Morgunblaðið - 06.05.2004, Blaðsíða 61

Morgunblaðið - 06.05.2004, Blaðsíða 61
FÓLK Í FRÉTTUM MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 6. MAÍ 2004 61 Fræbblarnir, pönkhljómsveitineina og sanna, vinnur núhörðum höndum að nýrri hljóðversplötu, sem yrði sú fyrsta síðan fjögurra laga platan Warkweld in the West kom út í desember 1982. Útgáfa er áætluð í september kom- andi. Tónleikagestir íslenskir vita reyndar mætavel að þrátt fyrir út- gáfuþurrð hafa Fræbbblarnir sem hljómsveit síður en svo legið undir grænni torfu og hefur sveitin haldið tónleika reglulega, allar götur síðan 1996. Árið 2000 kom reyndar út ný plata, Dásamleg sönnun um fram- haldslíf. Hún er tekin upp á tón- leikum en innihélt þó að megninu til nýtt efni. Spenna „Þetta er búið að vera á dagskrá í meira en ár,“ segir Valgarður Guð- jónsson, söngvari sveitarinnar um til- urð plötunnar. „Við tókum upp „demó“ í kringum jólin en fórum í hljóðver Thule núna í byrjun apríl. Við erum búin með alla grunna og eigum eftir að skreyta þá eitthvað, bæta við söng og svo hljóðblanda. Þetta eru fimmtán lög eins og er en ég veit ekki hvort þau enda öll á plöt- unni. Þetta hljómar rosalega vel og ég er ofboðslega spenntur. Ég hef ekki verið svona spenntur í fjölda ára. Öll lögin eru frumsamin fyrir ut- an eitt tökulag. Svo á Halli Reynis trúbadúr eitt lag sem hann mun syngja með mér. Svo samdi gítarleik- ari Palindrome, sonur minn, eitt lag með okkur.“ Valgarður segir það í raun dálítið skondið að vera að vinna í hljóðveri í dag, síðast þegar hann sinnti því að af einhverju viti var þegar Mamma var Rússi, sem innihélt meðlimi Fræbb- blana, fóru í hljóðver árið 1987. „Ég hef alltaf unnið við tölvur og hugbúnaðarkerfi en hingað til hef ég ekki tengt þau tól við tónlist. Nú er maður að upplifa nýja tækni og nýja möguleika. Það er gaman að fást við þetta og þetta er allt önnur hugsun núna. Það þarf ekki lengur að spóla til baka og leita að sama staðnum í laginu og svoleiðis!“ Valgarður segir að sveitin hafi tek- ið upp átján grunna á átta tímum sem þykir býsna snöggt. En eins og áður segir eru Fræbbblar vel æfðir og ekkert ryð sem þurfti að fjarlægja. Og tónlistin er hrein og bein Fræbbblatónlist. „Það er bara ómiss- andi tilbreyting að hafa þetta sem áhugamál,“ segir Valgarður, spurður um ástæðu þess að Fræbbblar lifi jafngóðu lífi og raun ber vitni. „Mér finnst rosaleg gaman að semja og vinna lög, aðrar skýringar kann ég ekki.“ Það er Zonet (áður Sonet) sem gef- ur út. Fræbbblarnir vinna að nýrri hljóðversplötu Sú fyrsta síðan 1982 Ljósmynd/Finnbogi Marinósson www.kuggur.is/fraebbblarnir arnart@mbl.is Fræbbblar, 2004. Skylmingagyðjurnar (Gladiatress) Gamanmynd  Bretland 2003. Skífan VHS. (90 mín.) MIKIL óskapleg sóun er þessi mynd á góðu hæfileikafólki. Hér er nefnilega á ferð kvikmynd með stúlkunum þremur sem kætt hafa landann undanfarið með fersku „kvennagríni“ í bresku sjónvarps- þáttunum Smack The Pony. Fyrsta sem fékk mann til að staldra við var að ekkert hafði til þessarar myndar spurst, en maður hefði nú haldið að kvikmynd með þeim kvensum myndi vekja meiri athygli en þessi hefur gert. Þá var eitthvað bogið við það að þær koma ekki nálægt hand- ritsgerðinni, eiga m.ö.o. ekki brand- arana í myndinni. Sem er líka alveg greinilegt því það er varla hægt að brosa út í annað, hvað þá hafa gaman af öllu ruglinu. Og ef ekki er hægt að hafa gaman af ruglaðri gamanmynd, nú þá er hún bara rugluð og ekkert annað. Ekki fær maður skilið hversvegna í ósköpunum þær féllust á að leika í þessari sögu sem á að gerast árið 55 og fjalla um þrjár keltneskar prins- essur sem þurfa að verja land sitt fyrir árásum Sesars og rómverska heimsveldisins. Hvað fær góðan grínista til að taka þátt í einhverju svona ófyndnu? Spurning sem greinilega erfitt er að svara því þetta er alltaf að gerast. Ef þið eruð að vonast eftir ein- hverju Smack The Pony-gríni þegar þið sjáið hverjar leika í henni – þá bregðast þær vonir algjörlega og þið væruð að leigja köttinn í sekknum. Skarphéðinn Guðmundsson Myndbönd Algjör sóun AUGLÝSINGADEILD netfang: augl@mbl.is eða sími 569 1111 Konunglegi drengjakórinn í Kaupmannahöfn Tónleikar í Hallgrímskirkju föstudaginn 7. maí kl. 20 Trompetleikari Palle Mikkelborg Hörpuleikari Helen Davies Stjórnandi Ebbe Munk Verk eftir Grieg, Nysted, Mikkelborg, Nielsen og dönsk vor- og sumarlög. Verð kr. 2.000/1.000. Miðasala í Hallgrímskirkju sími 510 1000 Listvinafélag Hallgrímskirkju
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.