Heimilistíminn - 17.04.1975, Blaðsíða 11
Síðustu frumbyggjarnir
snúnir til menningarinnar
SÍÐUSTU frumbyggjar Astraliu hafa
gefiö upp á bátinn lif sitt úti i náttúrunni I
Gibson-eyðimörkinni i Vestur-Astraliu.
ÞaB voru raunar aðeins fimm eftir af
þeim, tveir ungir menn, tveir fullorðnir
karlar og 45 ára gömul kona sem leit út
eins og 65 ára.
Það var einmanaleikinn, sem neyddi
þau til að leita til stöðva Sjöunda dags
aðventista i Wiluna, en ekki matar-
skortur. Það var næg veiði, nú þegar allir
hinir voru farnir, bæði af eölum, slöngum
villihundum og einnig boröaði fólk rætur.
Allir héldu að ekki væru fleiri-
frumbyggjar eftir i eyðimörkinni, þegar
fimm mannverur sáust á gangi úti við
sjóndeildarhring gegn um hitamóðuna.
AB baki höfðu þau 30 kilómetra ferðalag
yfir brennheitan sandinn.
Yew, um það bil 17 ára, gekk fremstur.
Hann lyfti búmerangi sinu sem friðar-
tákni, gekk siöan að yfirtrúboöanum,
greip með vinstri hönd olnboga hans og
lagði vinstri olnbogann á sér i útíétta
hönd trúboöans.
Teberu, um það bil 15 ára, var ófram-
færnari. Hann var blindur á öðru auga og
hafði igerð i þvi. En hann hafði mikinn
áhuga á öllu sem hann sá, þó hann
heilsaöi hvitu mönnunum ekki eins
hjartanlega og bróðir hans.
Fullorðnu mennirnir, Tijina og Tijipiri,
héldu sig lika i fjarlægð. Tömdu
dingóarnir þeirra þefuðu um allt i
stöðugri leit að mat. Þeir eru notaðir sem
veiöihundar og til að hita mannfólkinu I
eyðimerkurkuldanum á næturnar, þar
sem menn og dýr sofa þétt saman. Annar
hundurinn fann á sér, að tilveran væri
eitthvað að breytast og tók að ýlfra.
Andlit Tijians bar merki 60 eða 70 ára
dvalar i eyðimörkinni sem veiðimanns, en
ekki var hægt aö sjá á honum að hann
kæmi úr langri og erfiðri gönguferð...
Vöðvarnir voru stinnir og hnykluðust
undir húðinni og ekki var eitt gramm af
aukafitu á likama hans.
Kona Tijipiris birtist. Hún var nakin
þegar frá er talið herðasjal. Hún lyfti
sjalinu og sýndi viðstöddum þrjá litla
dingóhvolpa, sem hún hafði á brjósti.
Þessi litli hópur frumstæðra mannvera
fær vikupeninga frá ástralska rikinu,
ásamt miklum mat, að þeim
fimmmenningum finnst. 1 fyrsta sinn á
ævinni fá þau nú allt það kjöt sem þau
geta i sig látið.
Ungu mennirnir munu spjara sig. Þeir
eru enn nógu ungir til að þjóðfélagið geti
gleypt þá. En eldra fólkið deyr. Það getur
ekki aðlagðað sig nýjum lifnaðarháttum.
En nú er eyðimörkin of stór og eyðileg
fyrir það. Þau komu bara með vegna
ungu piltanna.
Deleba, kena Tijlplra hefur þrjá dtngdhvotpa á brjéstl.
Tijina horfir á barnabarn sitt kasta spjóti.
11