Morgunblaðið - 09.07.2004, Síða 10
FRÉTTIR
10 FÖSTUDAGUR 9. JÚLÍ 2004 MORGUNBLAÐIÐ
SVO virðist sem veiði sé víðast hvar
góð og jafnvel mjög góð, en það
væri líka eitthvað bogið við ástandið
ef að svo væri ekki, því nú er að fara
í hönd sá tími sumars sem laxa-
göngur eiga að vera að komast í há-
mark.
„Hér gengur frábærlega, það eru
miklar göngur og veiðin er komin
yfir 230 laxa. Það er tvennt sem er
einkar gleðilegt fyrir utan þetta
mikla laxamagn og það er hvað mik-
ið er af stórlaxi í bland við smálax-
inn og eins hvað allur laxinn er frá-
bærlega vel haldinn og fallegur,“
sagði Einar Sigfússon, annar eig-
enda Haffjarðarár, í gærdag. Hann
sagði frá sérstaklega skemmti-
legum morgni á miðvikudaginn, en
þá veiddust 17 laxar í ánni, þar af 11
í Sauðhyl einum. „Þeir komu allir á
Hitch-túpur og til marks um hvað er
mikið af stórum fiski, þá voru fimm
þessara ellefu laxa á bilinu 10 til 14
pund,“ bætti Einar við.
„Grímsá er seinni til en hinar á
svæðinu, en hún er komin í gang svo
um munar,“ sagði Egill Krist-
jánsson, staðarhaldari á Fossási við
Grímsá. Hann sagði um 170 laxa
komna á land og mikill lax væri í
ánni, og kominn upp um alla á.
Dæmi um gang mála er að á þriðju-
daginn veiddust 30 laxar á átta
stangir. „Aðaltíminn er byrjaður, nú
er gaman,“ bætti Egill við.
Góðar tölur úr Brennu
og Straumum
„Steini kokkur“ í veiðihúsinu að
Helgavatni við Þverá sagði veiði
ganga vel í Þverá og Kjarrá. Hann
var ekki alveg viss með töluna, en
sagði hana fyrir nokkrum dögum
hafa verið um 250 fyrir bæði svæð-
in. Síðan væru komnir á annað
hundrað í viðbót, en hann var ekki
alveg viss um hver nákvæm tala var
og hafði ekki tök á að glugga í veiði-
bók. Lætur nærri þó samkvæmt
þessu að heildarveiði í Þverá/
Kjarará sé vart undir 400 löxum.
Þá eru góðar tölur að berast bæði
úr Brennu og Straumum og ugg-
laust er við það sama í Svarthöfða.
Nýleg tala úr Straumum var t.d.
nærri 90 laxar, þar hófst veiði hinn
1. júní, en hinn 22. júní voru aðeins
sex laxar komnir á land og má af því
sjá hversu líflegt verið hefur síðan.
Víðast líflegt
Morgunblaðið/Einar Falur
Þorsteinn J. Vilhjálmsson landar fjögurra punda bleikju í Brunná.
ERU
ÞEIR AÐ
FÁ’ANN?
SIGRÚN Jóhannesdóttir, forstjóri
Persónuverndar, segir að áður en
menn gangi lengra í að útfæra hug-
myndir um að setja tölvukubb í
hverja einustu bifreið sé rétt að þeir
skoði sinn gang vandlega í ljósi
grundvallarmannréttinda og lög-
gjafar um persónuvernd.
Í Morgunblaðinu í gær var sagt
frá því að Böðvar Bragason, lög-
reglustjóri í Reykjavík, hafi greint
frá þeirri hugmynd sinni á fundi um
ársskýrslu lögreglunnar í Reykja-
vík, að setja tölvukubb í hvern ein-
asta bíl, til að stemma stigu við slys-
um.
Í ræðu sinni sagði Böðvar m.a:
„… lögreglan [gæti] stöðvað bifreið
og tengt kubbinn við sínar eigin
tölvur og séð aksturslag bifreiðar-
innar bæði þann dag sem athugaður
er og líka það sem áður hefur gengið
á“.
Sigrún segir að menn ættu að fara
sér hægt í þessum málum.
