Morgunblaðið - 09.07.2004, Page 20
Höfuðborgin | Akureyri | Suðurnes | Austurland | Landið
Minnstaður
Höfuðborgarsvæðið Svavar Knútur Kristinsson, svavar@mbl.is, sími 569-1100.
Suðurnes Helgi Bjarnason, helgi@mbl.is, sími 569-1310 og 669-1310. Akureyri Skapti
Hallgrímsson, skapti@mbl.is, Margrét Þóra Þórsdóttir, maggath@mbl.is og Kristján
Kristjánson, krkr@mbl.is, sími 461-1600. Vesturland Ásdís Haraldsdóttir, asdish@mbl.is,
sími 898-5258. Austurland Steinunn Ásmundsdóttir, austurland@mbl.is, sími 669-1115.
Árborgarsvæðið og Landið Guðrún Aðalsteinsdóttir, frett@mbl.is, sími 569-1290.
Mínstund frett@mbl.is
Mansakeppni á Suðureyri | Mansavinir
standa fyrir árlegri Sæluhelgi á Suðureyri
við Súgandafjörð um helgina. Hátíðin hófst
í gær en lýkur á sunnudag.
Margt verður um að vera á Sæluhelginni.
Í dag verður meðal annars kassabílarall
fyrir tólf ára og yngri. Keppendur í Vest-
fjarðavíkingnum verða á ferðinni og keppa í
steinatökum á Sjöstjörnu. Í kvöld verður
fjölskylduhátíð í Þurrkveri.
Á morgun verður hin þekkta mansa-
keppni, þar sem börnin keppast við að veiða
marhnúta og keppt er í um Vestfjarðabik-
arinn í róðri á Lóninu, svo nokkuð sé nefnt.
Á sunnudag verður Sæluhátíð á kambinum
við Þurrkver.
Gefið hefur verið út Sæluhelgarlagið Sól-
in sendir yl eftir Siggeir Siggeirsson við
texta Steinunnar Þórhallsdóttur og Siggeir
flytur sjálfur.
Úr
bæjarlífinu
HÉÐAN OG ÞAÐAN
Óþverri í miðbænum | Deild 21 í Vinnu-
skóla Ísafjarðarbæjar, sem einbeitir sér að
umhverfismálum, tíndi nýverið 5.283 sígar-
ettustubba á einum degi, í miðbæ Ísafjarð-
ar. Kemur þetta fram í frétt á vef Bæjarins
besta. Haft er eftir
Atla Garðarssyni verk-
stjóra að hópurinn hafi
farið yfir svæðið frá
hringtorginu niður
Hafnarstræti og Að-
alstræti að Edinborg-
arhúsinu og út í hlið-
argötur á leiðinni að
einhverju leyti. Sam-
kvæmt útreikningum
Deildar 21 samsvara stubbarnir 264 sígar-
ettupökkum eða liðlega 26 kartonum og var
söluverðmæti tóbaksins um 130 þúsund
krónur.
Nýr í bæjarráði | Lúðvík Bergvinsson,
bæjarfulltrúi og alþingismaður, var kosinn
á ný í bæjarráð Vestmannaeyja á fundi bæj-
arstjórnar í fyrrakvöld. Tekur hann sæti
Stefáns Óskar Jónassonar.
Andrés Sigmundsson, for-
maður bæjarráðs, verður
áfram hinn fulltrúi meiri-
hlutans og Arnar Sigur-
mundsson fyrir minnihlut-
ann.
Kosið var í nefndir og
stjórnir á vegum bæjarins
samkvæmt nýrri bæjarmálasamþykkt og
tekur fólkið við embættum sínum 1. ágúst,
eftir að samþykktin hefur verið formlega
staðfest. Auk bæjarráðs verður starfandi
fjölskylduráð, menningar- og tómstunda-
ráð, skólamálaráð, umhverfis- og skipulags-
ráð og hafnarstjórn. Sjö fulltrúar eru í öll-
um þessum nefndum nema hvað þrír eru í
bæjarráði og fimm í hafnarstjórn.
„TILLAGA mín
er sú að gleym-
mér-ei verði
þjóðarblóm Ís-
lands, þó ekki sé
nema vegna þess
að nafnið er fallegt og skírskotar til
vináttu og kærleika. Sjálfur man ég
eftir því að hafa sem lítill strákur
tínt þetta blóm hér í heimatúninu,
sem ég hengdi á mömmu og pabba.
Það eru fallegar minningar,“ segir
Haraldur Benediktsson, bóndi á
Vestari-Reyni undir Akrafjalli og
formaður Bændasamtaka Íslands.
Haraldur segir að við sveitabæ-
inn þar sem hann býr eigi gleym-
mér-ei, þetta bláa blóm, nokkuð
erfitt uppdráttar. „En engu að síð-
ur heldur það sínu striki merkilega
vel. Er lífseigt. Mér finnst líka gam-
an að í dag eru börnin mín gjarnan
að tína þetta bláa fallega blóm hér
úti í högunum sem þau koma síðan
með heim og punta pabba sinn og
mömmu með. Rétt eins og ég gerði
við foreldra mína í gamla daga.
