Íslendingaþættir Tímans - 24.11.1971, Síða 24
HANS SIGURÐSSON,
ODÐVITI HÓLMAVÍK
Ég samgle'öst þér vinur
að svo fljótt
var för þln greidd
tilfagurheima.
Er þeim. sem athöfn
í eðli ber,
sængurvist löng
sízt að skapi.
Svo er nú skipt
sköpum þínum,
sem við sjúkleik
sáran barðist
að brotið er helsið
bjart um veginn
og léttum fótum
framstígið.
Margs er að minnast
frá manns ævi.
Barn að leik,
bóndi að störfum
sótt til fanga
á sjó út,
og runnið um fjöll
á refaslóðum
Tekið var i tafl
á tómstundum,
en hugðarefni margt
á haka sat,
olli braut grýtt
og gengi valt,
en mannlund og þrek
þar um bætti.
Því fór svo
að þér fólust
forystustörf
í félagsmálum.
En þeim er flestum
sem þar uro skipa
lof og last
lítils virði.
Hitt var þér meir
f mun fast
að vinna af trúnaði
tekin störf,
og láta gott leiða
af liðsemi þinni
hvívetna
í hverju máli.
Greindur varstu vel
og verkhagur,
hugvitsamur
og handlaginn,
hispurslaus
og hreinlyndur,
á málþingum harður
f horn að taka.
Því mun mörgum
— er manninn þekktu —
vera sjónsviptir
er sést þú eigi
meðal heimbúa
Hólmavíkur
og finnast staðurinn
fátækari.
Hér ert þú hvaddur
kveðjum hlýjum,
með þökkum beztu
þinna sveitunga.
Kveðja þig vinir
og vandamenn.
Verði þér allt vel
á vegi nýjum.
Jör. Gestsson,
Hellu.
EGILL SIGURÐSSON
Egill Sigurðsson fæddist á
Stokkseyri 14. nóvember 1915. For
eldrar hans voru Sigurður Magn-
ússon trésmiður þar og kona hans
Hólmfríður Gísladóttir. í æsku
stundaði Egill sjómennsku, vann
síðan við mjólkurflutninga, unz
hann gerðist bifreiðustjóri hjá
Bifreiðastöð Reykjavíkur. Árið
1947 réðst hann tii Reykjavíkur-
borgar sem bifreiðastjóri borgar-
stjóra og 1959 til fjármálaráðuneyt
isins sem bifreiðastjóri ráðherra.
Síðustu árin var hann húsvörður í
Arnarhvoli.
5.snóvember 1938 kvæntist Egill
Guðríði Aradóttur frá Ólafsvík,
mikilli myndarkonu, dóttur hjón-
anna Ara Bergmanns og Friðdóru
Friðriksdóttur. Eignuðust þau tvær
dætur. Steinunn Kolbrún meina-
tæknir er gift Hauki Hergeirssyni
rafvirkja og Hrafnhildur stúdent
gift Garðari Briem tæknifræðingi.
24
ÍSLENDINGAÞÆTTIR