Íslendingaþættir Tímans - 02.12.1970, Blaðsíða 3

Íslendingaþættir Tímans - 02.12.1970, Blaðsíða 3
og þá sungið við raust að hætti sjómanna, svo að undir tók í Skála bjargi. Mér hefur orðið alltíðrætt um æskuheimili Haralds, en það er af því, að mér fannst það vera sá vermíreitur, sem þroska mundi gott fólk, enda reyndist það rétt, því að þrátt fyrir sviptivinda, sem leika stundum um hið hrjúfa tafl- borð mannlegs lífs, bar Haraldur það ávallt með sér til hinztu stund ar að hafa átt gott heimili i æsku sinni og góða foreldra. Haraldur var prýðilega gefinn og naut góðrar menntunar í æsku, var meðal annars tvo vetur í Eiða- skóla og útskrifaðist þaðan með ágæta einkunn. Snemma mun þó hugur Haralds hafa hneigzt að sjó- mennsku, enda varð hún að mestu hans ævistarf, og er það að nokkru skiljanlegt, hann hóf sína fyrstu göngu við sjóinn og mun sjórinn því hafa heillað barnsaugun, þó að stundum væri hann úfinn og ógn- vekjandi, þá gat hann líka verið mildur og lokkandi. Haraldur var duglegur sjómaður og æðrulaus á hverju sem gekk. Hann var einn af skipshöfn þeirri, sem veturinn 1940 lenti í hrakningunum miklu á m/b Kristjáni frá Sandgerði og var þá almennt talinn af, en eftir að hafa hrakizt úti á reginhafi undan stórsjóum og hvassviðri, tókst þeim á 11. degi að ná landi hjálparlaust, matarlausir og að sjálfsögðu þrekaðir mjög. Slíka of- raun leysa ekki af hendi nema úr- vals sjómenn. Saga þessara hrakn- inga er skráð í bókinni Brim og boðar. Haraldur var á góðum aldri neyddur til að yfirgefa sjómennsk- una vegna alvarlegs áfalls, er hann hlaut á sjónum, en fékk aldrei að fullu bætt. Mun það ekki hafa ver- ið honum með öllu sársaukalaust, að þurfa að nausta skip sitt þann- ig fyrir fullt og allt. En þótt í land væri komið, vann Haraldur ætíð við störf, er vörðuðu sjávarútveg. Hann var í nokkur ár, meðan heilsa hans leyfði, starfandi við frystihús á Tálknafirði og bar fólk inu þar góða sögu. Síðustu tvö ævi ár sín dvaldi Haraldur sem vist- maður á Hrafnistu og undi þar vel hag sínum, enda var hann þar á meðal gamalla sævíkinga og afla- kónga, auk þess umvafinn um- hyggju góðra systkina, sem með söknuði kveðja nú látinn bróður sinn og þakka honum samfylgd- ina. Svo gera og aðrir vandamenn. Haraldur var ókvæntur alla ævi og barnlaus. Haraldur var góður drengur í fyllstu merkingu þess orðs og þrek menni í lífsbaráttu sinni, er iét, eins og sjómenn kalla það, upp í horfa á meðan fært var og sló ekki undan, fyrr en úthafssjór lífs ins var orðinn honum ófær. Jón og Margrét, sem nú eru bæði látin fyrir mögum árum, eign uðust 10 börn, svo oft mun Margrét hafa gengið þreytt til hvílu, þó að slíkt sæist ekki að morgni. Nú eru fimm af börnum þeirra látin, en þau sem eftir lifa eru: Fanney, ekkja Þorláks Árnason- ar. Hann var um tíma útgerðar- maður á Skálum, en vann síðar við útveg Jóns. Þorlákur er látinn fyr ir nokkrum árum. Fanney er bú- sett í Reykjavík. Anna María, gift Stefáni Jóhanns syni, aðalvarðstjóra, búsett í Reykjavík. Einar Ingvar, fyrrv. bátsmaður á m/s Gullfossi, giftur Katrínu Sig- urjónsdóttur, búsettur í Reykjavík. Elínborg, gift Agli Þorsteinssyni, starfsmanni hjá Rafveitu Reykja- víkur, búsett í Reykjavík. Sigríður, gift Ara Björnssyni, rennismið, búsett í Reykjaví'k. EMsa, ekkja Sigurðar Jónssonar, sem látinn er fyrir rúmu ári. Hún er búsett í Reykjavík. Allt er þetta ágætis myndarfólk, sem ber því vitni að vera af góð- um og traustum stofnum komið. Þá er með línum þessum komið að skilnaðarstundinni. Ég kveð með virðingu Harald minn frá Skálum, sem nú er lagður upp í sína hinztu siglingu. Hafi hann hjartans þökk fyrir samverustund- ir okkar, og bið ég honum vel- farnaðar til æðri heimkynna hand- an við móðuna miklu, þar sem systkini og ástríkir foreldrar bíða að elskulegur sonur komi í höfn. Kjartan Bjarnason. , r Þessi mynd er af Jóni M. Kjer- úlf á Hrafnkelsstöðum í Fljóts- dal, en hann lézt 29. sept. s.l. og birtust minningargreinar um hann í síðasta hefti íslendinga- þátta. Þau mistök urðu, að með greinunum birtist mynd af öðrum Jóni Kjerúlf, frænda hins og al- nafna, en sá Jón Kjerúlf á heima á Reyðarfirði. Mistökin stöfluðu | af því, að engin-mynd fylgdi grein unum frá höfundum, en í mynda- } mótasafni Tímans var %11 mynd I af Jóni Kjerúlf, þótt hún reynd- ’ ist af öðrum manni samnefndum. — íslendingaþættir biðja velvirð- ingar á mistökunum. •i ÍSLENDINGAÞÆTTIR

x

Íslendingaþættir Tímans

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Íslendingaþættir Tímans
https://timarit.is/publication/303

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.