Íslendingaþættir Tímans - 10.07.1970, Page 32
ATTRÆÐUR 2. JULI
ÁKI KRISTJÁNSSON,
BREKKU, DJÚPAVOGI
„Áki, vinur minn“.
Ég ávarpa þig þannig á þessum
hátíðardegi þínum, með orðum
sameiginlegs látins vinar okkar,
Jóns Dagssonar.
Ég og fjölskylda mín sendum
þér beztu hamingjuóskir á afmæl-
isdaginn, með kæru þakklæti fyr-
ir vinsemd og tryggð í þau 23 ár,
sem við höfum þekkzt.
Áki Kristjánsson, eða Áki í
Brekku, fæddist 2. júlí 1890 á
Diúpavogi. Foreldrar hans voru
Kristján Kristiánsson sjómaður á
Djúnavoei os ^órey .Jónsdóttir ætt
uf ”r Álftafirði og Lóni.
Áki ólst upp við öll algeng störf
til sjós og lands, en naut sama
og engrar skólagöngu í æsku. Hef
ur hann oft orðið að gialda þess
á lífsipiKVr'-.i. Árif 1909 varð hann
fvrir þvi slysi, að fótbrotna við
upnskipun úti á Legu. Skiplð hét
„FHan11. Átti hann lengi i beim
ve'kíndum og náðj sér aldrei, því
brot.ið greri skakkt saman. Hefur
hann stungið við síðan, eins og
allir Djúpavogsbúar kannast við.
Eigendur skipsins komu drengi-
legn fram í þessu máli, þvi þeir
stóðr fvrir samskotum. til bess að
bæta Áka atvinnumissinn. Hann
var þá fvrirvinna foreldra sinna
og mátti þvi illa við sjúkraiegu.
Þá voru engar tryggingar. \ki á
söfnunarlistann enn og er þeim
innilega þakkað. sem veittu hjálp-
arhönd þá.
Árið 1915 kvæntist Áki, Ás-
laugu Jónsdóttur frá Hnaukum i
Álftafirði, dugnaðar og myndar-
konu, sem dæmin sanna. 41drei i
sínum búskap, tók hún stúlku sér
til hjálpar. þó eignuðust þau 14
börn og ólu upp 3 dótturbörn að
mestu Öll þessi börn eru á lífi,
nema elzti sonurinn Rögnvaldur,
en hann dmkknaði i Hornafjarðar
ósi 6. nóvember 1946, er Hvann
ey fórst þar. Nöfn barnanna verða
ekki talin hér, þau ero dreifð um
landið eins og gengur og haf.a kom
ið sér vel áfram.
Það væri gagnlegt fyrlr nútíma-
menn, að setja sig í spor Brekku-
hjónanna nokkra stund í hugan-
um. Hvernig það hefur verið að
fæða og klæða allan þennan barna
hóp og koma honum til mennta
eftir því, sem þá gerðist. Dagsverk
þeirra hjóna er því mikið og hefði
sjálfsagt verið verðlaunað annars
staðar en hér á íslandi. Áslaug
lézt 3.7. 1966, eftir þunga sjúk-
dómslegu.
Árið 1920 er Kaupfélag Beru-
fjarðar stofnað, og þá er ráðinn
kaupfélagsstjóri Þórhallur Sig-
tryggsson. Það er því 50 ára
þessa dagana og mætti því með
sanni segja að það væri star/saf-
mæli Áka um leið. Allt frá fyrstu
dögum félagsins og þar til nú, heí
ur hann verið vakinn og sofinn í
kringum kaupfélagið. Fyrst hjá
Þórhalli við fjárgæzlu og annað
utanbúðar, síðan hjá Jóni Sigurðs-
syni, Jóni Gunnarssyni, Gunnari
Sveinssyni við uppskipanir og ann
að sem til féll við slátrun, söltun
kjöts o.fl.
Fundum okkar bar fyrst saman
á dimmri haustnótt 1947 í rign-
ingarsudda og þoku, um leið og
uppskipunarbáturinn „Nonni“
með Ölfuna í togi," snerti gömlu
bryggjuna á Djúpavogi, neðan við
kaupfélagið.
Framhald á bls. 31
32
ÍSLENDINGAÞÆTTIR