Morgunblaðið - 06.05.2004, Blaðsíða 54
DAGBÓK
54 FIMMTUDAGUR 6. MAÍ 2004 MORGUNBLAÐIÐ
Mannamót
Aflagrandi 40. Kl. 9
vinnust. og jóga, kl. 10
boccia, kl. 13 myndlist.
Árskógar 4. Kl. 9–12
handavinna, kl. 9–
12.30 bókband, kl. 9.30
boccia, kl. 10.30–10.55
helgistund, kl. 11 leik-
fimi, kl. 13–16.30 smíð-
ar og handavinna, kl.
13.30 myndlist.
Bólstaðarhlíð 43. Kl.
9–9.45 leikfimi, kl. 9–
12 myndlist, kl. 9–16
handavinna, kl. 13–16
bókband.
Félagsstarfið Dal-
braut 27. Kl. 8–16
handavinna.
Félagsstarfið Dal-
braut 18–20. Kl. 9
postulín, kl. 13 handav.
Handavinnusýning og
basar verður föstud. 7.
og laugard. 8. maí, kl.
13–17.
Félagsstarfið Furu-
gerði 1. Kl. 9 smíðar
og útskurður, kl. 13.30
boccia.
Félagsstarfið, Hæð-
argarði 31. Gler-
skurður kl. 9–16.30,
leikfimi kl. 10–11,
sönghópurinn kl.
13.30, dans kl. 15.15.
Félagsstarfið, Löngu-
hlíð 3. Kl. 13 föndur og
handavinna.
Félagsstarf eldri borg-
ara Mosfellsbæ, Hlað-
hömrum, kl. 13–16
föndur og spil, kl.
12.30–15.30 tréskurð-
ur, kl. 13.30–14.30 les-
klúbbur, Vorboðar, æf-
ingar kl. 17–19.
Félagsstarf aldraðra
Garðabæ. Karla-
leikfimi kl. 13.10. Far-
ið verður í skoð-
unarferð út á
Garðaholt á morgun,
að skoða gamla býlið
Krók. Rúta frá Kirkju-
hvoli kl. 13.
Félag eldri borgara,
Hafnarfirði, Hraunseli.
Kl. 9, vídeókrókur,
pútt kl. 10–11.30. Kl.
14 opið hús, í umsjá
Sjálfstæðisflokksins í
Hafnarfirði
Félag eldri borgara,
Reykjavík, Ásgarði.
Brids kl. 13, félagsvist
kl. 20. Farþegar í vest-
fjarðaferð staðfesting
fyrir 10. maí
Gerðuberg, fé-
lagsstarf. Sýning opin
frá kl. 9–18, kl. 10.30
helgistund, frá hádegi
spilasalur opinn.
Gjábakki, Fannborg 8.
Kl. 9–15 handavinna,
kl. 9.05 og 9.55 leik-
fimi, kl. 9.30 glerlist og
keramik, kl. 10.50 leik-
fimi, kl. 13 gler og
postulín, kl. 20 gömlu
dansarnir, kl. 21 línu-
dans. Kl. 20 opnuð
sýningin leikur að orð-
um og litum.
Gullsmári, Gullsmára
13. Kl. 9.15 postulín,
kl. 9.05 og kl. 9.55 leik-
fimi, kl. 9 myndlist, kl.
10 ganga, kl. 13 birds,
kl. 13–16 handavinna.
Hraunbær 105. Kl. 9
handavinna, perlu-
saumur, kortagerð og
hjúkrunarfræðingur,
kl. 10 boccia, kl. 11
leikfimi, kl. 14 fé-
lagsvist.
Hvassaleiti 56–58. Kl.
9–13 bútasaumur, kl.
10 boccia, kl. 13–16
hannyrðir, kl.13.30–16
félagsvist.
Korpúlfar Grafarvogi.
Á morgun sundleikfimi
kl. 9.30.
Norðurbrún 1. Kl. 9–
16.45 opin vinnustofa,
kl. 10–11 sam-
verustund og leir.
Vesturgata. Kl. 9.15–
15.30, handavinna, kl.
9–10 boccia, kl. 10.15–
11.45 enska, kl. 13–14
leikfimi, kl.13–16 kór-
æfing.
Vitatorg. Kl. 8.45
smíði, kl. 9.30 gler-
skurður, perlusaumur
og morgunstund, kl. 10
boccia, kl. 13 hand-
mennt og bridge.
