Morgunblaðið - 06.05.2004, Page 60
FÓLK Í FRÉTTUM
60 FIMMTUDAGUR 6. MAÍ 2004 MORGUNBLAÐIÐ
Háskólabíó við Hagatorg I Sími 545 2500 I sinfonia@sinfonia.is I www.sinfonia.is
AÐALSTYRKTARAÐILI
SINFÓNÍUHLJÓMSVEITAR
ÍSLANDS
M
Á
T
T
U
R
IN
N
&
D
Ý
R
Ð
IN
Hljómsveitarstjóri ::: Thomas Kalb
Einsöngvari ::: Ute Lemper
FIMMTUDAGINN 6. MAÍ KL.19:30 NOKKUR SÆTI LAUS
FÖSTUDAGINN 7. MAÍ KL.19:30 LAUS SÆTI
Græn #5
Á efniskrá verða m.a. lög eftir Kurt Weill, Jacques Brel,
Astor Piazzolla, Nick Cave, Norbert Scholtze og fleiri.
UTE LEMPER SYNGUR Á ÍSLANDI - LOKSINS
Laus sæti
Laus sæti
Lau. 8. maí örfá sæti laus
Fös. 14. maí laus sæti
SÍÐUSTU SÝNINGAR
Stóra svið
Nýja svið og Litla svið
DON KÍKÓTI eftir Miguel de Cervantes
FRUMSÝNING fi 13/5 kl 20 - UPPSELT
2. sýn su 16/5 kl 20 - gul kort
3. sýn fi 27/5 kl 20 - rauð kort
4. sýn fi 3/6 kl 20 - græn kort
5. sýn su 6/6 kl 20 - blá kort
CHICAGO eftir J. Kander, F. Ebb og B. Fosse
Fö 7/5 kl 20
Lau 8/5 kl 20
Su 9/5 kl 20 - AUKASÝNING
Fö 14/5 kl 20, - UPPSELT,
Lau 15/5 kl 20, Su 23/5 kl 20,
Fö 28/5 kl 20, Lau 29/5 kl 20,
Fö 4/6 kl 20, Lau 5/6 kl 20
Lau 12/6 kl 20, Lau 19/6 kl 20
SÍÐUSTU SÝNINGAR
Ósóttar pantanir seldar daglega
Miðasala: 568 8000
Nýr opnunartími: Mánudaga og þriðjudaga: 10:00 - 18:00
miðviku-, fimmtu- og föstudaga: 10:00 - 20:00
laugardaga og sunnudaga: 12:00 - 20:00
www.borgarleikhus.is midasala@borgarleikhus.is
NÝTT: Miðasala á netinu
www.borgarleikhus.is
LÍNA LANGSOKKUR e. Astrid Lindgren
Su 9/5 kl 14,
Su 16/5 kl 14,
Su 23/5 kl 14
Síðustu sýningar
GLEÐISTUND: VEITINGAR - BÖKUR - VÖFFLUR - BRAUÐ
FORSALURINN OPNAR KLUKKUTÍMA FYRIR KVÖLDSÝNINGU
BELGÍSKA KONGÓ eftir Braga Ólafsson
Frumsýning í kvöld kl 20 - UPPSELT
Fi 13/5 kl 20,
Su 16/5 kl 20
SEKT ER KENND e. Þorvald Þorsteinsson
Fi 3/6 kl 20
Síðasta sýning
The Secret Face
F im. 06. maí. k l . 21:00
Fös. 14. maí. kl. 21:00
Fös. 21. maí. kl. 21:00
Opið frá kl. 18 fim. - sunnudagskvöld.
Miðasala í síma 562 9700
www.idno.is
Miðasala í síma 555-2222
theater@vortex.is
Aukasýning
Föstudaginn 7. maí kl. 21
Fantagott stykki...frábær skemmtun
sem snerti margan strenginn
-Ómar Garðarsson Eyjafréttir
eftir Jón Atla Jónsson
Eldað með Elvis
Aukasýningar vegna mikillar
eftirspurnar:
Fös. 21/5 kl. 20.
Lau. 22/5 kl. 20.
Búkolla
Barnaleikrit
lau. 8/5 kl. 14.
lau. 15/5 kl. 14 og kl.16
Miðasölusími 462 1400
www.leikfelag.is
sýnir í Tjarnarbíói
KLEINUR
eftir Þórunni Guðmundsdóttur
í Kaffileikhúsinu
Frumsýning 7. maí
2. sýn. 8. maí
3. sýn. 9. maí
Lokasýning 16. maí
Ath. aðeins þessar fjórar sýningar
Sýningar hefjast kl. 20
Miðapantanir: s. 551 2525
eða á midasala@hugleikur.is
HUGSAST getur að geðlæknirinn
Frasier fari enn á ný úr einum
þættinum í annan, því höfundar
Frasier-þáttanna segjast hafa búið
til nýja þætti um sálfræðinginn
skapstirða, en eins og menn muna
kom hann fyrst fram sem aukaper-
sóna í Staupasteini áður en hann
fékk sinn eigin þátt.
Síðasti Frasier-þátturinn verður
sýndur í sjónvarpi í Bandaríkjunum
síðar í mánuðinum en í nýju þátt-
unum er gert ráð fyrir að Frasier
mæti aftur á staðinn með nýjum
aukapersónum. Ef sá þáttur verður
að veruleika má gera ráð fyrir að
Frasier Crane verði langlífasta
gamanþáttapersóna sögunnar en
hann kom fyrst fram árið 1984.
