Heimilistíminn - 20.11.1975, Síða 5

Heimilistíminn - 20.11.1975, Síða 5
urskeið í munninum. Hann kom i heiminn 25. april 1874 á vetrarheimili fjölskyld- unnar i Bologna. Paðir hans, Giuseppo Marconi var vel stæður herragarðseigandi og móðirin, dóttir irsks óðalsbónda var af ætt auðugra viskýframleiðenda. Hún var aðlaðandi, bráðgreind kona, er studdi og hvatti son sinn við hinar ýmsu efnafræðilegu og eðlisfræðilegu tilraunir hans. Guglielmo fór til hennar, þegar hann var orðinn leiður á venjulegum skóla og bað um að verða fluttur yfir i tækniskóla. Hún kom þvi þannig fyrir, að hann fékk að nema eðlisfræði við háskólann i Bologna i stað þess að taka að sér stjórn herragarðsins. Þaðvar hún, sem ótal sinnum bað eigin- mann sinn um peninga til að koma á fót almennilegri tilraunastofu handa yngsta syni þeirra og þegar Guglielmo tókst að senda fyrstu þráðlausu sendinguna, deildi hún með honum fögnuðinum. Það var ekki Guglielmo Marconi, sem úppgötvaði rafeindabylgjurnar. Það voru Bretinn James Maxwell og Þjóðverjinn Heinrich Hertz. Þegar Hertz sannaði enn- fremur árið 1888, að rafeindabylgjur breiddustút eins og ljósbylgjur, datt Mar- coni i hug, aðnýta mætti þessar bylgjur til að flytja skeytamerki, þá jafnvel manns- röddina um loftið, án þess að nota linur og kapla. Það sem hvatti Guglielmo einkum, var Þýðingin, sem þráðlausar sendingar gætu baft fyrir siglingar, en hann sjálfur var áhugamaður um siglingar. Það yrði blátt áfram bylting, ef skip gætu náð sambandi við land og hvert annað, þegar þau lentu i vandræðum. Guglielmo var ekki visindamaður af guðs náð, en hann hafði frjótt imyndunar- afl og stórkostl. hæfileika til að tengja saman ýmsar uppgötvanir annarra og hagnýta þær. Frakkinn Edouard Branly hafði skömmu áður fundið upp tæki til að mæla rafeindasveiflur og Rússinn Alex- ander Popoff hafði smiðað fyrsta loftnet- •ð,sem bæði gat sent bylgjurnar og tekið á móti þeim. En engum hafði enn dottið i hug að nota bylgjurnar til einhvers. Þá kom þekking og hugmyndaflug Marconis W1 sögunnar og árangurinn varð þráðlaus skeyti. Uppfinning hans var einföld, spólur og •ykill, sem rauf strauminn og tengdi hann U1 skiptis, eftir þvi sem þrýst var á lykil- inn. Penninn á móttakaranum skrifaði siðan nákvæmlega þau merki sem send- nrinn gerði með lyklinum, punkta og strik eins og þau sem þekkt voru frá ritsfman- um. Til Englands Pyrsti frumstæði sendir Marconis dró nbeins fáeina metra. Um veturinn og vor- ’b vann hann að þvi að bæta tæki sin svo surnarið eftir gátu þau sent 2,5 kilómetra. t’ar með var Marconi reiðubúinn að sýna úmheiminum uppfinningu sina. Guglielmo Marconi var aðeins 21 árs, en gerði sér fyllilega grein fyrir, að uppfinning hans gat fært honum bæði frægð og auðævi. Sem góður föðurlands- vinur bauð hann itölsku stjórninni fyrst uppfinningu sina, en hún hafði ekki áhuga og stakk upp á þvi að uppfinningamaður- inn ungi freistaði gæfunnar i Englandi, mestu siglingaþjóð heims. Asamt móður sinni fór Guglielmo Mar- coni til London árið 1895, þar sem hann var kynntur fyrir Sir William Preece, yf- irverkfræðingur