Morgunblaðið - 06.05.2004, Blaðsíða 27

Morgunblaðið - 06.05.2004, Blaðsíða 27
Í leikritinu Belgíska Kongósegir frá aldraðri konu, Rósa-lind, sem dvelur á elliheimili í höfuðborginni. Dag einn kemur barnabarn hennar, Rósar, í heim- sókn ásamt syni sínum, Hilmari. Erindi Rósars er að reyna að sættast við ömmu sína, en þau hafa ekki talast við í sjö ár vegna leiðinlegs misskilnings í tengslum við íbúð sem Rósalind leigði dótt- ur Rósars. Heimsóknin leiðir síðan í ljós hvort tímabært sé að leita sátta eða hvort jafnóskylt fólk og skyldmennin sem um ræðir hafi nokkuð hvert við annað að segja. Spurður um kveikjuna að verk- inu segist Bragi Ólafsson hafa orðið vitni að svipuðu vandamáli og kemur upp í leikritinu, enda sé kveikjan að verkum oft fengin úr raunveruleikanum; því sem höf- undur þekki. „Þannig var það fyrst persóna gömlu konunnar sem kom til mín og síðan bættust hinar persónurnar nánast bara sjálfkrafa við,“ segir Bragi og tek- ur fram að hann hafi reyndar lof- að sjálfum sér að skrifa aldrei um eldra fólk. „Og reyndar heldur ekki um börn,“ bætir hann við. Spurður hvers vegna svarar Bragi: „Kannski af því maður hef- ur séð svo marga detta ofan í það að fjalla um eldra fólk sem ein- hverjar staðlaðar einingar. Af þessum sökum tók ég einhvern tímann þá ákvörðun að að reyna að fjalla ekki um eldra fólk, en svo gerðist það bara ósjálfrátt,“ segir Bragi og brosir. „Kannski af því ég er orðinn eldri. Og staðlaður.“ Spurður hvers vegna elliheimili hafi orðið fyrir valinu sem sögu- svið svarar Bragi því til að elli- heimili hafi ávallt verið mjög sér- stakir staðir í sínum huga. „Elliheimili vekja alltaf sterkar kenndir, bæði lyktin og tíminn sem líður þar inni, því það segir sig sjálft að hann er á einhvern hátt hægari en sá tími sem líður fyrir utan elliheimilið. Af þessum sökum verður svona skemmtilega skringilegur árekstur milli persón- anna þegar feðgarnir heimsækja ömmuna. Þeir eru hálfglataðir í tímanum, vita ekkert hvar þeir eru í tímanum og finnst hann í raun líða allt of hægt. En fyrir ömmunni er tíminn einfaldlega lið- inn og um leið hefur hún allan tímann í heiminum fyrir sér og það notfærir hún sér gegn þeim. Fyrir vikið verður hálfgerð bar- átta milli persónannna.“ Gaman að sjá textann lifna við í meðförum annarra Belgíska Kongó er fyrsta sviðs- verk Braga, ef frá er talinn ein- þáttungurinn Spurning um orða- lag sem settur var upp af Höfundasmiðju Leikfélags Reykjavíkur árið 1996. Auk þess hefur Bragi skrifað þrjú útvarps- leikrit, Augnrannsóknina, Gróið hverfi og Sumardaginn fyrsta, en fyrir síðastnefnda verkið hlaut hann fyrstu verðlaun í samkeppni Leikskáldafélagsins, RÚV og Rit- höfundasambandsins árið 1995. Aðspurður segist Bragi alltaf hafa verið mjög spenntur fyrir því að skrifa samtalstexta. „Það hefur alltaf verið í mér að skrifa samtöl. Ætli ég hafi ekki verið að skrifa samtalstexta frá því ég var þrett- án eða fjórtán ára gamall eða allt frá því ég laumaði segulbandstæki undir stofusófann áður en sauma- klúbburinn hjá mömmu byrjaði. Fyrir mér felst helsti munurinn á því að skrifa sögur annars vegar og leikrit hins vegar í því að leik- texti getur í meðförum leikstjóra og leikhóps oft orðið eitthvað allt annað eða miklu meira en maður sjálfur sá fyrir sér. Ég verð að segja að eftir því sem ég skrifa meiri leiktexta þeim mun spennt- ari verð ég fyrir þessu formi, því mér finnst svo gaman að sjá hvernig textinn lifnar við í með- förum annarra og sjá hvað þeir gera úr verkinu. Þetta er kannski svipað og þegar maður gefur út bók og veit sjálfur í raun ekkert um hvað hún fjallar. Þannig getur maður ekki sagt „þessi bók fjallar um þetta og merkir hitt.