Heimilistíminn - 17.04.1975, Qupperneq 30
Einfaldlega eggjakaka
Listin að búa
til franska
eggjaköku.
Frönsk eggjakaka er lang-
bezt, þegar hún er borðuð um
leið og hún er tilbúin. Þess
vegna er betra að leggja á
borðið og undirbúa allt, áður
en þið byrjið að steikja. Hafið
eggjakökuna aldrei stærri en
úr 4-5 eggjum. Séu margir i
mat, er betra að steikja fleiri
eggjakökur.
1. Takib til allt, sem þarf. Handa fjórum :
4 egg: 4-8 msk. vatn eða rjómi, 1/2 tsk
salt og svolitill nýmalaður pipar. Þeytið
þetta allt saman þar til það hefur bland-
azt vel.
2. Setjið pönnuna á plötuna og látið hana
hitna. Bræðið svolítið smjör eða smjörliki
og hellið siðan eggjahrærunni á.
3. Hrærið öðru hverju með gaffli, þannig
að iaus hræra renni niður að botninum.
Látið eggjakökuna aðeins stifna, en hún á
að vera blaut að ofan. Hristiið pönnuna til
að losa eggjakökuna.
4. Hallið pönnunni og látiö eggjakökuna
renna á heitan disk eða fat. Hafið fylling-
una tilbúna og leggið hana á annan
helminginn og brjótið hinn yfir. Fylling-
una má lika leggja ofan á alla eggjakök-
una.
5. Fylling: 1 dós túnfiskur i oliu, paprika i
ræmum og söxuð steinselja. — Aðrar
fyllingar: 3 dl rifinn ostur og paprika i
ræmum. — 100 gr. skinka i ræmum og 1 dl
söxuð steinselja. —200 gr. rækjur og 1 dl.
dill. — 3 tómatar i sneiðum og 1/2 dl
saxaður graslaukur. — Hvitur jafningur
með t.d. sveppum, aspargus, spinati eða
kræklingi.
30