Morgunblaðið - 06.05.2004, Blaðsíða 58

Morgunblaðið - 06.05.2004, Blaðsíða 58
ÍÞRÓTTIR 58 FIMMTUDAGUR 6. MAÍ 2004 MORGUNBLAÐIÐ ÓLAFUR Örn Bjarnason, landsliðs- maður í knattspyrnu, skoraði sitt fyrsta mark í mótsleik fyrir Brann í gær. Brann sigraði þá 3. deildar- liðið Åkra á útivelli, 9:0, í norsku bikarkeppnnni og skoraði Ólafur fimmta mark liðsins með skalla. Úr- valsdeildarliðin skoruðu samtals 77 mörk í keppninni í gær og fóru öll áfram.  Hannes Þ. Sigurðsson skoraði eitt marka Viking sem vann Arna- Björnar, 5:0. Hannes kom inná sem varamaður um miðjan síðari hálf- leik og skoraði tíu mínútum síðar.  Veigar Páll Gunnarsson lék ekki með Stabæk sem vann Egersund, 2:0. Veigar Páll er frá keppni vegna meiðsla.  Gylfi Einarsson og Davíð Þór Viðarsson voru ekki með Lilleström sem vann Langesund, 7:0. Þeir spiluðu með varaliði Lilleström sem tapaði, 2:1, fyrir Eidsvold Turn í 2. deildinni á mánudaginn og skoraði Davíð Þór mark Lilleström.  Jóhannes Harðarson lék allan leikinn með Start sem vann Fröy- land, 7:0.  Harald Brattbakk skoraði sex mörk fyrir Rosenborg sem vann risasigur á Rissa, 15:0. Áhorfenda- met var sett í bænum Rissa en 1.945 manns sáu leikinn við norsku meist- arana. Áður höfðu mest mætt 1.070 manns á knattspyrnuleik í bænum, fyrir 42 árum síðan.  Teitur Þórðarson er kominn með lið sitt, Ull/Kisa úr 2. deild, í 2. umferð eftir sigur á Årvoll, 1:0. Ólafur Örn og Hannes skoruðu í bikarkeppninni Ólafur Örn Bjarnason  KÖRFUKNATTLEIKSDEILD Tindastóls hélt lokahóf sitt um sl. helgi þar sem Axel Kárason var út- nefndur leikmaður ársins í karla- flokki og Helga Einarsdóttir í kvennaflokki. Helgi Rafn Viggósson þótti hafa sýnt mestu framfarirnar í karlaflokki og Helga Einarsdóttir fékk sömu viðurkenningu í kvenna- flokki.  DANSKA handknattleikskonan Anja Nielsen sem hefur leikið með Íslandsmeistaraliði ÍBV í vetur mun leika í heimalandi sínu á næstu leik- tíð. Á fréttavef dönsku sjónvarps- stöðvarinnar TV2 er sagt frá því að Nielsen muni leika með Randers HK. Hún var í danska landsliðinu sem varð Ólympíumeistari í Sydney árið 2000 en hún sleit krossband í hné eftir Ólympíuleikana þar sem hún lék með Ikast-Bording.  BERND Schuster, fyrrverandi landsliðsmaður Þjóðverja í knatt- spyrnu – leikmaður með Köln, Barcelona, Real Madrid og Lever- kusen, var í gær rekinn úr starfi sem þjálfari úkraínska liðsins Shakhtar Donetsk. Liðinu hefur gengið illa í upphafi tímabilsins og hefur aðeins fengið þrjú stig út úr fyrstu fjórum leikjunum. Schuster tók við þjálfun hjá Shakhtar Donetsk fyrir ári.  BANDARÍSKA stúlkan Michelle Wie hefur látið mikið að sér kveða á golfmótum atvinnukvenna þrátt fyr- ir að vera aðeins 14 ára gömul en hún fær ekki að gerast atvinnumaður í íþróttinni fyrr en hún verður 17 ára. Wie hefur hins vegar vakið gríðar- lega athygli og bíða stórfyrirtæki í röðum eftir að fá tækifæri til þess að gera samstarfssamninga við Wie en hún mun keppa á atvinnumannamóti um næstu helgi á Kingsmill vellinum í Bandaríkjunum.  FAÐIR hennar hefur komist að samkomulagið við kylfusveininn Mike „Fluff“ Cowan um að hann starfi með Wie á mótinu en Cowan var áður kylfusveinn Tiger Woods, og nú síðast hjá Jim Furyk sem sigr- aði á opna bandaríska meistara- mótinu á síðasta ári. Furyk er hins vegar meiddur og er „Fluff“ því á lausu þessa stundina.  HARRY Redknapp, knattspyrnu- stjóri Portsmouth, sagðist í gær í breskum fjölmiðlum vera mjög spenntur fyrir að fá Martin Keown, 37 ára, varnarmann Arsenal til sín. Keown, sem hefur verið lykilmaður Lundúnaliðsins undanfarin ár, hætt- ir að leika með Arsenal eftir þetta keppnistímabil. „Ég myndi kaupa hann á morgun ef ég gæti. það myndast alltaf barátta í kringum Keown, sem er frábær knattspyrnu- maður,“ sagði Redknapp, sem var ánægður með sína menn í leiknum gegn Arsenal, 1:1 „Þeir stóðu sig vel gegn besta liði heims.