Þjónustumiðstöðin
Sléttuvegi 11. Kl. 9.15
leikfimi, kl. 10–12
verslunin.
Þórðarsveigur 1–5
Grafarholti. Kl. 14
Bingó.
Gullsmárabrids. Brids
í félagsheimilinu í
Gullsmára 13, kl .13,
skráning kl. 12.45.
ÍAK, Íþróttafélag aldr-
aðra í Kópavogi. Leik-
fimi kl. 11.20 í Digra-
neskirkju.
Félag áhugamanna
um íþróttir aldraðra.
Leikfimi í Ásgarði,
Glæsibæ kl. 11.
Kiwanisklúbburinn
Geysir, Mosfellsbæ.
Spilakvöld í Kiw-
anishúsinu kvöld kl.
20.30
Kristniboðsfélag
kvenna,Háaleitisbraut
58–60. Bæna- og vitn-
isburðarstund kl. 17.
Sjálfsbjörg Hátúni 12
kl. 19.30 skák
Kvenfélag Grens-
ássóknar. Árlega
kaffisalan verður í
safnaðarheimilinu sun-
nud. 9. maí kl. 12–16,
tekið á móti kökum frá
kl. 10–12 sama dag.
Kvenfélag Kópavogs.
Vorferðin verður farin
fimmtud. 13. maí að
veitingastaðnum
Skessubrunni í Svína-
dal. Farið frá Hamra-
borg 10, kl. 18. Skrán-
ing í s. 554 3299
Svana eða 554 1726
Þórhalla.
Kvenfélag Hallgríms-
kirkju, aðalfundurinn
er í dag, 6. maí kl. 20.
Rætt verður um sum-
arferð. Upplestur.
Í dag er fimmtudagur 6. maí,
127. dagur ársins 2004. Orð dags-
ins: Skylt er oss, hinum styrku, að
bera veikleika hinna óstyrku og
hugsa ekki um sjálfa oss.
(Rm. 15, 1.)
Ögmundur Jónassonskrifar á ogmund-
ur.is: „Í þjóðfélaginu hef-
ur kviknað mikil umræða
um fjölmiðlafrumvarp
ríkisstjórnarinnar. Ég tel
mjög mikilvægt að þessi
umræða fái að dafna og
þróast en verði ekki kæfð
niður með því að keyra
frumvarpið í gegnum
þingið með offorsi. Helgi
Guðmundsson, hinn eini
sanni hágé, spyr í pistli
hér á síðunni í dag hver sé
afstaða þingflokks VG til
frumvarpsins. Ólína bein-
ir einnig áleitnum spurn-
ingum til okkar um af-
stöðu Framsóknar til
málsins.
Ég hef lýst afstöðu
minni í þingræðu í dag og
í pistlum hér á síðunni. Ég
tel að hér sé á ferðinni
grundvallarmál sem verði
að fá yfirvegaða umfjöll-
un. Það er sérstakt að
verða vitni að því að
hægri menn skuli loksins
viðurkenna að það geti
gerst, að fjármagnið ráði
of miklu í þjóðfélaginu.
Betur hefðu þeir komið
auga á það áður en þeir
afhentu mönnum með
„ráðandi stöðu á markaði“
meirihlutavald yfir
stærstu bankastofnunum
landsins. Það gerðu þeir
þegar ríkisbankarnir,
Landsbankinn og Bún-
aðarbankinn voru einka-
væddir en sem kunnugt
mala þeir nú gullið fyrir
nýja eigendur sína, sem
beita þeim jafnframt
óspart í valdatafli um
áhrif í þjóðfélaginu. Engr-
ar viðleitni hefur orðið
vart af hálfu ríkisstjórn-
armeirihlutans til að
tryggja þar dreifða eign-
araðild.
Mín skoðun varðandibankana var sú, að
besta vörnin gegn sam-
þjöppun á fjármálamark-
aði væri eignarhald rík-
isins á að minnsta kosti
einum þjóðbanka. Á sama
hátt tel ég, að heppileg-
asta leiðin til að koma í
veg fyrir einokun á fjöl-
miðlamarkaði, sé að
styrkja Ríkisútvarp í al-
mannaeign. Áður en botn
er fenginn í umræðu um
framtíð þess tel ég ekki
unnt að taka afstöðu til
þess hvort og þá hvernig
skorður skuli reistar gegn
samþjöppun á fjölmiðla-
markaði. Ég tel það vera
mikinn ábyrgðarhlut að
flana hér að lagasetningu.
