Morgunblaðið - 06.05.2004, Blaðsíða 55

Morgunblaðið - 06.05.2004, Blaðsíða 55
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 6. MAÍ 2004 55 DAGBÓK STJÖRNUSPÁ Frances Drake NAUT Afmælisbörn dagsins: Þú hefur auðugt ímyndunar- afl og næman skilning á öðru fólki. Þetta gerir þig að góðu foreldri, góðum kennara eða ráðgjafa. Næsta ár getur orðið besta ár ævi þinnar. Hrútur (21. mars - 19. apríl)  Óvenjulegar hugmyndir í heimspeki og trúarbrögðum vekja áhuga þinn þessa dag- ana. Þú munt hugsanlega eiga áhugaverðar samræður við vinkonu þína. Naut (20. apríl - 20. maí)  Þú þarft að gefa þér tíma til að fara yfir fjárhagsstöðu þína. Það þýðir ekki að slá hlut- unum upp í kæruleysi þegar illa árar. Tvíburar (21. maí - 20. júní)  Tunglið er beint á móti merk- inu þínu og því þarftu að sýna öðrum óvenju mikla þol- inmæði í dag. Hlustaðu á það sem aðrir hafa að segja. Krabbi (21. júní - 22. júlí)  Leggðu þig fram um að taka til í kringum þig bæði heima og í vinnunni. Það mun koma þér skemmtilega á óvart hversu miklu þú getur komið í verk á hálftíma. Ljón (23. júlí - 22. ágúst)  Gefðu þér tíma til að skemmta þér í dag. Þú þarft á upplyft- ingu að halda og munt verða mun afkastameiri þegar þú hefur sinnt þessari þörf þinni. Meyja (23. ágúst - 22. sept.)  Þú munt að öllum líkindum eiga mikilvægar samræður við foreldra þína í dag. Ekki gleyma að gefa þér tíma til einveru þótt einhver innan fjölskyldunnar þurfi á þér að halda. Vog (23. sept. - 22. okt.)  Þú hlakkar til að fara í fyr- irhugað ferðalag eða hefja framhaldsnám. Það standa þér flesta dyr opnar þessa dagana. Sporðdreki (23. okt. - 21. nóv.)  Þú munt sennilega kaupa eitt- hvað hugvitsamlegt í dag. Þig langar í eitthvað sem er bæði óvenjulegt og fallegt. Bogmaður (22. nóv. - 21. des.) Tunglið er í merkinu þínu í dag. Þetta gerir þig óvenju til- finninganæma/n. Á sama tíma veitir þetta þér svolítið forskot í öllu sem þú tekur þér fyrir hendur. Steingeit (22. des. - 19. janúar) Þú þarft að gefa þér svolítinn tíma til einveru í dag. Þú þarft á því að halda til að halda ein- beitingunni og undirbúa næsta skref. Vatnsberi (20. jan. - 18. febr.) Þetta er góður dagur til að ræða málin í einlægni við vin- konu þína. Gefðu þér tíma til þess því vináttan skiptir þig miklu máli. Fiskar (19. feb. - 20. mars) Þú munt á einhvern hátt vekja athygli annara í dag. Hafðu þetta í huga og reyndu að hafa stjórn á skapi þínu. Stjörnuspána á að lesa sem dægradvöl. Spár af þessu tagi eru ekki byggðar á traustum grunni vísindalegra staðreynda. ÁRNAÐ HEILLA VORKVEÐJA Ég veit þú ert komin, vorsól. Vertu ekki að fela þig. Gægstu nú inn um gluggann. Í guðs bænum kysstu mig. Þeir eru svo fáir aðrir, sem una sér hjá mér. Já, vertu nú hlý og viðkvæm. Þú veizt ekki, hvernig fer. Því það er annað að óska að eiga sér líf og vor en hitt að geta gengið glaður og heill sín spor. Jóhann Gunnar Sigurðsson LJÓÐABROT 50 ÁRA afmæli. Í dag,fimmtudaginn 6. maí, er fimmtugur Kristján Gunnarsson, formaður Verkalýðs- og sjómanna- félags Keflavíkur og ná- grennis. Kristján og kona hans, Guðrún Anna Jó- hannsdóttir, sem varð 50 ára 5. janúar sl. taka á móti gestum í Stapa í Njarðvík í kvöld kl. 20. DEMANTSBRÚÐKAUP. Í dag, fimmtudaginn 6. maí, eiga 60 ára hjúskaparafmæli hjónin Anna Jónsdóttir og Svein- björn Markússon, Laufrima 4, Reykjavík. Þau verða að heiman. 1. d4 Rf6 2. c4 g6 3. Rc3 Bg7 4. e4 d6 5. Rf3 O-O 6. Be2 e5 7. O-O Rc6 8. d5 Re7 9. b4 Rh5 10. He1 f5 11. Rg5 Rf6 12. Bf3 c6 13. Hb1 Kh8 14. b5 cxd5 15. cxd5 fxe4 16. Rcxe4 Rf5 17. Bg4 Re8 18. Hb3 h6 19. Hh3 Kg8 20. Re6 Bxe6 21. dxe6 De7 22. Rg3 Hf6 23. Bxf5 gxf5 24. Rh5 Hg6 25. Dc2 Rc7 26. Dxf5 Dxe6 27. Dd3 Rd5 28. Hg3 Re7 29. Ba3 Hd8 30. h3 Rf5 31. Hg4 Hxg4 32. hxg4 Rd4 Staðan kom upp á Sigeman mótinu sem stendur nú yfir í Málmey í Svíþjóð. Alexander Beljavsky (2667) hafði hvítt gegn Jacob Aagaard (2400). 