Sagt er að sumar aukapersónur
þáttanna hafi verið búnar að fá nóg
en að Kelsey Grammer, sem leikur
Frasier sjálfan hafi gjarnan viljað
halda áfram og gera tólftu þátta-
röðina sem er kannski ekki að
undra þar sem hann fær 1,6 millj-
ónir dollara fyrir hvern þátt eða um
118 milljónir íslenskra króna.
Frasier er ekki alveg tilbúinn að
fara af skjánum.
Frasier aftur
í nýjan þátt
MARY (Lindsay Lohan), draum-
órafull skólastelpa sem vill láta kalla
sig Lolu, er í algjöru rusli. Foreldrar
hennar skilja, í kjölfar þess verður
hún að flytja með móður sinni í út-
hverfiseyðilendur New Jersey og yf-
irgefa heitt elskaða Manhattaneyju.
Ekki nóg með það, heldur hrakar
henni á félagslega sviðinu því Lola er
núll og nix í hópi nýju skólafélag-
anna. Þar ræður Carla ríkjum (Meg-
an Fox) og hefur ekki ætlað sér að
afhenda völdin. Leikurinn æsist þeg-
ar uppáhaldshljómsveitin þeirra
heldur lokatónleika og prímadonn-
urnar berjast um að komast í sviðs-
ljósið.
Vandinn við þessa hversdagslegu
unglingamynd er sá að áhorfendur
eiga að snúast á sveif með Lolu, en
hún er á hinn bóginn nánast óþolandi
í meðförum Lohan – sem verður að
gera betur ef hún er ekki með jafn
góðan mótleikara og Jamie Lee
Curtis. Þær voru bráðskemmtilegar
saman í Freaky Friday, en hér á hún
í höggi við Fox, sem skapar ósvikna,
ofdekraða tæfu, og Alison Pill, sem
stelur oftar en ekki senunni sem hin
hversdagslega og jarðbundna vin-
kona Lolu í úthverfisleiðindunum.
Götótt og annars hugar handrit
hjálpar ekki upp á sakirnar.
Þrátt fyrir flatneskjulega yfir-
borðsmennsku á Confessions… góða
spretti sem flestir tengjast spaugi-
legri Carol Kane, sem minnir á
gamla takta í hlutverki undarlegs
leikmenntakennara. Confessions…
rær á sömu mið og mikið mun betri
myndir á borð við Election og Clue-
less, en hefur ekki erindi sem erfiði –
einkum er boðskapurinn í lokin um
eftirsóknina eftir vindi, því miður
ámóta gegnsær og hann er þarfur.
Ungtæfur í stríði
KVIKMYNDIR
Sambíóin
JÁTNINGAR / CONFESSIONS OF A
TEENAGE DRAMA QUEEN Leikstjóri: Sara Sugarman. Handrit: Gail
Parent, byggt á bók Dyan Sheldon. Kvik-
myndataka: Stephen H. Burum. Tónlist:
Mark Mothersbaugh. Aðalleikendur:
Lindsay Lohan (Lola), Adam Garcia,
Glenne Headly, Alison Pill, Eli Marien-
thal, Megan Fox, Carol Kane. 97 mín-
útur. Walt Disney Pictures. Bandaríkin.
2004
Sæbjörn Valdimarsson
ÞESSI næstnýjasta mynd argent-
ínska leikstjórans Adolfo Aristarains
nýtur góðs af hvoru tveggja, næmri
leikstjórn og hugvekjandi texta skáld-
sögunnar sem byggt er á. Um er að
ræða fremur einfalda og hversdags-
lega sögu, sem hefur breiða sam-
félagslega og heimspekilega skírskot-
un. Þar segir af stuttu tímabili í lífi
hjónanna Fernando og Liliönu, sem
komin eru á efri ár og búa í Buenos
Aires í Argentínu. Grunninum er
kippt undan einfaldri borgaralegri til-
veru þeirra, er þau lenda undir nið-
urskurðarhnífi stjórnvalda í efna-
hagskreppunni á tíunda áratungum.
Fernando, sem er bókmenntaprófess-
or, þarf að þola þá niðurlægingu að
vera sagt upp störfum á ólögmætan
hátt eftir farsælan kennsluferil, og
veit vel að ekkert þýðir fyrir hann að
leita réttar síns til spilltra og óáreið-
anlegra stjórnvalda. Við þessa þol-
raun reynir á úrræðasemi hjónanna,
sem búa yfir reynslu þeirra sem lifað
hafa við óvissa framtíð heimalands
síns, og stuðst hvort við annað í lífsins
ólgusjó. Þetta er vel gerð og vel leikin
kvikmynd, og tekst hér einkar vel að
segja mikið í gegnum látlausa sögu af
hversdagslegu basli persónanna.
Óviss
framtíð
KVIKMYNDIR
Argentínsk kvikmyndavika
SAMEIGINLEGUR GRUNDVÖLLUR /
LUGARES COMMUNES Leikstjórn: Adolfo Aristarain. Handrit: A.
Aristarain, byggt á skáldsögu Lorenzo F.
Aristarain. Aðalhlutverk: Federico Luppi
og Mercedes Sampieto. Lengd: 115 mín.
Argentína, 2002.
Heiða Jóhannsdóttir
fimmtudag. Hið rétta er að miðasal-
an hefst 15. maí, sem vitanlega ber
upp á annan laugardag.
Í FRÉTT í Morgunblaðinu í gær
segir að miðasala á tónleika Metal-
lica 4. júlí myndi hefjast annan
Metallica – miðasala annan laugardag
GAGNASAFN MORGUNBLAÐSINS
mbl.is
LJÓSMYNDIR
mbl.is