Í lesendabréfi hér á síð-
unni í dag, sem vísað var
til hér að framan, frá
Ólínu, er vakin athygli á
því að Davíð Þór Björg-
vinsson, formaður nefnd-
arinnar sem vann fjöl-
miðlaskýrsluna, hafi skýrt
frá því að hann geri sér
ekki grein fyrir því hvaða
áhrif löggjöfin kæmi til
með að hafa á rekstur
Norðurljósa, – regnhlíf-
arinnar yfir Stöð 2, Bylgj-
unni, Sýn, Fréttablaðinu,
DV og fleiri fjölmiðlum.
Aðvitað skiptir okkur
máli hver verða afdrif
þessara fjölmiðla. Þessi
mál verður að skoða heild-
stætt og af yfirvegun. Því
miður bendir margt til
þess að vilji standi ekki til
þess af hálfu ríkisstjórnar
Sjálfstæðisflokks og
Framsóknarflokks.“
STAKSTEINAR
Fjölmiðlafrumvarpið
Skriðdrekar til
skemmtunar?
ÉG sá fréttir í blöðunum
um að einhver vilji fara að
flytja inn skriðdreka til
notkunar í torfærum eða
til skemmtunar. Mér
finnst skriðdrekar alveg
hræðileg vopn og eigi ekki
heima hér á landi.
Við þykjumst vera frið-
söm þjóð og ekki veit ég
hvað útlendingar segja
þegar þeir sjá skriðdreka
brölta hér í móunum.
Friðarsinni.
Íslenskumælandi
bílstjóra
ÉG FÓR í Hafnarfjarð-
arstrætó inn í Kópavog
þar sem ég skipti um vagn
því ég þurfti að fara á
ákveðinn stað í Kópavogi.
Þegar í vagninn kom ætl-
aði ég að fá upplýsingar
hjá bílstjóranum um hvar
ég ætti að fara úr vagn-
inum en þá hvorki skildi
hann né talaði íslensku.
Varð þetta til þess að ég
fór út á röngum stað og
endaði það með því að ég
varð að taka leigubíl til að
komast á áfangastað.
Finnst mér það algjört
skilyrði að það sé ís-
lenskumælandi fólk sem
keyrir strætó.
Farþegi.
Hundar í miðbænum
ÉG vil lýsa yfir óánægju
minni með hversu mikið
er af hundum í miðbæn-
um. Þótt það sé bannað að
vera með hunda í miðbæn-
um fer fólk ekki eftir því.
Ég sé daglega gengið með
hunda á Laugavegi. Á
Austurvelli í góðu veðri er
oft jafnmikið af hundum
og fólki og þar sé ég oft
börn sem eru hrædd við
hunda.
Það vantar meira eft-
irlit með þessu.
Ein óánægð.
Tapað/fundið
Hattur í óskilum
BLÁR hattur fannst í
Goðheimum laugardaginn
1. maí. Innan í hattinum
var verðlaunapeningur
sem á setndur Mini-
Tromp Hamars. Uppl. í
síma 588 5959.
Dýrahald
Kettlingar fást gefins
FALLEGIR, kassavanir
og þrifnir kettlingar fást
gefins. Þeir verða 8 vikna
núna 8. maí. Blíðir og góð-
ir og auðvitað mikill leikur
í þeim. Upplýsingar í síma
898 2659.
Láka vantar heimili
LÁKA, sem er 3 ára skag-
firskur högni, vantar nýtt
heimili vegna flutnings
foreldranna. Hann er gelt-
ur, kelinn og skemmtileg-
ur. Upplýsingar gefur
Þórarinn í síma 898 5506.
Lítil svört kisa týnd
LÍTIL svört kisa týndist
frá Grettisgötu 4, Reykja-
vík, miðvikudaginn 28.
apríl. Hún er með rauða ól
og merkt og ákaflega
mannelsk. Þeir sem hafa
orðið hennar varir hafi
samband í síma 847 1347.
VELVAKANDI
Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 13-15 Netfang velvakandi@mbl.is
LÁRÉTT
1 ofboðslegur, 8 málmi, 9
sól, 10 spil, 11 votlendið,
13 líkamshlutar, 15 álft-
ar, 18 kindar, 21 hand-
festa, 22 aula, 23 korns,
24 óhræsinu.