33. Dxd4! og svartur gafst upp enda maður farinn fyrir borð. Undrabarnið og stórmeist- arinn Magnus Carlsen er á meðal keppenda en heima- síða mótsins er http:// www.sigeman-chess.com SKÁK Helgi Áss Grétarsson Hvítur á leik. TVÍMENNINGUR er sér- stakt spil. Í sveitakeppni myndi „allur salurinn“ vera í sex spöðum í norður og taka þar tólf slagi án þess að blása úr nös. En í úrslit- um Íslandsmótsins í tví- menningi spilaði aðeins eitt par sex spaða. Hin voru í sex gröndum, sjö spöðum og sjö gröndum. Allt með misjöfnum árangri. Suður gefur; NS á hættu. Norður ♠KG9876 ♥ÁD32 ♦-- ♣G97 Vestur Austur ♠1043 ♠D2 ♥G5 ♥K9876 ♦G1098753 ♦4 ♣4 ♣86532 Suður ♠Á5 ♥104 ♦ÁKD62 ♣ÁKD10 Sex grönd er skothelt spil í norður, en víða varð suður sagnhafi og fékk út hjartagosa. Sem er and- styggilegt útspil. Til greina kemur að stinga upp ás og leggja allt á spaðasvín- inguna. Eða fórna hugs- anlegum yfirslag í þágu þess að geta rannsakað spilið betur. Hróflur Hjalta- son fór þá leið. Hann svínaði hjartadrottningu í fyrsta slag. Austur drap og spilaði laufi um hæl. Nú kannaði Hrólfur spil- ið í rólegheitum, tók ÁKD í tígli, slagina tvo á hjarta og síðan laufin: Norður ♠KG9 ♥3 ♦-- ♣-- Vestur Austur ♠1043 ♠D2 ♥-- ♥9 ♦G ♦-- ♣-- ♣8 Suður ♠Á5 ♥-- ♦6 ♣D Vestur varð að hanga á tígulgosa og henti því spaða í síðasta laufið. Hrólfur vissi þá hvernig landið lá og toppaði spaðann. Tólf slagir og 18 stig af 22 mögu- legum. BRIDS Guðmundur Páll Arnarson 90 ÁRA afmæli. Laug-ardaginn 8. maí verður níræð Ólafía P. Magnúsdóttir, fyrrum hús- freyja á Gilsfjarðarbrekku, nú til heimilis á dval- arheimilinu Höfða, Akra- nesi. Í tilefni dagsins halda afkomendur hennar henni afmælisveislu á afmælisdag- inn frá kl. 14 í Félagsheim- ilinu Miðgarði, Innri- Akraneshreppi. Allir vel- komnir. Tilkynni, herra hershöfð- ingi, það er 30 stiga hiti! Tilkynning um áunninn at- vinnutengdan skaða, seg- irðu. Við hvað starfar þú? SMÆLKI MÁLEFNI Afríkuríkja og þróun- armál eru til umfjöllunar á þriggja daga fundum sem Norræna Afr- íkustofnunin, Háskóli Íslands og Þróunarsamvinnustofnun efna til. Fundirnir hófust í gær en þá var umfjöllunarefnið hvert stefnir í Simbabve og Namibíu. Yfirskrift umræðnanna í dag, sem fram fara í Odda stofu 101 kl. 17:15–19, er Ímynd Afríku í skólabókum. Þar mun m.a. Mai Palmberg stjórn- málafræðingur við Norrænu Afr- íkustofnunina, fjalla um rannsókn sína á ímyndum Afríku í sænskum skólabókum og Kristín Loftsdóttir, lektor við HÍ segir frá rannsókn sinni á ímyndum Afríku í íslensk- um námsbókum. Fundaröðinni lýkur á morgun en þá verður fjallað um nýjar leiðir í þróunaraðstoð. Meðal frummæl- enda er Carlos Lopes, svæðisstjóri Þróunarstofnunar Sameinuðu þjóðanna í Brasilíu, en í erindi sínu fjallar hann um nýjar aðferðir í alþjóðlegri þróunaraðstoð. Fund- urinn er haldinn í Odda Háskóla Íslands og stendur yfir frá kl. 14 til 16. Fundir um þróunarmál Afríku Nýjar leiðir og ímynd Afríku í skólabókum FRÉTTIR Til sölu rúmgóð 2ja herbergja kjallaraíbúð á Snorrabraut 36 - snýr einnig að bakgarði við Laugaveg. Algjörlega gegnumtekin af fagmönnum, s.s. nýjar lagnir fyrir skolp, heitt og kalt vatn, nýir ofnar, ný gólfefni, ný eldhúsinnrétting, nýjar hurðir, nýtt á baði, rafmagn, ný málað o.fl. o.fl. Verð 9,9 millj. Veðbandalaus. Möguleiki á að taka bíl á uppítökuverði sem innborgun og góð lán. Jón Egilsson hdl., sími 568 3737 og 896 3677 101 Reykjavík Mörkinni 6, sími 588 5518. Stuttar og síðar kápur, sumarúlpur, heilsársúlpur, regnkápur, bolir, peysur, stakir jakkar og slæður Opið sunnudag kl. 12-16 Opið virka daga kl. 10-18 laugardaga frá kl. 10-16 Sumartilboð 15-50% afsláttur
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.