Heimilistíminn - 20.11.1975, Blaðsíða 7

Heimilistíminn - 20.11.1975, Blaðsíða 7
án þess að hann hefði hugmynd um, að allt hafði komist upp. Allur heimurinn fylgdist spenntur með flótta morðingjans. Dew lögreglustj. frá Scotland Yard var þegar i stað sendur frá Englandi i hrað- skreiðara skipi en Montrose og þegar doktor Crippen og ungfrú Le Neve gengu i land i Kanada, beið hann þeirra við land- ganginn, ásamt kanadisku lögreglunni. Arið 1909 hyllti allur heimurinn Mar- coni, þegar hann fékk Nóbelsverðlaunin i eðlisfræði. Fjórum árum áður hafði hann kvænst Beatrice O’Brien, dóttur Inchi- quin lávarðar. Þau skildu árið 1924 eftir 19 ára hjónaband. Marconi i striði og friði 1 heimsstyrjöldinni fyrri, 1914-1918 framleiddi marconi-félagið i Englandi leitartæki, sem komið gátu upp um þýsk loftför, kafbáta og stöðu herskipa og til- kynnt brezka flotanum hreyfingar Þjóð- verja meðfram ströndum Jótlands. Afleiðingin varð Jótlandsorrustan, þar sem Þjóðverjar biðu afdrifarikan ósigur. Guglielmo Marconi hafði verið Ut- nefndur öldungadeildarþingmaður á ttalíu skömmu áður en styrjöldin braust Ut. Þegar Salandra ,,i nafni heilagra hagsmuna” lét ítaliu ganga i lið með bandamönnum 1915, bauð Marconi föð- urlandinu strax þjónustu sina. Hann varð yfirmaður italska ritsimakerfisins og til að gera óvinunum erfiðara að gripa send- Marconi hafði atltaf áhuga á siglingum. Hér cru þau Christina við siglingakeppni v'ð Cowcs i Knglandi. Frá fljótandi tilraunastöð sinni, Elettra, náði Marconi I fyrsta sinn loftskeytasambandi við Astraliu. Eléttra var þá úti fyrir Genúa. Þetta var i mars 1930. Þótt sambandið væri veikt, var það þó samband. Til hægri við Marconi er tryggur aðstoðarmaður hans, Landini. ingarnar, fann hann upp aðferð til að beina skeytunum i aðeins eina átt. Striðið, eins og öll strið, ýtti mjög undir allar tæknilegar framfarir. Það voru not fyrir allt, sem hægt var að framleiða á sviði loftskeyta, hvað sem það kostaði. Þegar striðinu lauk, tóku Marconi og menn hans að framleiða striðsuppfinning- arnar til að nota á friðartimum. Arangur- inn varð fyrsta samband milli jarðar og lofts til að nota fyrir flugiðnaðinn, sem þá var að fæðast. Útvarpssendingar með frægustu lista- konu þeirra tima, Nellie Melba, urðu svo vinsælar, að brezka póstþjónustan, sem réð öllum leyfum til Utvarps og loftskeyta, óttaðist að ótal Utvarpsstöðvar myndu skapa ringulreið i ljósvakanum yfir Eng- landi. Þess vegna eru sex stærstu fyrir- tæki á þessu sviði, þ.á.m. félög Marconis, kölluð á ráðstefnu, þar sem brezka Ut- varpið var stofnað, siðar BBC. Það voru fyrirtæki Marconis sem reistu nýju, stóru sendistöðvarnar og sáu mest- um hluta heimsins fyrir móttökustöðvum. Sjálfur tók hann ekki lengur mikinn þátt i starfseminni, sem nU var um allan heim. Hann hafði árið 1919 keypt sér stóra skemmtisnekkju, Elettra, sem hann gerði að fljótandi radiótilraunastofu, þar sem hann gat gert tilraunirmeð stuttbylgjuUt- varp sitt. Með árunum var Marconi orðin alþjóð- leg stofnun, eins konar töframaður, sem búist var við að kæmi fram með fleiri stórkostlegar uppfinningar. Það var lika eitt af félögum hans, sem árið 1936 gerði samning við brezku stjórnina um þróun brezka sjónvarpsins. Siðustu æviárum sinum eyddi Marconi að mestu um borð i Elettra, eða á ferða- lögum um heiminn. Arið 1927, þegar hann var 53 ára, kvæntist hann afar fagurri 27 ára gamalli italskri stUlku, Christinu Bezzi-Scali, dóttur eins af æðstu embætt- ismönnum Vatikansins. Dóttir þeirra, Maria Elettra Elena Anna, fæddist árið 1930. Það var auðkýfingurinn, hinn tignaði, heimsfrægi uppfinningamaður, vinur þjóðhöfðingja, sem nU sigldi um öll heimsins höf með 31 manns áhöfn á glæsi- legri snekkju sinni. Er hann lézt, snemma morguns 19. jUli 1937, breiddist fréttin með eldingarhraða um heiminn, einmitt með loftskeytum þeim, sem hann hafði sjálfur skapað. Faðir Utvarpsins, skapari nUtima fjölmiðiunar, var hylltur i ræðu og riti og aukaUtsendingum i Utvarpi um heim allan. En áhrifamesta minning- argjöröin, var þegar allar Utvarpsstöðvar heimsins þögnuðu samtimis. I tvær minútur var jafn hljótt i ljósvakanum og verið hafði fyrir daga Marconis. 7

x

Heimilistíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heimilistíminn
https://timarit.is/publication/304

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.