Heimilistíminn - 23.10.1975, Blaðsíða 31
Hugs-
ið
Við getum ekki gert mikið gagnvart þvi sem við tökum í arf
eiginleikum hársins, en hins vegar getum við gert ótrúle:
mikið gott fyrir það hár, sem okkur hefur verið úthlutaó
vöggugjöf. Við getum bætt það bæði utan frá og innan. Hér hö.
um við safnað nokkrum atriðum, sem gott er að hafa i huga n-
eftir sumarleyfið, en þá vill brenna við að hárið þurfti að þo!
sitt af hverju, sól, saltvatn og alls kyns vanhirðu, þar sem ekk
er alls staðar hægt að þvo sér almennilega um hárið.
vel
um
hárið
Ljóshærð manneskja hefur að meðaltali
140 þiisund hár á höfðinu, dökkhærð 110
þúsund, en rauðhærð „aðeins” 88 þúsund.
Ljósu hárin eru finust og þess vegna
vandmeðförnust. Höfuðhár vex hægt og
lifir aðeins skamma hrið. Um það bil 80%
háranna eru alltaf á vaxtarskeiðinu og
lifa að meðaltali sex ár. Á hverjum degi
missum við 50 til 80 hár. Á sumrin er
vöxturinn hraðastur og flest hárin miss-
um við i marz og april. Þá vex hárið hrað-
ast á aldrinum 15 til 30 ára og sérlega á
konum á aldrinum 16 til 24 ára. Upp frá
þvi hægist vöxturinn.
Þetta er ekki gott fyrir hárið:
Sjúkdómar með háum hita valda oft
hárlosi þremur mánuðum siðar og fer
magniðeftir þvi hvað maður hefur verið
veikur. Sálrænir sjúkdómar, áföll óg
þungar sorgir geta lika haft þessar af-
leiðingar, ennfremur þungun og vissar
tegundir lyfja. En þegar barnið er fætt
eða hætter aðtaka lyfin, fellur hárvöxtur-
inn aftur í samt lag.
Ytri ástæður fyrir slæmu hári.
Til er ýmislegt utan að komandi, sem
veldur slæmu hári, til dæmis sterk
permanent, röng litun, of fast undnar rúll-
ur og þá sérstaklega að sofa með þær, of
heitar þurrkur og hárgreiðslur, sem
strengja á hárinu. Þá má nefna þéttar
loðhúfur eða prjónahúfur, of heit herbergi
með slæmri loftræstingu, sterka sói og
saltvantsböð og klór í sundlaugum.
Þetta er gott fyrir hárið:
Hárið er eins konar loftvog, þegar heils-
an er annars vegar. Gætið þess vegna
31