Heimilistíminn - 17.04.1975, Page 23
Heimsmeistari í
sápukúlublæstri
Philip vildi verða bestur í einhverju og varð það í sápukúlum.
PHILIP Lubelski blæs sápukúlur af
mikilli alvóru og lætur ekki tilviljunina
um neitt i þvi „starfi” sinu.
— Það þarf að taka tillit til margra hluta,
til að blása fullkomna sápukúlu, segir
hann. — Til dæmis hita, loftraka, loft-
þrýstings og loftmengunar....
En það sem hann hefur mestan áhuga á,
er hvað sápukúlan getur gert fyrir
mannssálina. — Sápukúlur veita sálarró,
þykist hann viss um og það getur vel
verið, að minnsta kosti er þetta ákaflega
friðsamt tómstundastarf. En Philip á sér
háleitar hugsjónir.
— Ég ætla að hafa áhrif á tilfinningarnar
með kúlunum minum. Ég ætla að koma
heljarmennum til að gráta yfir fegurðinni
I sápukúlu, láta vélrænt skrifstofufólk
falla kjökrandi fram á ritvélarnar, vegna
þess að sápukúla springur. Ég ætla að
nota sápukúlur til að koma fólki i skilning
um að það að skapa fegúrð er meira virði
en allt annað i heiminum. Ég ætla lika að
bæta heilsu manna. Sápukúlublástur
þenur út lungun.
Philip er raunverulega meistari i
listinni. Hann getur blásir sápukúlur, sem
fúma 20'. litra af lofti. Hann getur blásið
kúlur inni I kúlum. Þessa dagana er hann
að reyna að blása kúlu innan i kúlu innan i
kúlu...
Poreldrarnir eru ekki ýkja hrifnir af
þessu dundi sonarins. Þeim finnst þetta
ekki starf fyrir fullorðinn, hraustan mann
i Englandi nútimans.
— Þú ættir að blása sápukúlur sjálfur,
segir sonurinn við föður sinn. — Það er
ekki hægt að komast hjá þvi að hrifast af
þeirri dásamlegu en skammvinnu fegurð,
sem felst i bolla af sápuvatni.
Tvisvar sinnum hefur Philip sýnt listir
sinar i brezka sjónvarpinu. Þættirnir ollu
geysilegri aukningu á sölu sápukúlu-
vökva.sem fæstþar tilbúinn i dósum. Það
yoru ekki aðeins börn, sem tóku að blása.
Ef til vill hefur Philip rétt fyrir sér. —
Þjóðhöfðingi, sem blæs sápukúlur, getur
ekki hafið styrjöld.
En ef til vill eru allir draumar hans um
betri sápukúluheim jafn loftkenndir og
forgengilegir og — sápukúla.
23