Íslendingaþættir Tímans - 10.07.1970, Blaðsíða 27
MINNING
BÖÐVAR FRIÐRIKSSON,
HREPPSTJÓRI Á SYÐRA-ÓSI
Ac5 morgni þjóðhátíðardagsins
17. júní, barst sú fregn um Mið-
fjörS, að Böðvar Friðriksson,
hreppstjóri, á Syðra-Ósi, hefði o'rð
ið bráðkvaddur að heimili sínu
kvöldið áður.
Fregnin kom óvænt, því að jafn
vel þótt þeir, sem honum voru ná-
kunnugastir, vissu að alvarlegur
sjúkdómur hafði þjáð hann undan
farið, vonuðu allir að umskiptin
væru lengra undan.
Böðvar fæddist á Stóra-Ósi, 22.
október 1915, sonur hjónanna Frið
riks Arnbjarnarsonar, hreppstjóra
og ,konu hans Ingibjargar Þor-
valdsdóttur, prests á Melstað, og
eru í báðum þeim ættum, sem hér
verða ekki raktar, mar.gt þjóð-
kunnra og merkra manin.
Hann ólst upp í stórum syst-
kinahópi, á fjölmennu heimili, þar
sem öll afstaða til almennings og
nágranna, byggðist fyrst og
fremst á eindæma gestnsni og
greiðasemi. Þeir eiginleikar voru
honum því í blóð bornir og fengu
einnig ríkulega notið síns á hans
heimili.
komið út í mörgum tímaritum á
ýmsum tímum. Má lesa upptaln-
ingu á nokkru af því í Kennaratali
ásamt ágripi af æviferli hans.
Er þess að vænta, þó að síðar
verði, að einhver gerist til að safna
saman öllum kvæðum Hreiðars
Geirdals, bæði beim sem birzt hafa
í tímaritum á ýmsum tímum og
hinum, sem hann kann að hafa lát-
ið eftir sig í handriti, og öðru rit
uðu máli og gefa út í einu lagi,
til þess að það verði aðgengilegra,
þeim sem gjarna vildu kynnast
þessu betur. En þarna er áreiðan-
lega til mikils að vinna.
Akureyri 18. júní 1970.
Sæm. Dúason.
Hann kvæntist 1947, eftivlifandi
konu sinni, Guðfinnu Jónsdóttur,
frá Neðri-Svertingsstöðum, eru sjö
efnileg börn þeirra uppkomin og
hafa tvö þau elztu nú. stofnað sín
eigin heimili.
Honum var kær sá staður, er
hann var fæddur og uppalinn á,
og því reisti hann nýbýlið Syðra-
Ós, úr Stóra-Ósslandi, stofnaði sitt
heimili og bjó þar til æviloka.
Hann tók við starfi hreppstjóra,
að föður sínum látnum, 1948, og
gegndi því síðan.
Það segir sig sjálft, að mikið
starf liggur á bak við það, að reisa
nýbýli og koma sómasamlega upp
stórum barnahópi.
Starf bóndans er margþætt, og
þeir einir inna það vel af hendi,
er nokkra þekkingu hafa varðandi
gróður jarðar og kunna að með-
höndla skepnur. Þetta var Böðvari
ljóst, hann stundaði nám við
Bændaskólann á Hvanneyri, í tvo
vetur, varð það honum mikill
styrkur, en það að umgangast
skepnur — sérstaklega sauðfé —
var honum ekki erfiði heldur un-
un.
Ekki hefur Guðfinna látið sinn
hlut eftir liggja, við að vinna að
framgangi og hag heimilisins, þar
hefur margan borið að garði og
átt að mæta hlýjum viðtökum.
Þó að Böðvar væri glaðvær. og
hressandi gamansemi fylgdi hon-
um jafnan, var hann einnig alvöru
maður með heitar tilfinningar. og
vinátta hans brást ekki.
Hann hafði ákveðnar skoðanir
og sagði meiningu sina hverjum
semv ar, en með þeirri lagní að
það særði ekki, enda hvgg ég. að
hann hafi enga óvildarmenn átt.
Hann hafði sérstakt yndi af söng
og var mjög smekkvís i beim efn-
um. Hann starfaði í karlakór allt
frá sínum unglingsárum og eiga
kórfélagar hans margar hugljúfar
minningar frá því starfi og minn-
ast hans með söknuði en þakka
jafnframt samstarfið.
Ég átti því láni að fagna, að
vinna með Böðvari í unemennáfé-
lagi, karlakór og opinberum mál-
um. Á það samstarf hlióp aldrei
snurða, allt það ber að þakka. Ég
hefði óskað þess, að bað samstarf
yrði lengra, en svo gat ekki orðið,
og nú þegar leiðir skilia. óska ég
honum af alhug góðrar ferðar.
Ég votta eiginkonu, börnum og
öðrum vandamönnum samúð mína
og bið þeim blessunar.
Benedikt Guðmundsson.
ÍSLENDINGAÞÆTTIR
27