Íslendingaþættir Tímans

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Saqqummersitaq pingaarneq:

Íslendingaþættir Tímans - 10.07.1970, Qupperneq 24

Íslendingaþættir Tímans - 10.07.1970, Qupperneq 24
fynr alvarlegu aíalli Fékk liún mjög illkynjað fótasár sem hún bjó að alla ævi eftir það. Var þetta svo alvarlegt að aldrei sekk hún óhölt eftir bað og oft þann- ig að hún gat alls ekír stigið 1 fótinn. Hún leitaði til margra lækna og dvaldi á sjúkrahúsi, en allt var árangurslaust. nema rétt i bili. Sennilega hefði þetta geng- ið betur nú með þeirri tækm og þekkingu, sem nú er fvrir hendi. Ég hygg að slíkt áfall cvg hér hefur verið lýst, hefði verið ærið nóg, til að mörg unga konan hefði rnisst kjarkinn, og má slíkt ekki teljast óeðlilegt. því hart er að vera dæmdur úr leik á bezta aldri. En Margrét bar betta allt. með stmingu og einstakri hugarró og vann að sínu heimiii eftir sem áð- ur, þótt hoppa vrði stundum á einurn fæti miili vinilustaða. Það var sérstakiega kært milli þeirra systranna. móður minnar og Margrétar. og er óhætt að segja sð þær skiptu. bita og sopa 'milli búanna. ef svo stóð á. Guðjón föðurbróðir mion fædd- ist á Þórustöðum 11. janúar 1888. Hann ólst upp hiá foreldrum sín um. og var hjá þeim þar til hann tók við búi siáifur. Foreldrar hans voru eins og áður er sagt Ólafur Magnússon. Hallssonar frá Efri- Brunna í Saurbæ, og Elisabet Einarsdótt.ir Þórðarsonar í Snartar tungu í Bitru. Voru bau á ýmsan hátt hin merkustu hión. og bjuggu á bórustöðum frá 1876 til 1911. Guðjón var dugnaðarmaður, verklaginn og snyrtimaður í aliri umgengni, bæði utan húss og inn- an, hafði létta lund, og oft með gamanmál á vörum. Hann hafði sérstakan áhuga á öllum veiði- skap, og minnist ég margra skemmtilegra stunda með honum í veiðiferðum, bæði á sjó og landi. Og síðari árin hafði hann gaman af að rifja þetta upp. Hann var ágætur fjármaður, og fór vel með allar sínar skepnur: Á Þórustöðum bjuggu þessi góðu hjón í sambýli við foreldra mína frá 1911 til 1929, og ég og kona mín tíu ár í viðbót, eða til 1939, er þau hión fluttu að Gauts- dal í Geiradalshreppi, til dóttur sinnar og tengdasonar. Þetta var því orðið óvenjplangt sambýli hjá iafnstórum fjölskyld- um, og lengst af var búið í til- tölulega litlum torfbæ, þar sem ekki var aðstaða tii að hver væri sér með sitt, heldur var sama eldavélin, sama búrið og allt eftir því. í þessum litla bæ var oft 15— 16 manns, og þætti slíkt ekki við- unandi nú á tímum, hvorki heilsu- farslega séð, eða á annan hátt, og oft hef ég hugsað um það, að það merkilega gerðist, að aldrei hefur neinn sjúkdómur komið upp í þessum fjölskyldum, sem hægt var að rekja til þeirra aðstæðna er þarna voru fyrir hendi. Held ég að einmitt þetta segi sína sögu þezt, að þá fyrst og fremst um húsmæðurnar, sem öli hirðing og hreinlæti hvíldi á. Sambýli við slík skilyrði, sem hér hefur verið lýst, er að sjálf- sögðu vandasamt, en ég held að ekki þurfi annað en benda á þann langa tíma sem hér um ræðir, til að álykta, að allt hafi verið í sæmi- legu lagl, og þó eitthvað væri, sem ekki var fullt samkomulag um, var það venjulega jafnað. Börn þeirra Margrétar og Guð- jóns voru þessi: Jónína Ragnheið- ur var gift Grími' Arnórssyni bónda á Tindum í Geiradal. Þau hafa nú slitið samvistum. Eiga þau eina dóttur og fvo syni. Ólafía Elísabet gift Ingólfi Helffa'vni fyrrv. bónda að Gautsdal í Geira- dal. Eiga þau tvo syni og einn fóst- urson. Gísli Kristján var kvæntur Unni Rögnvaldsdóttur kennara á Akranesi. Þau áttu þrjá syni. Gísli Kristján lézt 12. júlí 1965. Hann var sérstakt prúðmenni, og mikið valmenni á allan hátt. Bjarni Guð- jónsson, bifreiðastjóri, kvæntur Steinunni Sigurðardóttur frá Efra- Vatnshorni í Húnavatnssýslu. Þau eiga son og dóttur. Jón rafvéla- meistari kvæntur Arndísi Guð- jónsdóttur frá Bíldudal. Þau eiga son og dóttur. Eins og fyrr er sagt, fluttu þau hjón, Margrét og Guðjón til dótt- ur sinnar og tengdasonar að Gaut.s dal, og síðar með þeim til Akra- ness. Að sjálfsögðu unnu þau að búi þeirra í Gautsdal, eins og kraft ar leyfðu, og eins og þau ættu það sjálf., Gagnkvæmur skilningur ríkti innan fjölskyldunnar, og þarna leið þeim eins vel og bezt varð á kosið. Ævikvöldið varð bjart og hlýtt; og kunnu þau vel að meta þá aðhlynningu, er þeim var veitt til hins síðasta. En þrátt fyrir það ágæta heim- ilislíf er þau áttu við að búa. veit ég að hugur þeirra dvaldi oft fyr- ir norðan fjöllin, þar sem aðallífs- starfið var unnið, og lífsbar.íttan háð, þar sem vonirnar rættust og erfiðleikarnir voru yfirstignir. En yfir þeim bæ svífa nú að- eins minningar sem eru geymdar, en gleymast ekki. Ég þakka þessum heiðurshjón- um, og börnum þeirra fyrir ánægjulegt sambýli- og samstarf. Mér hefur alltaf fundizt við vera ein fjölskylda. Líkamsleifar þeirra Margrétar og Guðjóns hvíla nú í Akranes- kirkjugarði. Ég vona að yfir gröf þeirra hvíli alltaf ró og friður. Margrét Jóhanna lézt 31. des. 1966, en Guðjón 14. apríl síðast- liðinn. Það er heiðríkja yfir minning- . unni um þau í mínum huga, og svo mun um aðra, er þau þekktu. Ólafur E. Einarsson. 24 fSLENDINGAÞÆTTIR

x

Íslendingaþættir Tímans

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Íslendingaþættir Tímans
https://timarit.is/publication/303

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.