Heimilistíminn - 17.04.1975, Blaðsíða 22
\
Föndurhornið
Sviffluga
HÉRNA sjáið þið teikningu af svifflaugu,
sem mjög auðvelt er að búa til. Limið
teikninguna af búknum, vængjunum og
ferhyrnda stykkinu, á þunnan, en stifan
pappa.
Pressið það siðan undir þungu fargi
meðan það er að þorna og klippið út öll
fjögur stykkin þegar limingin er orðin
þurr. Skerið svo rifurnar AA, BB og CC á
mynd4gætilega.Takkarnir A, B og C eiga
að falla vel i rifurnar siðar. Klippið rif-
umar D-DD og E-EE og svarta depilinn F
klippið þið alveg burt.
Þá er að setja sviffluguna saman. Gerið
brot i búkinn eftir punktalinunni i miðj-
unni. Siðan gerið þið brot eftir punktalin-
unni til hliðanna, þannig að K visi inn (K
er notað til að halda vængjunum i réttri
stöðu)
Setjið A i rifuna AA, B i BB og C i CC.
Stingið hæðarstýrinu (5) gegn um rifurn-
ar E-EE og vængina (2) gegn um D-DD.
Vefjið ferhyrnda stykkinu (3) saman i
rúllu og stingið henni inn i nefið á flug-
unni, svo að hún þyngist að framan.
Ef þið viljið vanda vel til, má klippa
vængina út úr loki á áldós.
Loks er að fá sér teygjuband, og festa
annan endann á þvi i hakið neðan á flug-
unni (F) og hleypa af, alveg eins og þegar
skotið er baun af teygjubandi. GH.
22
Fig.5