Íslendingaþættir Tímans - 10.07.1970, Blaðsíða 31

Íslendingaþættir Tímans - 10.07.1970, Blaðsíða 31
bjargálnabúskapar á gamla visu. Höfuökostir hennar töldust vera nokkrar samfelldar engjaslægjur og vetrarbeit fyrir sauðfé með betra móti. Túnið þar var lítið og næstum því alþýft. Jörðin hafði oft ást verið í leiguábúð áður en Magn ús fluttist þangað, sætt tíðum ábú- endaskiptum og vanhirðu oftar en skyldi. Bæjarhús voru þar Mtil og úr sér gengin, og búpeningshús engin að kalla utan tóftir einar. Verkefni hins unga bónda til uppbyggingar í Hraunholtum var þvi miður meira en nóg og ekki auðvelt fyrir efnaMtinn einyrkja, eins og vegum og samgöngum var þá háttað, jafnhliða því að hann varð að standa skil á jarðarverð- inu. En hann hófst ótrauður handa og vann af kappi að húsagerð og jarðabótum og þótti sækjast vel. Allt gekk að óskum í Hraunholtum næstu árin. Börnum þar fjölgaði ört og efnahagur heimilisins jókst jafnhliða. En óðar en varði komu aðrir tímar er færðu mönn- um nýjar kringumstæður og þung- ar búsifjar. Kreppan svokallaða, með gífurlegu verðfalli á landbún aðarvörum, kom harkalega við í Hraunhoitum, eins og annars stað- ar. Önnur og alvarlegri tíðindi gerð ust þar að áMðnu ári 1928. Þá missti Magnús Borgihildi konu sína, og fáum vikum síðar missti hann einnig elzta barn þeirra hjóna, stúlku 14 ára að aldri. Þetta var Magnúsi þung áföll og miklar raun lr. Nú stóð hann einn uppi með stóran hóp barna, er voru lítt kom in til þroska, og sú spurning gat vaknað hvernig hann skyldi mæta þeim kringumstæðum. En hann gerðist staðráðinn í að halda tryggð við jörð sína og bú og freista þess, að veita börnunum þannig uppeldi í föðurhúsum. Og það heppnaðist honum að gera með dugnaði sínum og iðjusemi, að því undanskildu, að eitt barnanna, Guðlaug, naut uppeldis annars stað ar. Veikindafaraldur sá í sauðfénaði er kallaðist „mæðiveiki", og herj- aði víða um land árum saman, fór ekki framhjá garði í Hraunholtum, heldur lét þar svo að sér kveða að Magnús bóndi sá sér þann kost vænstan að hætta allri sauðfjár- rækt í nokkur ár, þess í stað jók hann þá kúastofn sinn og mjólk- urframleiðslu. Baráttusaga Magnúsar í Hraun- holtum verður ekki rakin hér frek- ÍSLENDINGAÞÆTTIR ar en orðið er, heldur látið duga að skýra frá nokkrum niðurstöð- um. Fyrsta búskaparár hans i Hraun holtum taldist gott grasár, þá fékk hann af sínu þýfða túni 50 hest- burði af heyi. Þegar hann hafði alsléttað túnið, og þess varð ekki mjög langt að bíða, og stækka það með útrækt eins og unnt var, þá gaf það af sér 400 hesta heys, þar með taMnn heyfengur af nokkurri nýrækt utan túns. Magnús byggði upp af stein- steypu öll hús jarðarinnar og eru þau þessi: íbúðarhús 8x11 álnir með kjallara og íbúðarrisi. Fjárhús yfir eitthundrað fjár. Fjós yfir 5— 7 nautgripi og safngryfja undir. Hlaða yfir 400 hesta af heyi og tvær litlar votheysgryfjur, hesthús yfir 4 hross. Magnús smíðaði sjálfur öll þessi hús án tilsagnar, og vottar það hyggjuvit hans og lagvirkni. Timb ur, sement og járn til bygginganna gat hann fengið flutt heim til sín, að mestu leyti með nútíma flutn- ingatækjum, en því var ekki