„Við höfum í
sögunni séð mörg
dæmi sem minna
á hugmyndir sem
þessar. Samhliða
því sem menn
ræða slíkar hug-
myndir verða
þeir hins vegar að
taka afstöðu til
þess hvort enda-
laust sé hægt að
réttlæta slíkt eftirlit með vísun til
aðsteðjandi ógnar og ótta við glæpa-
menn eða hryðjuverkamenn.
Uppskera ekki aukið öryggi
Einnig skiptir máli að reynslan
hefur síður en svo sýnt að setja megi
samasemmerki milli aukins eftirlits
með hinum almenna borgara og
þess öryggis sem hann uppsker,
jafnvel þvert á móti,“ segir Sigrún
og bendir á að víða hafi verið horfið
frá slíkum hugmyndum þar sem þær
hafi komið upp í Evrópu en aðrar
leiðir verið farnar í staðinn, eigend-
um bíla verið boðið að kaupa slíkan
búnað sjálfir og setja í bíla sína.
Sigrún segir að þess séu dæmi
hér á landi að slíkur búnaður sé í
fyrirtækja- og bílaleigubílum.
„Notkun búnaðarins í þeim tilvik-
um byggir á eignarvörslu- og örygg-
issjónarmiðum eigenda en ekki víð-
tæku eftirliti ríkisins. Er þá
forsenda að ökumenn þeirra bíla viti
af búnaðinum og veiti samþykki sitt
fyrirfram, þannig að tryggt sé að
ekki sé komið í bakið á mönnum,“
segir Sigrún.
Hún segir að mikill munur sé á að
nota slíkan búnað sem öryggistæki
fyrir einstaka bíla og að beita hon-
um sem eftirlitstæki í umferð. „Ná-
kvæmt eftirlit ríkisins með borgur-
um þess hlýtur ávallt að vekja upp
spurningar um hvort slíkt standist
grundvallarreglur um friðhelgi
einkalífsins,“ segir Sigrún.
Sigrún Jóhannesdóttir forstjóri Persónuverndar
Sigrún
Jóhannesdóttir
Menn ættu að skoða sinn gang
„Tækni-
lega séð
finnst mér
þetta fá-
ránlegt. Að
ætla sér að
fylgjast
með öllum
ökumönn-
um er of langt gengið og
brot á friðhelgi einkalífs-
ins,“ segir Andri Freyr
Ólason. Hann segir að þótt
Íslendingar séu slæmir
ökumenn upp til hópa og
huga þurfi að bættri um-
ferði, sé þetta röng leið.
Röng leið
„Mér
finnst of
langt
gengið
með
þessari
hug-
mynd og
hún er í
raun gjörsamlega út í
hött,“ segir Atli Þórð-
arson. Hann segir að með
sömu rökum gætu menn
allt eins sett tölvukubba í
fólk, til að vita hvar það
sé statt og hvort það sé að
gera eitthvað af sér.
Út í hött
„Ég held
að þetta
sé skref í
rétta átt
enda er
umferðin
hér á
landi
ekkert til
að hrópa húrra fyrir,“ seg-
ir Ingólfur Arason.
Hann segir að þótt upp-
taka slíks eftirlits sé já-
kvæð sé ekki víst að aukið
eftirlit dugi til að laga um-
ferðarvandamál hér á
landi.
Skref í rétta átt
„Það er
mjög af
hinu góða
að setja
svona
tölvu-
kubba í
bíla. Þetta
er sjálf-
sagt mál og þó fyrr hefði
verið,“ segir Jónína Ólafs-
dóttir sem telur að með
þessu yrði frelsi manna
ekki skert um of. Jónína bjó
í Bretlandi og sá ýmislegt
athugavert við ökulag
manna við heimkomuna.
Sjálfsagt mál
Morgunblaðið ræddi við nokkra ökumenn um hugmyndir lög-
reglustjórans í Reykjavík um að setja tölvukubb í bíla til að fylgj-
ast megi með ökulagi manna. Hugmyndin fékk misgóðar viðtökur.
NÝTT fjölmiðlafrumvarp ríkisstjórn-
arinnar og frumvarp stjórnarand-
stöðunnar um framkvæmd þjóðarat-
kvæðagreiðslu voru bæði send til
umsagnar í gærmorgun á fyrsta
fundi allsherjarnefndar um þessi mál.
