Morgunblaðið - 06.05.2004, Page 62
62 FIMMTUDAGUR 6. MAÍ 2004 MORGUNBLAÐIÐ
Sýnd kl. 10. B.i. 16.
Blóðbaðið nær hámarki.
HP
Kvikmyndir.com
„Gargandi snilld“
ÞÞ FBL
„Öllum líkindum besta
skemmtun ársins“
HL MBL
„Algjört Kill Brill“
ÓÖH DV
Skonrokk
Sýnd kl. 6. Með íslensku tali.
Sýnd kl. 6, 8 og 10.10. B.i. 16.
FRÁ HANDRITAHÖFUNDI PANIC ROOM
BYGGÐ Á SÖGU STEPHEN KING
Magnaður spennutryllir
sem fær hárin til að rísa!
HUGSAÐU STÓRTMiðasala opnar kl. 15.00
EINI THX LÚXUSSALUR LANDSINS
„Frábær
skemmtun
fyrir alla
fjölskylduna“
Þ.Þ. Fbl.
Sýnd kl. 3.40 og 5.50.
Með íslensku taliKl. 3.40, 5.50, 8 og 10.15.
Sýnd kl. 8 og 10.40.
Til að tryggja réttan dóm réðu þeir utanaðkomandi sérfræðing
En það var einn sem sá við þeim...
Eftir metsölubók John Grisham Með stórleikurunum John Cusack, Gene Hackman,
Dustin Hoffman og Rachel Weisz
Kvikmyndir.is
Sýnd kl. 5.10, 8 og 10.50. B.i. 16. Sýnd kl. 4, 6, 8 og 10. B.i. 16.
Blóðbaðið nær hámarki.
kl. 5.10, 8 og 10.50. B.i. 16.
HP
Kvikmyndir.com
„Gargandi snilld“
ÞÞ FBL
„Öllum líkindum besta
skemmtun ársins“
HL MBL
„Algjört Kill Brill“
ÓÖH DV
Skonrokk
SV MBL
Hinn frábæri Jim Caviezel (Thin Red Line, High
Crimes og Passion of the Christ) er mættur í
svakalegum spennutrylli með mögnuðum
bílahasaratriðum.
Blóðþyrstur raðmorðingi á 1972 El Dorado drepur
konu hans. Eltingaleikurinn hefst fyrir alvöru þegar
hann ákveður að hefna dauða hennar!
Frá leikstjóra The Hitcher
ÁSGARÐUR, Glæsibæ: Harmoniku-
unnendur Vesturlands og í Húna-
vatnssýslum spila laugardag kl. 22 á
harmonikkuballi . Caprí-tríó sunnudag
kl. 20 til 23.30.
ÁSLÁKUR, Mosfellsbæ: Tilþrif
laugardag.
BÚÐARKLETTUR, Borgarnesi:
Hljómsveit hússins laugardag.
CAFE ROSENBERG: Tónleikar
með Þel fimmtudag kl. 20.30.
CATALINA, Hamraborg 11, Kópa-
vogi: Örvar Kristjánsson föstudag og
laugardag.
CELTIC CROSS: Spilafíklarnir á
neðri hæðinni föstudag. Á efri Ómar
Hlynsson trúbador. Spilafíklarnir á
neðri hæðinni laugardag. Á efri Ómar
Hlynsson trúbador.
DÁTINN, Akureyri: Dj Andri
fimmtudag kl. 22 til 01. Dj Leibbi föstu-
dag kl. 00 til 04.
FELIX: Dj Kiddi Bigfoot föstudag.
Dj Andri laugardag.
GAUKUR Á STÖNG: Jagúar með
tónleika fimmtudag kl. 21. Bang gang
með tónleika föstudag kl. 21. Buff laug-
ardag.
GLAUMBAR: Ari & Gunni til kl 23.
Dj Þór Bæring eftir það fimmtudag. Dj
Steini föstudag. Dj Þór Bæring laug-
ardag.