að heilsa með aðdrætti á sandi í steypublönduna. Sandinn varð að sækja á strönd Oddastaðavatns og þangað var drjúgur spölur og ekki unnt að koma þar við ökutækjum. Var því ekki annars kostur en nota áburðarhesta. Og á þann hátt hafði Magnús dregið að sér 1000 hest- burði af sandi áður en vegabætur skópu honum skilyrði til slíkra að- drátta, ' með hagfelldara móti. Magnús Sumarliði er meðalmað- ur á hæð og gildur á velli, burða- maður góður og þrekmaður í bezta lagi á sínum manndómsárum, skyldurækinn, verklaginn og drjúgvirkur. Hann var snemma gefinn fyrir smíðar, tamdi sér húsasmíði af sjálfsdáðum og var eftirsóttur í þeirri grein og gerðist hjálparhella margra við húsabygg- ingar, bæði innan og utan sveitar sinnar. Hann er hæglátur í dagfari, fámáll, rólyndur og æðrulaus og frásneyddur öllu stærilæti, en jafn an glaður í glöðum hópi. Honum hefur alltaf þótt gaman að dansa og hefur sótt þess háttar skemmt- anir ef ástæður leyfðu. Dansi vand ist hann þegar á barnsaldri í glöð- um systkinahópi undir hand- leiðslu ljúflyndrar og söngelskrar móður. Og þrátt fyrir háan aldur áf hann það enn til að taka sér fjörugan snúning á dansgólfi. ' G.J. Aki Kristjánsson Framhald af bls. 32 Niður bryggjuna gengur skeggj- aður maður með hatt á höfði og stingur við í spori. Myndin er skýr í huga mér. Maðurinn tekur til við að stjórna fyrirkomulagi vinn- unnar og var ómyrkur í máli við yngri menn, er voru þar við vinnu líka, en þó var einhver léttleika- blær yfir samtaMnu, meir en orð- in gáfu tilefni til. Þessu kynntist ég betur síðar. „f minni tíð“ (á Djúpavogi miðuðu sumir tíma- mörk við hvern kaupfélagsstjóra, sem var þennan tíma. Þannig var sagt ,,í Þórhalls tíð“, „í Jóns Gunnarssonar tíð“ o.s.frv.) vann Áki við Hfrarbræðslu og bræðslu á mör. Var við uppskipun og af- greiðslu utanbúðar auk margs annars, sem til féll í rekstri fé- lagsins. Allt, sem'hann var beðinn um að gera, leysti hann af hendi með stökustu trúmennsku og ná- kvæmni. Eitt verk held ég að all- ir kaupfélagsstiórar hafi falið hon um, en það var að gæta að því hvort allar hurðir væru ekki læst- ar. Hann hafði það fyrir vana, að ganga á hurðirnar í þessu skyni. Margt handtakið vann hann ótil- kvaddur, er hann sá að hlutirnir voru öðruvísi en þeir áttu að vera. Kaupfélag Berufjarðar á honum mikið að þakka, þvi við það var hugur hans allur og kom það oft niður á heimilislífi hans í sam-- bandi við f jarvistir. Áki hefur aflað sér margra vina, sem minnast hans vegna hnytt- inna tilsvara og hinnar góðlátlegu kímni. Margir eru embættismenn- irnir, sem búnir eru að koma til starfa á Djúpavogi, sem hafa not- ið lipurðar hans i sambandi við að koma sér fvrir og koma sér baðan aftur. Fvrir marga hefur hann pakkað dóti og efins er ég um að nokkuð af því hafi brotnað í flutningi. Áki minn. Okkar beztu kveðjur til þín og þíns fólks. Megir þú eiga glaðan dag með vinum þínum nú og í framtíðinini. Þorsteinn Sveinsson.,

x

Íslendingaþættir Tímans

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Íslendingaþættir Tímans
https://timarit.is/publication/303

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.