Íslendingaþættir Tímans - 04.03.1970, Blaðsíða 20

Íslendingaþættir Tímans - 04.03.1970, Blaðsíða 20
Formáli og gamalt erfiljóð Halldór Benjamínsson fæddist 16.1. 1853 í Sauðlauksdal. Faðir hans var Benjamin Ma?nús- son Bjarnasonar frá Seljalandi í Gufudalssveit. Móðir Benjamíns var Sesselja Þórðardóttir frá Mið- hlíð á Barðaströnd. Móðir Halldórs var Ingi’björg Bjarnadóttir, bónda i Hænuvík Halldórssonar. Benjamín og Tugibjörg voru vinnuhjú séra Gísla ÓlafSsonar. Halldór fer með foreldrum sín- um að Geitagili og voru þau Þar í 4 ár. Þá fara þau vinnuhjú að Bröttuhlíð en Halldór mun þá hafa farið til afa síns Magnúsar Bjarna- sonar sem þá var bóndi í Stekka- dal. 12 ára gamall er Halldór kom- inn til foreldra sinna að Bröttu- hlíð, en^Þá voru þau tekin við búi þar. Árið 1867 deyr Ingi- björg móðir hans og faðir hans hættir búskap. Systur Halldórs, sem þá voru ein- ar lifandi af systrum hans, Rósa, f. 9.11. 1851 og Sesselja, f. 7.12. 1865 fóru að Sjöundá, en Halldór fer vinnupiltur að Stekkadal til Sigfreðs Ólafssonar. Árið 1870 fer hann vinnumaður til Jóns Ólafssonar að Króki 1872 fer hann að Stökkum, en árið 1882 er Halldór kominn vinnumaður að Skógi til systur sinnar, Rósu og manns hennar Ivars Magnússonar, ásamt heitmey sinni Ingibjörgu Árnadóttur bónda á Stökkum og síðar á Lambavatnl og syni þeirra Ingimundi fædd- um 11.4. 1879, síðast bónda á Hvallátrum, dáinn 29.5. 1959. Ingi- björg Árnadóttir deyr úr misling- um 1882. Árið eftir fer Halldór vinnumaður að Sjöundá með son sinn Ingimund. Árið 1890 eru þeir feðgar á Nauia- brekku og 1892 í Kefla- vlk. Þar kvæntist Halldór 16.10. sama ár, Önnu dóttur bóndans þar, Jóns Gíslasonar. Halldór er orðinn bóndi I Keflavík 1898 og er það tR dauðadags 16.10. 1905. Ekkja hans, Anna Jónsdóttir, heldur búi éfram eftir lát manns síns með stjúpsyni sínum Ingimundi og börn um slnum um nokkur ár. Börn Halldórs og Önnu voru: Ólafur Halldór, f. 1.0. 1803. Húsmaður á Hvallátrum, d. 29.11. 1065. Áslaug Ingileif, f. 11.1. 1898, bú- sett í Reykjavík. Hafliði, f. 6.9. 1899, bóndi ó Hvallátrum og víðar, nú á Patreks- firði. Guðbjörg Ingveldur f. 9.12. 1901 d. á Siglufirði um 1923/ Eftir að Benjamín faðir Hall- dórs missti konu sína og lét af búskap í Bröttuhlíð, var hann vinnumaður á ýmsum stöðum í Rauðasandshreppíj ehdhugði .þó til hjúskapar með Gunnhlldi Ólafs- dóttur, en sveitarstjórn var á móti að svo mætti verða. Áttu þau sam- an þrjú börn: ólöfu f. 7.9. 1870, búkona í Litla-Laugardal í Táikna- firði, dó á Patreksfirði. Magnfríði f. 9.10. 1876, kona Guðritórídar Þorlákssonar Kaupféiadsstjóra á Þingeyri og Ingimund f..5.tó. 1883, fórst I snjóflóði í Hnífádal. Benjamín dó 1 Kirkjuhvammi hjá dóttur sinni Rósu, 8. apríl 1897, 77 ára. Samtíma búskap var Halldór Benjamínsson við róðra á vorin á árabátum í ýmsum verstöðvum í hreppnum, sem þá var algengt. Kefiavík var talin með betri hlunn- indajörðum í Rauðasandshreppi. Bjargfuglaveiði góð og að jafnaðl nægur rekaviður til húsagerðar og stutt á fiskimið vor og sumar. En brimasamt var oft er vindur var frá suðaustri til vesturs. Útbeit fyr- ir sauðfé ágæt og Þari að jafnaði nógur'við sjóinn. Keflavík er um- girt fjölíum alla vega nema til suð- urs. Samgöngur voru þvi erfiðar. En á þeim tíma. var hesturinn eða maðurinn. sjálfur eina flutn- ingatækið, ,sem ekki krafðist neins af öðram um aðdrætti til búsins og pkki þótti búmannslegt meðal efnaðrá bænfla. ef vara, snm þurfti til vetrarins, var ekki að mestu fiutt heim að haustinu áður en yfir lagði snjóa og svellalög. Aðal aðdráttarleið til Keflavíkur annað en fiskifang var vfir fjallið til Ör- lygshafnar og sást varla fyrir vegl þá leið að sumri til. Keflavík hef- ur um m’örg ár verið í eyði. En þar er skipbrotsmannaskýlið Guð- rúnarbúð og bílfært að mestu orð- ið þangað nú. Erfiljóð þau, sem hór eru birt um Halldór Benjamínsson, móðú#* bróðir minn, orti Pétur Jónssoa fræðimaður á StÖkkum. ivar ívarsson. Nú er hnlgin hurð að stöfum i skiirúms-vegg skapa dóma, Horfinn er Halldór hölda sjónuna Benjaminsson til betra heims. f. 16. jan. 1853 d. 16. okt. 1905. Skarð er hér fyrir skiidi oi'ðið en harmur ríkir með heimamönnum. Því horfinn er héðan húsfaðír beztur og genginn allrar . veraldar1 veg. Þreftán ár; p þessum ranni húsúm hann réð með bolivinum. Harrnar hann nú ekkja höfgum tárum, syrgja hann {vær dætur og synir þrír. Ástríkur var hann ekta maki og blíður faðir barna sinna. Húsfaðir bezti og hölda sómi, hógvær, hreinlyndur og hjartagóður. Hugprúður var hann á hinztu stundu, og sjúkdóm sinn bar með sálarþreki. Miðlaði huggun harmandi vinum byggðrl á frelsarans fyrirheitum. Greiðvikinn var hann grönnum sínum, og göfuglyndur svo gat sér ástir. Fór því síðast, er fluttist héðan sáttur við alla samferðamenn. Veittu hugstyrk heilagi guð 20 ÍSLENDINGAÞÆTTIR

x

Íslendingaþættir Tímans

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Íslendingaþættir Tímans
https://timarit.is/publication/303

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.