GRANDROKK: Tónleikar með
Lokbrá og Touch kl. 22. Margir ættu
að vera farnir að þekkja Lokbrá því hið
skemmtilega lag „Nosirrah Egroeg“ er
búið að vera mikið spilað á bæði Rás 2
og X-inu. Touch er ný og efnileg hljóm-
sveit sem er að halda eina af sínum
fyrstu tónleikum opinberlega. Hljóm-
sveitin leikur mest frumsamið efni og
er tónlistin hennar kraftmikil og mel-
ódísk. Ókeypis inn. 9-11’s á föstudag
kl. 23.
Megas + Súkkat = Megasukk. kl. 22
laugardag.
H.M. KAFFI, Selfossi: Majones
fimmtudag. 3-some föstud. og laugard.
HÓTEL BORG: Kvartettinn Skófíl-
ar sunnudag á Múlanum í Gyllta saln-
um.
HRESSÓ: Einar Ágúst og Gunni Óla
fimmtudag. Atli skemmtanalögga
föstudag og laugardag.
HVERFISBARINN: Dj Guns föstu-
dag. Dj Kiddi Bigfoot laugardag.
KAFFIBAR SELFOSS: Gunnar Óla
og Einar Ágúst laugardag.
KAFFI LIST: Kvartett Sigurðar
Rögnvaldssonar fimmtudag kl. 21.30
til 00.
KAFFI MJÓDD: Tros föstudag. Tú
og ég laugardag.
KAPITAL: Einóma, Adrone, Fone-
tik, Imanti, Midijokers, Dj Richard
Cuellar, Tómaz THX og Exos föstudag
á 360 gráðu kvöldi.
KLÚBBURINN VIÐ GULLINBRÚ:
Geirmundur laugardag.
KRINGLUKRÁIN: Stuðbandalagið
frá Borganesi föstudag og laugardag.
LAUGAVEGUR 22: Einar Sonic
fimmtudag kl. 22. Sævar og Ýr á ann-
arri hæð föstudag. Palli og Biggi Maus
á annarri hæð laugardag.
NASA VIÐ AUSTURVÖLL: Ís-
lenski fáninn föstudag kl. 23. Straumar
og Stefán laugardag kl. 23.
NESKIRKJA: Lokatónleikar hjá
Félagi harmonikuunnenda sunnudag
kl. 17. Hljómsveitir félagsins leika und-
ir stjórn Reynis Jónassonar og Guð-
mundar Samúelssonar.
NIKKABAR, Hraunberg 4: Tveir
Einfaldir föstudag og laugardag.
PLAYERSPORT BAR, Kópavogi:
SSSÓL föstudag. Sixties laugardag.
PRAVDA: Áki Pain föstudag á neðri
hæðin Bling & Ghetto. Áki Pain laug-
ardag. DJ Valdo á neðri hæðinni.
SJALLINN, Akureyri: Björgvin
Halldórsson og Brimkló laugardag kl.
23 til 04. Dj Andri á Dátanum.
FráAtilÖ
Lokbrá leikur á Grandrokk í kvöld
ásamt Touch.
KK eða Kristján
Kristjánsson er blús-
ari mikill og hefur
nú sett saman blús-
band sem mun troða
upp á Borginni í
kvöld. Það er Blús-
félag Reykjavíkur
sem stendur að tón-
leikunum. KK Blús-
band er skipað
þungavigtarmönnun
en ásamt KK, sem
mun sjá um söng,
gítar- og munn-
hörpuleik leika
þeira Ásgeir Ósk-
arsson á trommur,
Tómas Tómasson á
bassa, Sigurgeir
Sigmundsson á gítar
og Þórir Baldursson á Hammond.
„Þetta er í fyrsta sinn sem
þetta band kemur fram,“ segir
KK. „Ég hef t.d. aldrei spilað blús
með Tómasi en hann stjórnaði
upptökum á Bein leið og Hotel
Föryoar sem KK Band gerði. Ás-
geir var með mér í
fyrsta KK bandinu
og ég og Þórir spil-
uðum einu sinni blús
saman í Kaffileik-
húsinu sem dúett.
Hann er alger
„grúv“-hundur!“
KK segir að menn
séu bara í „fíling“,
ekkert sé búið að
æfa, í mesta lagi
verði rennt í gegn-
um þetta í hljóðpruf-
unni.
„Ég læt þá bara fá
lagalista og segi
þeim í hvaða tónteg-
und þetta er. Svo
verður bara talið í!“
KK Blúsband spilar á Hótel Borg
„ … bara talið í!“
Tónleikarnir eru á Hótel Borg og
hefjast stundvíslega klukkan
21.00. Aðgangseyrir er 1.000
krónur.
