Heimilistíminn - 20.11.1975, Blaðsíða 12
roi
e*
& <\
&
O
6
ROGER Daltrey hefur um árabil verið
aðalsöngvarinn í The Who. Það er lika
sjálfsagt óhætt að segja, að hann sé
einn af hæfileikamestu rock-tónlistar-
mönnum i heimi. Hann hefur sungið
ótal vinsæl lög og ferðast um allan
heim með hljómsveitinni. Hann leikur
lika aðalhlutverkið i kvikmyndinni um
Tommy, sem hér hefur verið sýnd.
Myndin var gerð eftir pop-óperunni
með sama nafni, sem kom út á plötu
fyrir sex árum eða svo.
En Roger hafði aldrei hugsað sér að
gerast kvikmyndaleikari. Hann hafði
ótal sinnum staðið á sviði sem
rock-söngvari. En að leika! Nei, það
gat hann ekki hugsað sér. En Ken
Russell, sem er ábyrgðarmaður
myndarinnar, talaði um fyrir honum
og þessi frumraun Daltreys sem leik-
ara þykir hafa borið stórkostlegan
árangur. Hann er nú 29 ára.
— Ég hef enga reynslu af kvikmynd-
um, segir hann. — Þar er notuð allt
önnur tækni en Who notar á sviði. Ég
lagði hartað mér, þegar verið var að
taka myndina og það má enginn láta
sér detta i hug, að þetta hafi ekki verið
erfitt. Klukkustundir fóru i að pæla
gegnum handritið, sitja framan við
spegil og reyna að ná réttum svip-
brigðum og siðan komu myndavélarn-
ar. Ég veit núna.að þaðer þrældómur
að vera kvikmyndaleikari og það er
ekki að undra þótt leikarar séu slæmir
á taugunum. En manni liður ótrúlega
vel, þegar maður sér góðan árangur.
Það eitt veit ég, að verði mér boðin
fleiri hlutverk, ætla ég að segja já með
þökkum. Þetta er stórskemmtileg
vinna.