Kærleikskeðjan rofnar ekki.“
Kærleikskeðjan rofnar ekki
Haraldur Benediktsson, formaður
Bændasamtaka Íslands.
Skírskotað til vináttu.
„Tíndi gleym-mér-ei í
túninu,“ segir Har-
aldur Benediktsson BLÓMIN eru frekar smá, fimmdeild.
Krónublöðin oftast blá yst, stundum
bleik, en gul innst. Stundum er eins
og hvítleit stjarna út frá gula litnum
í miðjunni. Bikarblöðin sem eru und-
ir krónublöðunum eru alsett hvítum
krókhárum svo hægt er að festa
plöntuna á föt eins og margir hafa
gaman af að gera. Stöngull og lauf-
blöð eru einnig alsett hvítum hárum. Gleym-mér-ei finnst um alla Evrópu og hér á
landi er hún algeng í högum og mólendi á láglendi, en finnst þó aðallega í grennd við
byggð, gjarnan í hlaðvörpum og á milli gangstéttarhellna. Hún blómgast í júní og
júlí.
Heimild: Hörður Kristinsson 1986. Plöntuhandbókin. Blómplöntur og byrkningar. Íslensk náttúra II. Örn
og Örlygur, Reykjavík. 306 bls.
Ljósmynd/Jóhann Óli Hilmarsson
Gleym-mér-ei
(Myosotis
arvensis) af
munablómaætt
Árni Reynisson leik-ur sér með nafniðDiljá í limru:
Dama er kölluð Diljá.
Dag nokkurn kom hún að Giljá.
Og sjá, þar var piltur,
hann sagði: Hvort viltu?
Þá svaraði Diljá: Ég vil já.
Svo yrkir hann um Láru
og byggir á sönnum at-
burði:
Þarna labbar hún Lára
með lúna fætur og sára
bæði ökkla og tær
gekkún af sér í gær
og nú fer að styttast í nára.
Loks yrkir hann um
gönguferð á fjallið Grá-
brók:
Skötuhjú gengu á Grábrók.
Það er gaman að rölta á þá brók.
Og lengi var áð
þegar upp höfðu náð.
En í gígnum gleymdu þau smábrók.
Á Grábrók
pebl@mbl.is
SKEMMTIFERÐASKIP eru tíðir gestir á Akur-
eyri en aðrir sjófarendur láta sér hvergi bregða og
halda sínu striki. Enda plássið nóg á Pollinum fyr-
ir trilllur og hraðbáta þrátt fyrir stóru gestina.
Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson
Stór fley og lítil á Pollinum
Á sjó
BYGGÐASTOFNUN hefur á síðustu
tveimur árum, þ.e. 2002 og 2003, afskrifað
lánafjárhæð upp á rúmar 1.100 milljónir
króna. Efla þarf eiginfjárstöðu stofnunar-
innar þar sem eigið fé hefur rýrnað og stofn-
unin komin óþægilega nálægt þeim mörkum
sem sett eru í lögum um fjármálafyrirtæki.
Aðalsteinn Þorsteinsson, forstjóri
Byggðastofnunar, segir þessar afskriftir
dreifast á mörg ár en að uppistöðu til séu
það vegna lán frá árunum 1997 til 2000.
Þessi síðustu ár hafa verið slæm þótt þau
séu ekki einsdæmi í sögu Byggðastofnunar.
„Eins og komið hefur fram höfum við lent
í gríðarlegum áföllum vegna gjaldþrota og
uppboða hótela víða um landsbyggðina. Við
höfum orðið að leysa til okkar fjölda hótela
og selja aftur og í þeim tilvikum höfum við
þurft að afskrifa allt að 50% og jafnvel meira
í einstaka tilvikum. Það hafa verið gríðar-
lega stórar upphæðir í því og þetta liggur að
töluverðu leyti þar,“ segir Aðalsteinn en
tekur þó fram að þarna eigi einnig í hlut
fiskvinnslufyrirtæki án kvóta og smærri
iðnfyrirtæki af ýmsu tagi.
Aðspurður segir Aðalsteinn afskriftir
hafa verið ívið minni í fyrra en árið 2002 og
menn vænti þess að þær verði einnig minni í
ár. „Við erum að leyfa okkur að vona það,
þrátt fyrir allt, að botninum sé að verða náð í
þessu. Það sem liggur fyrir og verður gert
næstu mánuðina er að við eigum viðræður
við iðnaðarráðuneytið um ákveðnar leiðir til
þess að laga þetta. Ég er vongóður um að
það skili einhverjum árangri á þessu ári.“
Afskriftir
rúmur 1,1
milljarður
Styrkja þarf eiginfjárstöðu
Byggðastofnunar
Sauðárkrókur | Valgerður Sverrisdóttir
iðnaðarráðherra opnaði formlega sýn-
inguna Þögul leiftur á Vesturfarasetrinu á
Hofsósi á dögunum. Með henni á myndinni
eru Wincie Jóhannsdóttir, fræðslu- og upp-
lýsingafulltrúi setursins, Valgeir Þorvalds-
son framkvæmdastjóri og Nelsin Gerrard
sem safnaði myndum og undirbjó sýn-
inguna.
Þögul leiftur í
Vesturfarasetrinu
♦♦♦