KK á von á því að stemn-
ingin verði sveitt í kvöld.
BOÐIÐ verður upp á óperusöng í
fyrsta skiptið á bresku tónlistarhá-
tíðinni í Glastonbury í ár.
Meðlimir í Ensku þjóðaróperunni
munu flytja Valkyrjur Wagners fyr-
ir hátíðargesti en alls verða flytj-
endur að verkinu yfir hundrað tals-
ins. Tilgangurinn með framtakinu
er að freista þess að óperutónlistin
eignist nýja unnendur. Uppselt er á
hátíðina, alls 112 þúsund miðar
seldir, en helstu númer verða Sir
Paul McCartney, Oasis og Muse.
Reuters
McCartney verður aðalmaðurinn á
Glastonbury, þótt Wagner fái að
gægjast inn.
Ópera á
Glastonbury
HAFNFIRÐINGNUM Jóni Sigurðssyni og félaga hans
fannst barnamyndamarkaðurinn á Íslandi heldur fátæk-
legur og ákváðu þeir því sjálfir að stofna dreifingarfyr-
irtækið Thorsfilm ehf. sem einbeitir sér að dreifingu
barnamynda hér á landi. Fyrsta myndin sem þeir völdu
var spænska teiknimyndin Drekafjöll sem frumsýnd var
í Háskólabíói um helgina.
„Okkur fannst vera lítið úrval fyrir börn svo við
ákváðum að einbeita okkur að þeim hópi. Við eigum báðir
börn og þekkjum hvernig það er þegar mann langar til að
fara með þau í bíó. Þá eru kannski ein, tvær, þrjár mynd-
ir sem hægt er að velja um og þau kannski búin að sjá
þær allar,“ útskýrir Jón.
Þeir stofnuðu fyrirtækið í fyrra og hófu strax að leita
að myndum sem þeir gætu dreift hér á landi. „Við feng-
um sendan fjölda mynda víðs vegar að en spænska mynd-
in varð ofan á. Þetta er skemmtilegt ævintýri um baráttu
góðs og ills með drekum og þessháttar ævintýrafígúrum
sem eru í uppáhaldi hjá börnum,“ segir hann og bætir við
að mikil gróska sé í teiknimyndagerð á Spáni.
Út í djúpu laugina
Jón er lærður leikari en segist lítið hafa komið nálægt
leiklistinni. Hann hefur þó tekið þátt í áhugamannaleik-
húsi, m.a. nokkrum uppfærslum með Leikfélagi Hafn-
arfjarðar. Hann starfaði áður hjá póstinum í heimabæ
sínum en segist alltaf hafa verið gagntekinn af kvik-
myndum og kvikmyndagerð.
„Við vissum í rauninni lítið hvað við vorum að fara út í
og má segja að við höfum hent okkur í djúpu laugina
strax. Tæknihliðin var okkur til dæmis lokuð bók þótt við
vitum talsvert um þetta núna. En við fengum gott fólk til
að vinna með okkur og þetta gekk mjög vel.“
Fengu styrk
Aðspurður um framhaldið segir Jón að þeir stefni á að
dreifa fleiri myndum og þeir séu núna að leita eftir góðu
efni. „Við ætlum nú samt að bíða og sjá hvernig þessi
mynd gengur enda er mjög dýrt að standa í þessu, tal-
setning á íslensku er til dæmis mjög kostnaðarsöm.“
Hann bendir á að þeir hafi fengið styrk til verkefnisins
frá MEDIA sem sé sjóður á vegum Evrópusambandsins.
Sjálfur hefur Jón gaman af því að horfa á góðar barna-
myndir og á sér sínar uppáhalds myndir í þeim flokki.
„Það var ógleymanlegt þegar maður sá Lion King í bíó og
svo var Toy Story frábær. Þá var fyrir nokkru sýnd
hérna japönsk teiknimynd sem hét Nemó litli sem var
góð.“
Nýtt fyrirtæki dreifir kvikmyndum fyrir börn
Jóni Sigurðssyni finnst vanta efni fyrir börn.
Lion King
í uppáhaldi