póststjórnarinnar, sem lofaði að vera honum innan handar við sýningar á uppfinnungunni. East Goodwin-vitaskipið við Ilover var fyrsta skipið, sem fékk loftskeytatæki. Skömmu sfðar slitnaði það upp i óveðri og það var tækjunum að þakka að því var bjargað. Biðtimann notaði Marconi með þvi að bæta tæki sin og tókst að koma sendi- fjarlægðinni upp i 12 kilómetra. t júni 1896 sótti hann um einkaleyfi á fyrsta þráð- lausa skeytakerfinu, sem notaði rafeinda- bylgjur. Sýningin i London tókst vel. Fjöldi skeyta var sendur milli aðalpóststöðvar- innar i St. Martin’s-le-Grand og móttöku- stöðvar á bökkum Thamesár. Skömmu siðar var önnur kynning fyrir breska her- inn á Salisbury Palin og loks fyrir breska flotann við Bristolsund. Hrifning var geysileg og þegar 1897 var Ritsimafélag Marconis staðreynd, með milljónir króna i hlutabréfum og 23 ára framkvæmda- stjóra, sem þegar var að verða heims- frægur. Sendifjarlægðin var nú komin upp i 29 kilómetra, og var það að þakka bættum loftnetum og fleira. Útgerðarfélög tóku að fá áhuga, sérstaklega eftir að vitastjórnin hafði sannað mikilvægi þráðlausa ritsim- ans. Ein af stöðvum Marconis hafði verið sett i vita við Dover og önnur i vitaskipið East Goodwin, sem lá 19 km frá strönd- inni. Skömmu eftir að stöðvunum hafði verið komið fyrir, sleit vitaskipið sig upp og rak i átt að sandhólunum hættulegu, sem það átti einmitt að vara önnur skip við. Neyðarkall var sent til vitans i Dover og náði þangað, öllum til undrunar, þrátt fyrir regn, hvassviðri, stórsjó og kola- myrkur. Þetta var töfrum likast. Björg- unarskip fór út og bjargaði vitaskipinu. Ekki löngu eftir þetta rakst gufuskipið R.F. Matthews á þetta sama vitaskip i dimmri þoku og aftur var gripið til þráð- lausa ritsimans. Björgunarbátar komu úr landi og björguðu áhöfninni. Þar með hafði uppfinningin bjargað fyrstu manns lifunum. Allir töluðu um þráðlausa rit- simann og stórkostlega möguleika hans. Guglielmo Marconi starfaði jafnt og þétt að þvi að endurbæta uppfinninguna. Draumur hans var að geta sent skeyti yf- ir Atlantshaf, þannig að skip, hvar sem þau væru stödd, gætu náð sambandi viö land, ef með þyrfti. Sifellt jókst sendi- styrkurinn. Fyrst var komið á sambandi yfir Ermarsund, milli Englands og Frakklands, siðan til Irlands i 300 km fjarlægð og 1899 var bandarfska Marconi-félagið stofnað, til að vera viðbú- ið, þegar fyrstu merkin bærust yfir At- lantshafið. Það félag varö siðar hið volduga RCA. Sá sögulegi atburður, er morse-merkin, send frá Poldhu á strönd Cornwall, náðust á Signal Hill i námunda við St. John’s á Nýfundnalandi átti sér stað 12. desembe rl901, fyrir aðeins 74 ár- um. Heimurinn hafði minnkað skyndi- lega. Allar fjarlægðir voru niður lagðar með nokkrum millistöðvum svo hver stór- borg, hvert skip, hver eyðimerkur leið- angur og frumskógakönnuður, sem hafði tækin, gat haft samband um allar jarðir á andartaki. Skiparadiófélag Marconis var stofnaö

x

Heimilistíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimilistíminn
https://timarit.is/publication/304

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.