LÓÐRÉTT
2 ræktuð lönd, 3 eld-
stæði, 4 eimyrjan, 5 alda,
6 fánýti, 7 brumhnappur,
12 greinir, 14 hæða, 15
róa, 16 kærleikshót, 17
yfirhöfn, 18 fjöldi, 19
sigruð,20 prestur.
LAUSN SÍÐUSTU KROSSGÁTU
Lárétt: 1 sýkna, 4 sægur, 7 klárs, 8 myldi, 9 alt, 11 leif,
13 unnt, 14 ylgur, 15 svil, 17 töng, 20 orm, 22 túlar, 23
jaðar, 24 renna, 25 regni.
Lóðrétt: 1 sýkil, 2 kjáni, 3 ausa, 4 sumt, 5 gælin, 6 reist,
10 logar, 12 fyl, 13 urt, 15 sýtir, 16 illan, 18 örðug, 19
garri, 20 orka, 21 mjór.
Krossgáta
Hægt er að kaupa 10 krossgátur á 600 kr. á mbl.is. Slóðin er: http://www.mbl.is/mm/folk/krossgata/index.html
6
8
11
15
22
1
24
12
3
10
17
21
4
9
13
18
23
14
5
19
7
20
2
16
Víkverji skrifar...
Víkverji las á dögunum að íslenskbörn séu með þeim feitustu (eða
þyngstu) í Evrópu þrátt fyrir að
mataræði þeirra hafi heldur batnað
og skipulögð íþróttaiðkun þeirra
hafi aukist. Ástæðan er, ef marka
má fréttir af málinu, að kyrr-
setuþættir vega æ þyngra í lífi
þeirra. Þetta kemur Víkverja, sem á
dóttur á unglingsaldri, ekki mjög á
óvart. Þrátt fyrir að hún sé í kjör-
þyngd hefur ekki farið fram hjá Vík-
verja hversu vel hún virðist kunna
við sig í láréttri stellingu fyrir fram-
an sjónvarpið, oft langtímum saman.
Þegar hún svo kannski rís upp við
dogg er það oftar en ekki til þess að
ganga eins og fimm skref að heim-
ilistölvunni í stofunni og setjast þar
yfir einhverja tölvuleiki. Ungling-
urinn er ekki ýkja mikið fyrir að
vera úti við og þá sjaldan það gerist
stingur Víkverji vanalega upp á því
við hana að hún taki með sér dálítið
af innilofti í bréfpoka svo hún fái
ekki aðsvif.
x x x
Þótt Víkverji vilji síst af öllu dragaúr ábyrgð foreldra á uppeldi
barnanna þykir honum algerlega
einboðið að hreyfing barna á skóla-
tíma verði aukin með einum eða öðr-
um hætti. Í þeim efnum þarf ekki
endilega að festa í stundaskrá fleiri-
skipulagða íþróttatíma, margt annað
kæmi til greina. Miðað við rann-
sóknir og þann raunveruleika sem
við Víkverja blasir myndi hann, fyrir
hönd dótturinnar, ekki sýta það þótt
eins og tveimur til fjórum bóknáms-
tímum á viku væri fórnað á altari
aukinnar hreyfingar skólabarna.
Hitt er svo annað mál að allar
breytingar í skólakerfinu sem með
einum eða öðrum hætti snerta starf
kennara virðast ævinlega vera ákaf-
lega erfiðar og viðkvæmar svo
stundum stappar nærri fáránleika ef
vel er að hugað. Þessi orð eru engan
veginn mælt af illvilja í garð kenn-
arastéttarinnar því um tíma taldist
Víkverji meira að segja til hennar.
x x x
En Víkverji vill þó ekki trúa þvífyrirfram að þessi breyting
þyrfti að standa í kennurum grunn-
skólanna. Gönguferð með nem-
endum í 40 mínútur í stað hefðbund-
innar kennslustundar af og til ætti
ekki að vera tiltökumál, hvorki fyrir
nemendur né kennara. Nema þá
auðvitað að í takt við botnlausa virð-
ingu fyrir sérhæfingu af öllu tagi
verði sett fram krafa um sérstaka
„göngukennara“ og að fag þeirra
verði lögverndað. Að öllu gamni
slepptu snýst málið einfaldlega um
að byrja að taka á máli sem að
óbreyttu getur skemmt mjög líf
kynslóðarinnar sem er að vaxa úr
grasi. Og eins og nefnt hefur verið
þarf fyrsta skrefið ekki að vera flók-
ið í framkvæmd.
Morgunblaðið/Sverrir