Íslendingaþættir Tímans - 01.06.1972, Page 17
Sextugur:
Stefán Traustason
yfirverkstjóri
Þann 29.maivar t einn af merkis-
borgurum Reykjavikur sextugur:
Stefán Traustason, yfirverkstjóri i
Prentsmiðjunni EDDU.
Stefán er fæddur i Hrisey, 29.mai
1912, sonur hjónanna Rósu Benedikts-
dóttur og Trausta Eyjólfssonar, er þá
sú, sem þau helzt munu kjósa. Bjarni
hefur alltaf verið veitandi fremur en
þiggjandi, þrátt fyrir að hann hefur
ekki gengið heill til skógar.
Eftir að hann hætti sjómennsku fyrir
um það bil 20 áfum vann hann jöfnum
höndum að bólstrun húsgagna og
akstri, fyrst með vörubil, og siðan
stundaði hann leiguakstur með fólksbil
i nokkur ár.
Þau hjónin fluttust suður fyrir 6-8
árum og bjuggu i Hveragerði. Þar
keyptu þau litið hús, sem Bjarni
stækkaði að meira en helming, og að
auki byggði hann sér bilskúr og kom
sér upp fögrum garði. Hann hefur
mikinn áhuga á öllu, sem tilheyrir
verndun landsins og uppbyggingu.
Virkur skógræktarmaður hefur hann
verið, og farið utan til Noregs i skipt-
um fyrir Norðmenn, sem hingað komu
til skógræktar.
Annars væri fljótlegra að telja upp
það, sem Bjarni hefur ekki áhuga á þvi
að ef mál ber á góma þá tekur Bjarni
óskipta afstöðu. Og nú á timum vernd-
ar fornra minja, sem við eigum þvi
miður ekki of mikið af, nema þá helzt
bækur, sem eru öllu öðru gömlu dýr-
mætara að minum dómi, þá hefur
Bjarni aukið við svo um munar með
bók sinni — Alltaf skrölti rokkurinn
hjá Bjarna, — þar sem lýsir vel göml-
um vinnubrögðum, aðbúnaði og bún-
aðarháttum yfirleitt. Það er Is-
lendingasaga, — saga Lónseyrar
Bjarna.
Og hér læt ég staðar numið i miðjum
kliðum, þvi að margt er ósagt.
Ég óska þeim hjónunum til ham-
ingju með afmælið og bið þeim langra
lifdaga i nýrri ibúð, sem þau hugsa sér
að reisa nú i vor og sumar i húsi fóst-
urdóttur sinnar Bergljótar Friðþjófs-
dóttur og Guðjóns Torfasonar, manns
hennar, suður i Vogum á Vatnsleysu-
strönd.
Vinur.
bjuggu þar. Er Stefán af góðu bergi
brotinn, eftir þvi sem mér er sagt.
Stefán Traustason hefir ekki valsað
mikið milli atvinnugreina, þvi 1929 —
aðeins 17 ára að aldri — ræðst hann i
prentnám til Prentsverks Odds
Björnssonar á Akureyri og vinnur þar
i 10 ár, unz hann flyzt til Reykjavikur,
þar sem hann hélt áfram að stunda iðn
sian. Vinnur Stefna sér brátt það álit
að verða ráðinn yfirverkstjóri i Prent-
smiðjunni Eddu, starfs, sem hann
gefir gengt i fjölda ára.
Þeir sem gerst til þekkja, vita best,
hversu mikið og óeigingjarnt starf
Stefán hefir seint og snemma lagt af
mörkum i Eddu frá fyrstu tið. Vist er,
að hann hefir ekki staðið með úrið i
höndunum til að mæla timann, heldur
löngum verið einn að verki, þegar
aðrir nutu hvildar.
Ég hefi allmikið átt saman við
Stefán Traustason að sælda, einkum
hin siðari árin. Ec þar skemmst af að
segja, að traustari, samvizkusamari
og áreiðanlegri maður en hann verður
vart fundinn. Hefir mér oft dottið i hug
að segja mætti um hann það sama og
Helgi Sæmundsson sagði svo eftir-
minnilega i afmælisgrein um Olaf
heitinn Hvanndal á sinum timaað hann
legði ósjaldan nótt við dag til þess að
efna loforð, sem hann hefði EKKI
gefið! Slikir menn eru gulls igildi og
eigum við alltaf of fáa þeirra lika.
Stefán Traustason er þvi miður ó-
kvæntur maður, en bjó með móður
sinni til dauðadags hennar, fyrir ekki
alllöngu. Var hann henni góður og um-
hyggjusamur sonur, eins og að likum
lætur. Ahugamaður er Stefán um
iþróttir, einkum khattspyrnu. Við-
förull er hann bæði utanlands og innan
— og er nú á sextugsafmælisdegi
sinum lengst úti i löndum. Þangað
sendi ég Stefáni beztu framtiðaróskir
um leið og ég þakka honum ógleyman-
leg kynni — og fordæmi.
Baldvin Þ. Kristjánsson.
T1
Þeir, sem skrifa minningar - eða
afmælisgreinar í íslendingaþætti,
eru eindregið hvattir til þess
að skila vélrituðum handritum,
ef mögulegt er.
íslendingaþættir
17