“ Sjálfum finnst mér alltaf skemmtilegast þegar aðrir, bæði lesendur og gagnrýnendur, koma með tillögur að því um hvað bækur mínar fjalla.“ Aðspurður segist Bragi hvorki geta né vilja útlista hvað hann er að reyna að segja með nýjasta leikverki sínu. „Vegna þess að það er eitthvað sem kemur eftir á. Og ég á kannski eftir að sjá um hvað þetta leikverk er. Ég get þó sagt að þetta er um skyldleika fólks og hvernig fólk þarf að hegða sér í samræmi við skyldleika sinn. Svo má líka segja að þetta fjalli um andlegt ofbeldi og ekki síst um tímann, þ.e. hvernig við hegðum okkur gagnvart honum, hvernig tíminn strekkir á okkur og hvern- ig hann líður mismunandi hjá ólík- um aldursflokkum. En þar fyrir utan fjallar verkið bara um þann tíma sem tekur að sýna það, þ.e. þessar 79 mínútur sem verið er að reyna að halda sýningunni innan.“ Spurður hvort eiga megi von á fleirum sviðsverkum frá Braga hugsar hann sig vel um og segir síðan: „Ætli það fari ekki pínulítið eftir því hvernig viðtökurnar við þessu verki verða. Annars held ég að ég eigi eftir að skrifa fleiri leik- rit, þ.e. ef útgefandinn minn leyfir mér það því að hann vill bara fá bækur,“ segir Bragi og hlær, en þess má geta að í haust er ný skáldsaga, Samkvæmisleikir, væntanleg frá Braga. „Annars held ég ekkert að ég sé að hætta núna, því mig langar til að þróa þetta form áfram. Þetta er orðinn einhvern hluti af mér.“ Þess má að lokum geta að Belg- íska Kongó er þriðja og síðasta verkið í röð leikrita sem valið var úr 100 innsendum hugmyndum í leikritasamkeppni Borgarleikhúss- ins árið 2002. Hin tvö verkin eru Draugalest eftir Jón Atla Jón- asson, sem frumsýnt var í febrúar, og Sekt er kennd eftir Þorvald Þorsteinsson, sem frumsýnt var í mars. Ætlaði mér aldrei að skrifa um eldra fólk Morgunblaðið/Jim Smart „Ég verð að segja að eftir því sem ég skrifa meiri leiktexta þeim mun spenntari verð ég fyrir þessu formi, því mér finnst svo gaman að sjá hvern- ig textinn lifnar við í meðförum annarra,“ segir Bragi Ólafsson. silja@mbl.is Eggert Þorleifsson í hlutverki Rósalindar. Morgunblaðið/ÞÖK LISTIR MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 6. MAÍ 2004 27 STYRKUR TIL TÓNLISTARNÁMS Minningarsjóður um Jean Pierre Jacquillat mun á þessu ári veita tónlistarfólki styrk til framhaldsnáms erlendis á næsta skólaári 2004-2005. Veittur er styrkur að upphæð kr. 600 000. Umsóknir, með upplýsingum um námsferil og framtíðaráform, sendist fyrir 31. maí nk. til formanns sjóðsins: Arnar Jóhannssonar, pósthólf 8620, 128 Reykjavík. Umsóknum fylgi hljóðritanir, raddskrár frumsaminna verka og/eða önnur gögn sem sýna hæfni umsækjenda. Björg Atla sýnir 39 akrýlmálverk í HAFNARBORG, menningar- og listastofnun Hafnarfjarðar. Síðasti sýningardagur er mánudagurinn 10. maí. Opið kl. 11-17. FORSVARSMENN Hafnarfjarðar- leikhússins fengu lyklavöldin að nýju húsnæði sínu um síðustu helgi, en húsnæðið verður formlega afhent Hafnarfjarðarleikhúsinu í sumarlok. Nýja húsnæðið er í gömlu vélsmiðju