Heimilistíminn - 20.11.1975, Síða 13

Heimilistíminn - 20.11.1975, Síða 13
Hún sá 40 þúsund manns deyja Hún var 15 ára og hlakkaði til að koma til Martinique. En þegar skipið var að sigla inn, var eins og eyjan springi Eldgos lagði bæinn i rúst og allir íbúarnir fórust — nema einn Sarah Jane Williamson er 88 ára gömul. Hún heyrir svolitiö illa, en er annars vel ern og létt á fæti og heldur fullum sönsum. Minni hennar er óskert. — Það er of gott segir hún sjálf. — Ég hef upplifað það, sem ég vildi gefa mijcið til að geta gleymt, en get ekki. Mig dreymir ennþá um þetta. Það gerðist árið 1902, þegar ég var 15 ára. Sally, eins og vinir hennar kalla hana, átti skemmtilega barnæsku. Faðir hennar var stýrimaður, og af þvi móðir hennar var látin, fékk hún oft að sigla með föður sinum. Þegar hún var 15 ára, hafði hún þegar séð mikinn hluta heimsins. Þá var hún á ferðalagi i Karabiska hafinu, og næsta höfn var St. Pierre á eynni Martinique. Þar var hlýr morgunn, heið- skir himinn, og Sally stóð úti á þilfari og horfði á eyjuna nálgast. Allt i einu heyrði hún skipstjórann hrópa: — Fulla ferð afturábak! Aðeins andartaki siðar dundu ósköpin yfir. Þessi fagri maimorgunn breyttist i skelfilega, kolsvarta nótt. ~-Þetta gerðistalltsvo fljótt, segir Sally. — Ég vissi fyrst ekki hvað var á seyði, en skyndilega tók stjórinn undir skipinu að sjóða og lét svo illa, að ég hélt, að við •hyndum sökkva. Svo sá ég gegn um hiyrkrið hvar blárauð eldtunga skauzt UPP i loftið. Það tók að rigna glóandi hrauni og vikri. Eldfjallið Peleé hafði vaknað svona snögglega. Þetta var Mýsanlega skelfilegt. Sarah fær sér tebolla og hendur hennar skjálfa. Aðeins það að segja frá þessum harmleik, sem gerðist fyrir 73 árum, fær mjög á hana. En svo brosir hún, fremur dapurlega. — Það er skritið, en i miðri martröðinni gramdist mé að hafa hlakkað svo til að koma i land á Martinique. Það var uppstigningardagur, og skipstjórinn hafði sagt, að daginn eftir yrði hátiðisdagur á eynni. 1 tæpa klukkustund rigndi hraunmolum og sjórinn sauð, en það hætti jafn snögg- lega og það byrjaði. Sjórinn stilltist, og himinninn var ekki lengur svartur, heldur öskugrár. Pabbi fór með mig upp i brú, og þar stóðum við og horfðum á mökkinn lyftast upp af þvi, sem áður hafði verið bærinn St. Pierre. Var nokkur á lifi? Askew skipstjóri var fljótur að taka ákvörðun. Það yrði að fara i land. Ef til vill var hægt að veita einhverja aðstoð. — En,sagðihann. Ég vil ekkineyða neinn til að fara i land. Þeir sem vilja hjálpa, komi til min, en það ræður þvi hver og einn sjálfur. — Allir gáfu sig fram, segir Sarah. Ég Sarah Jane Williams er nú 88 ára gömul. 13

x

Heimilistíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimilistíminn
https://timarit.is/publication/304

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.