Að sögn Bjarna Benediktssonar,
formanns allsherjarnefndar, unnu
stjórn og stjórnarandstaða í góðu
samstarfi og sátt ríkti um hjá hverj-
um yrði leitað álits. Umsögnum skal
skilað fyrir næsta miðvikudag en að
sögn Bjarna er stefnt að því að af-
greiða frumvörpin úr nefndinni á
miðvikudag eða fimmtudag í næstu
viku. Eftir að frumvarp er afgreitt út
úr allsherjarnefnd fer fram önnur
umræða um það þar sem álit allsherj-
arnefndar og umsagnaraðila eru höfð
til hliðsjónar. Í framhaldi af því er
greitt atkvæði um hvort frumvarpið
fer til þriðju umræðu.
Allsherjarnefnd hélt einnig annan
fund eftir hádegi í gær með fulltrúum
starfshóps ríkisstjórnarinnar sem
fjallaði um framkvæmd þjóðarat-
kvæðagreiðslunnar. Bjarni segir að
farið hafi verið yfir skýrslu starfs-
hópsins og rætt um lögfræðileg álita-
efni varðandi nýtt frumvarp ríkis-
stjórnarinnar. „Þetta var gagnlegur
fundur og nefndin mun halda áfram
að hitta sérfræðinga,“ sagði Bjarni og
bjóst hann við að nefndin myndi í dag
hitta lögfræðinga og nefndi hann Pál
Hreinsson, Eirík Tómasson og Davíð
Þór Björgvinsson. Eftir hádegi er
ætlunin að hitta viðbragðshóp Þjóð-
arhreyfingarinnar.
Bjarni segir að næstu daga verði
aðallega fundað með lögfróðum
mönnum. „Það helgast af því að
nefndin er að skoða stjórnskipulega
stöðu stjórnafrumvarpsins. Það hef-
ur ekkert annað komið í ljós hingað til
en að þetta sé stjórnskipulega full-
komlega fær leið. Við munum halda
áfram að skoða það nánar,“ segir
Bjarni.
Fyrsti fundur allsherjarnefndar um tillögur stjórnar og stjórnarandstöðu
Bæði frum-
vörpin send
til umsagnar
Morgunblaðið/Ásdís
Bjarni Benediktsson, formaður alls-
herjarnefndar. Nefndin mun leita
álits lögfróðra manna næstu daga.
arviðhorfanna sem þarna takast á.“
Steingrímur segir að stjórnarand-
staðan leggi áherslu á að skoða hvort
aðferð ríkisstjórnarinnar gangi upp.
„Sá hópur viðmælenda sem við höf-
um kallað til okkar markast af því að
við ætlum að einbeita okkur að því
að skoða þessi stóru stjórnskipulegu
grundvallaratriði málsins,“ segir
Steingrímur og bætir við að stjórn-
arandstaðan muni jafnframt boða á
sinn fund fulltrúa samtaka sem geta
talist gæslumenn réttinda fólks.
aga sig í góðum vinnubrögðum. Mál-
ið þarf að fá ítarlega og vandlega
skoðun en þó höfum við ekki ótak-
markaðan tíma.“
Steingrímur segir starf allsherj-
arnefndar hafa farið vel af stað og að
enginn ágreiningur sé um upphaf
vinnunnar. „Við erum ánægð með að
bæði málin eru unnin þinglega því
Alþingi hefur ekki tekið afstöðu til
þess hvaða viðbrögð verða valin. Það
breytir því þó ekki að það er enn
himinn og haf á milli grundvall-
FORMENN stjórnarandstöðuflokk-
anna funduðu í gær fyrir fund alls-
herjarnefndar og fóru yfir áherslur.
Steingrímur J. Sigfússon, formaður
Vinstri hreyfingarinnar – græns
framboðs, segir að samstaða stjórn-
arandstöðunnar sé jafngóð og hún
hafi verið og að mikilvægast sé að
vinna allsherjarnefndar og þingsins
sé eins markviss og hnitmiðuð og
mögulegt er. „Okkur finnst vera svo
mikið í húfi að Alþingi beri skylda til
að vanda sig alveg sérstaklega og
Vilja leggja áherslu á
markviss vinnubrögð
Morgunblaðið/Ásdís
Mikil samstaða ríkir hjá stjórnarandstöðunni en formenn flokkanna funduðu í gær. Össur Skarphéðinsson, Guðjón
Arnar Kristjánsson, Steingrímur J. Sigfússon og Bryndís Hlöðversdóttir á leið til fundarins í gær.