Íslendingaþættir Tímans - 01.06.1972, Blaðsíða 8
Aðalbjörg Albertsdóttir
Fædd 10. 4. 1884
Dáill 28. 4. 1972.
1 dag verður til moldar borin frá
Dómkirkjunni i Reykjavik frú Aðal-
björg Albertsdóttir, ekkja borsteins
heitins Sigurgeirssonar, sem lengi var
verzlunarstjóri hjá Timbur og kola-
verzluninni h.f. hér i Reykjavik, en
siðar gjaldkeri við Búnaðarbankann
frá stofnun hans til dauðadags. Hann
féll frá þann 8. febrúar 1935.
Frú Aðalbjörg fæddist þann 10. april
1884 að Stóruvóllum i Bárðardal. For-
eldrar hennar voru Albert Jónsson frá
Stóruvöllum og kona hans Guðrún
Jónsdóttir frá Bjarnastöðum. Bæði af
gagnmefkum ættum komin.
Aðalbjörg fluttist með foreldrum
sinum til Akureyrar innan við tvitugs
aldur. Þar kynntist hún tilvonandi
eiginmanni sinum og þar áttu þau bor-
steinn brúðkaupsitt snemma árs 1906.
Arið 1907 koma þau hjón hingað til
Reykjavikur og áttu lengstum heima
að Klapparstig 27 og minnast margir
eldri Reykvikingar þeirra hjóna frá
þeim árum. Á Klapparstig 27 rikti
festa og gleði og þarna ólust börnin
upp: Sigrún, sem gift er Jóni Jóseps-
syni frá Setbergi, Guðrún, sem gift er
Gunnari B. Guðmundssyni, hafnar-
stjóra, Guðlaug, sem dáin er. Stefán
garðyrkjumaður i Ólafsvik, kvæntur
Helgu Þorkelsdóttur og séra Garðar
Þorstéinsson, prófastur i Hafnarfirði,
kvæntur Sveinbjörgu Helgadóttur.
Við séra Garðar vorum skólabræður
og félagar og heimagangar hvor hjá
öðrum öll okkar skólaár. Á ég þvi
margra yndisstunda að minnast frá
Klapparstig 27, er frú Aðalbjörg var
hrókur fagnaðar með heimafólki sinu.
Oft settist hún niður og spilaði undir,
er við félagarnir og annað heimilisfólk
og gestir tókum lagið, sungum æsku-
og ættjarðarsöngvana, sem svo titt var
i heimilum þeirra daga, meðan útvarp
og sjónvarp var enn ekki komið hér til
sögu.
Þarna var notið mikillar ánægju og
gleði við brunna tónlistarinnar og við
umræðurum bækur og ljóð skáldanna,
sem þá voru að koma hér fram á
sjónarsviðið.
„Verið ávallt glaðir. Ljúflyndi yðar
sé kunnugt öllum mönnum," segir
postulinn. Þannig minnist ég frú Aðal-
bjargar, hlýrrar og bjartrar. með það
bros á brá, er aldrei gleymist heimilis-
vinunum mörgu frá þessari löngu
liönu tið.
Og þegar mest reyndi á. eftir lát
manns hennar. reyndist hún sama
hetja sem margar hinna beztu for-
mæðra vorra. sem uxu við hverja
raun. Hóf hún matsölu á Amtmanns-
stig 4, sem hún rak með reisn og prýði
og við hinn bezta orðstir. til þess og að
létta undir með börnum sinum. sem þá
voru að brjóta sér braut.
,,Guð er mitt hæli og styrkur."
Þannig var sannfæring Aðalbjargar,
þvi gekk hún v eg sinn allan, svo ókvið-
in og björt. svo öruggum og styrkum
skrefum.
1 nafni okkar heimilisvinanna gömlu
á Klapparstig 27 tjái ég börnum henn-
ar nú dýpstu samúð.
Garðar Svavarsson.
Elfur timans rennur án afláts i skaut
eilifðarinnar. Einstaka sinnum getur
þó niður þessarar elfar glumið i eyrum
eins og hvellasta bjalla. Slikur hljdm-
ur náði eyrum fjölskyldu minnar 28.
april s.l. er tengdamóðir min Aðal-
björg Albertsdóttir kvaddi þennan
heim.
Aðalbjórg var fædd að Stóruvöllum i
Bárðardal 10. april 1884 og var hún þvi
nýlega orðin 88 ára gömul. Foreldrar
hennar voru hjónin Guðrún Jónsdóttir
og Albert Jónsson, er þá bjuggu á
Stóruvöllum, ásamt fleiri systkinum
Alberts. Siðast liðinn vetur las ég dag-
bókarbrot Sigurgeirs, bróður Alberts,
siðar organista á Akureyri, þar sem
hann lýsir æskuheimili Aðalbjargar og
lifi fólksins að leik og starfi. Ljóst er,
að sá framfarahugur og félagsandi,
sem greip um sig meðal aldamótakyn-
slóðarinnar festi djúpar rætur hjá hin-
u fjölmenna frændaliði á Stóruvöll-
um. Lýsti þetta sér m.a. i iðnaðar- og
tónlistarnámi bræðranna og þeim
stórhug, er ráðizt var i byggingu eins
elzta hiiss úr tilhöggnum hlöðnum
steini, i sveit hérlendis.
. Mörgu markverðu frá þessum árum
hefir Aðalbjörg sjálf lýst i viðtölum við
fræðimenn, sem fest hafa á letur.
Albert flutti með fjölskyldu sina til
Akureyrar og reisti þar húsið Stóru-
velli, er stóð, þar sem útsýni er hvað
fegurst út' Eyjafjörð, skammt frá þeim
stað, þar sem nú stendur Akureyrar-
kirkja.
Auk Aðalbjargar áttu þau Guðrún og
Albert. Halldór. er lengi var kaupmað-
ur á Blönduósi, Jón er lézt ungur og
Hólmfriði, sem nú er ein á lifi þeirra
systkina.
A Akureyri kynntist Aðalbjörg
manni sinum, Þorsteini Sigurgeirs-
syni. er fæddur var að Álftagerði i
Skagafiröi, sonur hjónanna Guðlaugar
Hjálmsdóttur og Sigurgeirs Stefáns-
sonar. Hafði hann lokið námi frá
Möðruvallaskóla og stundað kennslu
og verzlunarstörf.
Þau reistu bú i Reykjavik, þar sem
Þorsteinn varð verzlunarstjóri hjá
fyrirtækinu Timbur og kol og siðar
fyrsti féhirðir Bunaðarbanka lslands,
er hann var stofnaður.
Þeim Aðalbjörgu og Þorsteini varð
sex barna auðið. Gunnar lézt i bernsku
og Guðlaug rúmlega þritug að aldri, en
á lifi eru, séra Garðar. prófastur i
Hafnarfirði, Stefán, garðyrkjumaður i
8
islendingaþættir