“ FÓLK Við byrjuðum mjög vel og virt-umst vera með þetta í hendi okkar eftir að við komumst í 2:0, en það virðist ekki hafa átt fyrir okkur að liggja að komast í þennan úrslita- leik,“ sagði Scott Parker, leikmaður Chelsea, eftir leikinn. „Við vissum nákvæmlega hversu hættulegir leikmenn Mónakó eru í hraðaupphlaupum. Og þeir sönnuðu það svo sannarlega fyrir okkur í kvöld. Við erum mjög svekktir að hafa ekki komist í úrslit en það kem- ur önnur keppni á eftir þessari og á næsta ári fáum við tækifæri til að gera betur. Áhorfendur studdu vel við bakið á okkur í fyrri hálfleik og það var virkilega gaman þegar við komumst í 2:0. En það var mikið áfall fyrir þá – og ekki síður okkur – að fá þetta mark á sig á síðustu sekúndum fyrri hálfleiks. Við áttum góða möguleika á að sigra með nokkrum mun miðað við hvernig við lékum lengst af í fyrri hálfleik, ná lengra en félagið hefur nokkru sinni gert og fæstir leikmann okkar hafa staðið í þessum sporum áður,“ sagði Parker. Frábær fyrri hálfleikur Claudio Ranieri, knattspyrnu- stjóri Chelsea, lét ekki hafa mikið eftir sér í gærkvöldi, en sagði þó: „Fyrri hálfleikur hjá okkur var frá- bær. Við réðum gjörsamlega gangi leiksins og vorum með hann í hendi okkar, en fengum á okkur mark rétt fyrir leikhlé. Það hefði verið allt annað að fara inn í hálfleik tveimur mörkum yfir.“ Samheldnin skilar sér inn á leikvöllinn Albert prins af Mónakó var sér- deilis ánægður með liðið sitt. „Þetta er ótrúlegt. Fyrir tíu mánuðum var allt í óvissu með liðið vegna fjár- hagsstöðu þess og til stóð að dæma liði niður um deild vegna þess. Okk- ur tókst að bjarga hlutnum og í vet- ur hafa leikmenn og stórnendur fé- lagsins lagst á eitt um að rétta hlut þess og ég held þessi samstaða hafi skilað sér inn á völlinn og nú erum við komnir í úrslit Meistaradeildar- innar,“ sagði prinsinn. „Ég viðurkenni að það fór um mig þegar Chelsea komst í 2:0 en ég vissi líka að mitt lið hefur hæfileika til að gera vel og strákarnir hafa yndi af því að sækja og eru duglegir við að skora. Vörnin hjá okkur var slök framan af leik og átti í vand- ræðum með framherja Chelsea, en þetta lagaðist allt í síðari hálfleikn- um. Vonandi verður Mónakó draugaborg 26. maí þegar allir fara til Þýskalands á úrslitaleikinn,“ sagði Albert prins. Góð liðsheild skilar miklu Didier Deschamps, þjálfari Móna- kó, sem lék eina leiktíð með Chelsea, var að vonum heldur ánægðari en starfsfélagi hans hjá Chelsea. „Þetta er mjög sérstakt, bæði fyr- ir mig og leikmenn mína. Við erum með ungt lið sem hefur komist svona langt á samheldni og liðsheild. Það er góður andi í liðinu og þó- nokkrir hæfileikar og ef þetta er rétt tvinnað saman er hægt að kom- ast langt. Það höfum við gert. Chelsea lék frábærlega í fyrri hálfleik og komst í 2:0 og mínir leik- menn virtust eitthvað taugatrekkt- ir, kannski vegna lítillar reynslu. En við lékum betur í síðari hálfleik og það er ekki slæmt að vera með mann eins og Morientes í liðinu. Bæði er hann frábær leikmaður og svo er hann mikill baráttumaður sem dríf- ur aðra leikmenn með sér. Það var auðvitað mikilvægt fyrir okkur að skora fyrir hlé, það létti brúnina á öllum í leikhléinu. Strákunum finnst gaman að sækja og ég held að við höfum sannað í þessari keppni að við getum skorað á öllum stigum leiksins, líka þegar við þyrftum í rauninni ekki að sækja,“ sagði Deschamps þegar hann hafði gengið á milli leikmanna Chelsea og hug- hreyst þá. AP Fernando Morientes fagnar jöfnunarmarki sínu, markinu sem gerði út um sigurvonir Chelsea. Góður andi og nokkrir hæfileikar LEIKMENN Chelsea voru að vonum sárir og svekktir eftir leikinn í gær. Í fyrri leiknum komust þeir í 1:0 og léku lengi einum fleiri en misstu niður forystu sína og töpuðu 3:1. Í gær komst liðið í 2:0 en missti niður forystuna og gerði 2:2 jafntefli. Draumur liðsins, að komast í úrslitaleik Meistaradeildarinnar var að engu orðinn og óvíst að félagið og leikmenn þess fái slíkt tækifæri á næstunni. KNATTSPYRNA Meistaradeild Evrópu Chelsea – Mónakó.................................... 