Íslendingaþættir Tímans - 04.03.1970, Blaðsíða 17

Íslendingaþættir Tímans - 04.03.1970, Blaðsíða 17
NNING Bunnlaugur Auðunn Jóhannesson Bakka Á nýjársdag lézt á sjúkrahúsinu á Hvamrastanga Gunnlaugur Jó- hannesson, bóndi á Bakka í Víði- dal 75 ára að aldri. Gunnlaugur fæddist á Auðunnarstöðum 16. nóvember 1894. Foreldrar hans voru hjónin Ingibjörg Eysteins- dóttir og Jóhannes Guðmundsson, sem bjuggu á Auðunnarstöðum frá árinu 1887. Jóhannes lézt fyr- ir aldur fram, árið 1908. en ingi- björg hélt áfram buskap með born- um sínum, þar til (iuðmundur son- ur hennar tók að fullu við bú- skapnum árið 1918 Gunnlaugur hóf skólagöngu og lauk gagnfræðaprófi frá., Akureýr- arskóla vorið 1914. Sama ár l)ðf hann nám í Menht'askölarium í " Reykjavík en sá náinsferill varð ek;ki langur. Þann vetur'fékk háflir lömunarveiki og varð hann aldrei alheill maður eftir það. Þessi veik- indaraun batt enda a skólagöng- una, og skildi við hann með stór- skertum líkamskröftum. Frá þeim tíma varð hann að styðjast við staf hvert sem hanm fór. Þegar svo var komið fór Gunnlutgur heim að Auðunnarstöðum og vann þar viö öll venjuleg bústörf á heim ili móður sinnar. Vorið 1921 kvæntist hann eftir- lifandi konu sinni Önnu Teitsdótt- ur frá Víðidalstungu. Þau voru á Auðunnarstöum fyrsta hjúskap- arárið en vorið 1922 fluttu þau að Bakka sem síðan varð heimili þeirra alla tíð. Bakki er frá náttúr- unnar hendi, fremur rýrt býli, og aðkoma þar ekki góð fyrir frum- býlinga. Húsakostur var lélegur, og heyfengur lítill. Það var því mikið, og erfitt verkefni framund- an, að reisa við jörðina, ekki sízt þar sem húsbóndinn var fatlaður af aflieiðingum lömunarveiki. En ungu hjónin hófust þegar handa. Það liðu ekki mörg ár þar til haf- in var bygging peiningshúsa, og síðar íbúðairhúss, hvort tveggja úr steinsteypu, sem þá var enn fátítt. Mest af þeirri byggingarvinnu framkvæmdi Gunnlaugur með eig- in höndum enda lagtækur í bezta lagi. Bakki komst fljótlega í tölu þeirra býla þar sem búið var rækt- unarbúskap og ný viðhorf í búskap arháttum samfara vélanotkun voru tekin í fulla þjónustu. Gunnlaugur var á rnargan hátt sérstæður maður og góðum hæfi- leikuan búinn. Hann hafði næmt auga fyrir nýjungum og notagildi þeirra og oft fljótur að tileinka sér þær. Áður er nefnt íramtak hans um ræktun og byggingar. Hann keypti fyrsta útvarpstækíð sem kom í þessa sveit. Það mun hafa , verið 1926, þegar Otto B. Arnar o.fl. voru að hefja sitt til- (raunaútvarp. Dráttarvél keypti Gurinlaugur strax og kostur var. Fékk hann eina af fyrstu heimilis- dráttarvélunum sem kornu í hér- aðið. Gunnlaugur átti sæti á aðal- fundum Kaupfélags V.-Húnvetn inga á þriðja tug ára. Formaður Búnaðarfél. Þorkelshólshrepps var hann frá 1951—67 og átti þá jafn- framt sæti á aðalfundum búnaðar sambandsins. Gunnlaugur var skemmtilegur fundarmaður. Hann hafði alltaf eitthvað að segja, sem létti hugann, jafnframt því sem rætt var um venjuleg málefni. Hann var frjór í hugsun og fljót- ur að koma auga á gagnlegar nýj- ungar, þó samfara gætni og stund um íhaldssemi, að gera það eitt, sem hann taldi ekki of áhættu- samt. Kaupfélagi sínu vann hann af lieilum huga og áhugasamari fé- lagsmenn en hann voru ekki marg- ir. Gunnlaugur unni söng af lífi og sál. Hann hafði fallega teriórrödd og söng í kariakór nær fjóra ára- tugi. Ferðalög hans á 'söhgæfingar voru lengst af á hesti og ekki allt- af auðveld, bæði vegna anna ein- yrkjans, við bústörfin, og svo var löng leið að fara á æfingar. En til þess hafði Gunnlaugur alltaf tíma. Eitt af því sem Gunnlaugur átti drjúgan þátt í á síðasta skeiði æv- innar, var að koma í framkvæmd byggingu tveggja búa, á Víðidals- á í fraimanverðum Víðidal. Sam- gönguerfiðleikar voru orðnir eitt mesta vandamál þeirra, sem bjuggu í framanverðum Víðidal. En með brúarbyggingunum voru þau leyst. Oft hefur fyrr og síðar heyrzt gagnrýni á vega- og brúar- gerð inn til dala og kanmski líka út við strönd, þar sem umferð er lítil. En núorðið nær byggðin ekki lengra en þangað sem hægt er að koma við nútíma samgöngum. Þetta mun nú flestum ljóst orðið. Mörgum var það undrunarefni hverju Gunnlaugur gat afkast- að svo fatlaður sem bann var. En þar kom til bæði meðfædd skap- festa og hagsýni um alla hluti sem við var fengizt. En vissulega var hann ekki einn að verki. Hann átti duglega og ágæta konu, og börnin munu hafa hjálpað til strax og þau höfðu getu til. Þau Anna og Gunnlaugur eignuðust níu börn eitt dó í æsku, en hin eru nu löngu uppkomin og hafa flest stofn að sitt eigið heimili. Gunnlaugur hefur nú lokið ævi- starfi og fengið hvíld, eftir langan og annasaman starfsdag. Með hon- um er fallinn einn af þeirn, sem 1 bókstaflegri merkingu, unnu sig með eigin starfi, frá aldagömlum, og frumstæðum búskaparháttum og starfsaðferðum og til nútíma vélvæðingu og starfsaðstöðu. Blessuð sé minning hans. Lækjarmóti 20. jan. 1970. Sig. J. Líndal. ÍSLENDINGAÞÆTTiR 17

x

Íslendingaþættir Tímans

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Íslendingaþættir Tímans
https://timarit.is/publication/303

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.