einingu fyrirtækjanna og stuðla að stofnun öflugs fjölmiðlafyrirtækis á Íslandi í dreifðri eignaraðild. Hafi viðskiptahugmyndin gengið út á að sameina rekstur Skjás 1 og Norður- ljósa. Kaup Baugs á Norðurljósum hafi hins vegar slegið þessar hug- myndir út af borðinu. Með hliðsjón af þessu segist Gunnar ætla að kaup- andi fyndist að hluta Baugs í Norð- urljósum ef eftir því yrði leitað. Stjórnarformaður Ís- lenska sjónvarpsfélagsins Kaupandi myndi finnast ♦♦♦
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.