2:2 Jesper Grönkjær 22., Frank Lampard 44. – Hugo Ibarra 45., Fernando Morientes 60. – 37.132.  Mónakó áfram, 5:3 samanlagt, og mætir Porto í úrslitaleik í Gelsenkirchen 26. maí. Skotland Hibernian – Partick Thistle .................... 1:2 Danmörk Bikarkeppnin, undanúrslit: AaB – Bröndby ......................................... 2:1 OB – FC Köbenhavn ................................ 2:4 Svíþjóð Bikarkeppnin, 2. umferð, helstu leikir: Rynninge – Landskrona .......................... 1:2 Kristianstad – Sundsvall ......................... 1:3 Sleipner – Halmstad ................................ 1:3 Enskede – Öster ....................................... 0:2 Sandviken – Hammarby.......................... 1:3 Spårvägen – Norrköping......................... 0:3 Timra – Djurgården................................. 1:3 Austurríki Rapid Vín – Kärnten ................................ 3:2  Grazer AK 68 stig, Austria Vín 65, Rapid Vín 57, Pasching 56, Bregenz 44. Bikarkeppnin, undanúrslit: Sturm Graz – Austria Vín........................ 1:1  Austria Vín sigraði í vítaspyrnukeppni og mætir Grazer AK í úrslitaleik. TYRKLAND Bikarúrslitaleikur: Trabzonspor - Genclerbirligi ...................4:0 HANDKNATTLEIKUR Þýskaland Kiel – Gummersbach.............................31:27 KÖRFUKNATTLEIKUR NBA-deildin Austurdeild, 8 liða úrslit: Miami – New Orleans ...........................85:77  Miami vann 4:3 og mætir Indiana í und- anúrslitum. Vesturdeild, undanúrslit: Minnesota – Sacramento ....................98:104  Sacramento er yfir 1:0. LEIÐRÉTTING Kristinn Geir Friðriksson, nýráðinn þjálf- ari og leikmaður Grindvíkinga, var sagður hafa leikið með Njarðvík. Kristinn lék að sjálfsögðu með Keflavík og eru viðkomandi beðnir velvirðingar á mistökunum. Hann lék með Keflavík á árunum 1988 til 1994, var þá tvö ár hjá Þór á Akureyri, 1996–97 með Keflavík, þá eitt ár með Skallagrími og síðustu fimm með Tindastóli. ÚRSLIT HANDKNATTLEIKUR Úrslit kvenna, annar leikur: Hlíðarendi: Valur – ÍBV .......................19.15 Í KVÖLD Herrakvöld og vorfagnaður FH Herrakvöld og vorfagnaður FH á 75 ára af- mæli félagsins fer fram í Kaplakrika á morgun, föstudaginn 7. maí, kl. 19.30. Veislustjórar verða Logi Ólafsson og Her- mann Gunnarsson. Fulltrúaráð Víkings Aðalfundur fulltrúaráðs Víkings verður í Víkinni í kvöld kl. 20. FÉLAGSLÍF ALDREI áður hafa jafnmargir kylf- ingar skráð sig til leiks í forkeppni opna bandaríska meistaramótsins í golfi en alls eru 8.726 kylfingar skráðir til leiks. Sá yngsti er 13 ára en sá elsti er 81 árs gamall. Allir kylfingar í bandarískum golf- klúbbum sem eru með lægri forgjöf en 1,4 geta skráð sig til leiks í for- keppni opna bandaríska meistara- mótsins, en aðeins 92 þeirra komast alla leið á sjálft stórmótið. Einn þeirra sem er skráður til leiks er David Duval sem hefur ekki keppt á atvinnumannamótum undanfarið hálft ár en skráning hans er tækni- legs eðlis þar sem hann öðlaðist keppnisrétt á opna bandaríska meistaramótinu fimm ár í röð árið 2001 er hann sigraði á opna breska meistaramótinu. Duval hefur hrap- að niður heimslistann frá 2001 er hann var efstur á listanum en hann er ekki lengur í hópi 200 efstu. Opna bandaríska meistaramótið er eitt af risamótunum fjórum sem fara fram ár hvert en að þessu sinni fer mótið fram rétt utan við New York, á Shinnecock Hills vellinum, 17.–20. júní. Jim Furyk mun líklega ekki verja titil sinn á mótinu en hann er að jafna sig á aðgerð sem gerð var á úlnlið hans fyrir nokkr- um vikum. Alls verða 64 kylfingar sem öðlast sjálfkrafa keppnisrétt á mótinu en það eru að sjálfsögðu efstu menn á heimslistanum auk þeirra sem hafa nú þegar öðlast keppnisrétt með því að sigra á stór- mótum undanfarin fimm ár. Metaðsókn á opna bandaríska meistaramótið
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.