Hafnarfjarðar, þar sem Byggðarsafn bæjarins var áður til húsa, við hliðina á Fjörukránni og Víkingahótelinu. Um þessar mundir standa yfir um- talsverðar breytingar á húsnæðinu, en stefnt er að því að Hafnarfjarð- arleikhúsið geti flutt formlega inn í lok sumars og frumsýnt fyrstu sýn- ingu sína, Úlfhamssögu í samvinnu við leikfélagið Annað svið, í nýju hús- næði mánaðamótin september/októ- ber. Að sögn Lúðvíks Geirssonar, bæj- arstjóra Hafnarfjarðar, var við val á nýju húsnæði fyrir Hafnarfjarðar- leikhúsið lögð sérstök áhersla á að leikfélagið yrði áfram á miðbæjar- svæðinu. „Það hefur heilmikla þýð- ingu fyrir okkur að vera með öfluga menningarstarfsemi, ekki síst leik- listarstarfsemi, hér í bænum því það dregur mikið af fólki til bæjarins og hvetur ýmislegt annað áfram í menn- ingarstarfseminni hjá okkur. Þannig hefur Hafnarfjarðarleikhúsið verið mjög góð og mikilvæg vítamín- sprauta fyrir menningarstarfsemina hér í bænum og verður það vonandi um ókomna tíð.“ Um þessar mundir er, að sögn Lúðvíks, verið að endurhanna hús- næðið og verður sumarið nýtt til að innrétta það sem leikhús, en það er Kári Eiríksson arkitekt sem hannar allt innra skipulag þess. „Þegar er búið að rífa allt innan úr húsnæðinu og í framhaldinu verða fjarlægðar nokkrar súlur og þess í stað settir bit- ar í loftið til að þetta verði eitt opið rými. Aðalmunurinn felst fyrst og fremst í mun meiri lofthæð, því að- staðan í gamla frystihúsinu, þar sem Hafnarfjarðarleikhúsið var áður til húsa, var náttúrlega afar þröng og erfið þótt menn hafi nýtt hana með snilldarlegum hætti,“ segir Lúðvík Geirsson. Sérhannað sem leikhús Að sögn Hilmars Jónssonar, leik- stjóra og leikhússtjóra Hafnarfjarð- arleikhússins, var öllu starfsfólki leikhússins boðið að skoða ný húsa- kynni á dögunum. „Við hlupum þarna inn rétt eftir að vélarnar þögnuðu. Okkur fannst tilvalið að sýna fólki til- vonandi húsnæði enda allir orðnir verulega forvitnir um hvernig það liti út. Það má segja að fólk hafi verið gapandi af undrun yfir því hvað þetta nýja rými er „inspírerandi“, enda er það ótrúlega flott. Við flutninginn hækkar umtalsvert til lofts hjá Hafn- arfjarðarleikhúsinu og víkkar til veggja auk þess sem salurinn breyt- ist aðeins. Nýja húsnæðið er allt miklu betra og traustara en það gamla. Þannig mun öll aðstaða batna til muna auk þess sem húsnæðið verður sérstaklega innréttað sem leikhús. Það er trú mín að leikhúsið verði eftir breytingu með flottari „black-box“ leikhúsum í Norður-Evr- ópu,“ segir Hilmar Jónsson að lokum. Mikilvæg vítamín- sprauta fyrir bæinn Morgunblaðið/Golli Lúðvík Geirsson bæjarstjóri og Hilmar Jónsson leikhússtjóri skoða tillögur Kára Eiríkssonar arkitekts, sem sér um hönnun hins nýja húsnæðis. eftir: Braga Ólafsson. Leikstjóri: Stefán Jónsson. Lýsing: Kári Gíslason. Búningar: Stefanía Adolfsdóttir. Leikgervi: Sóley Björt Guðmundsdóttir. Leikmynd: Snorri Freyr Hilmarsson. Hljóðmynd: Finnbogi Pétursson. Leikarar: Eggert Þorleifsson, Ellert A. Ingimundarson, Gunnar A. Hansson og Ilmur Kristjánsdóttir. Belgíska Kongó Belgíska Kongó, nýtt leikverk eftir Braga Ólafsson í leikstjórn Stefáns Jónssonar, verður frumsýnt á Nýja sviði Borgarleikhússins í kvöld. Í samtali við Silju Björk Huldu- dóttur ræðir Bragi um tímann og skyldur ættmenna.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.