Heimilistíminn - 20.11.1975, Blaðsíða 17

Heimilistíminn - 20.11.1975, Blaðsíða 17
við. Hann hrynur liklega saman við að bera hana að rúminu. Marit flissaði. Ef til vill svolitið móður- sýkislega, en hún sá þetta fyrir sér: Lit- inn, grannan karlmann, sem bar þá ljós- hærðu inn i svefnherbergið, skjögrandi á fótunum og blásandi af mæði. — Hvað ertu að lesa? — Ekkert, svaraði Marit. — Ég er bara að fletta. Ég veit ekki um hvað hún er, greip hana bara i hillunni. Hann laut áfram, en hún hélt bókinni upp, þannig að hann sæi kápuna. — Ég get sagt þér, að þetta er Karin Boye, sagði hann. — Ein af þeim mörgu bókum, sem ég hef heldur ekki lesið. En ég hef heyrt hennar getið. Þetta eru ljóð, ekki satt? Hann settist i stólinn við hlið hennar, svo brakaði óþægilega i honum. — Ertu ný hérna? — t þinum augum já, gæti hún hafa sagt. En hún var i allt of miklu uppnámi til að detta það i hug. Hún var sér allt of meðvitandi um að hann sat i stólnum við hlið hennar.Henni fannst næstum hægt að taka á nærveru hans með höndunum og það var eins og ótal litlar nálar pikkuðu hana i handleggina. — Nei, sagði hún. — Nei, liklega ekki. — Þú ert ekki ný hérna. Ég geri eintómar vitleysur i dag. Veistu, hvað ég sagði i fyrsta tima? Ég talaði afturábak, sagði innblástur og út- sog i staðinn fyrir útblástur og innsog. Strákarnir skellihlógu, en ég vissi ekkert skilurðu. Hún hefði getað sagt: — Já, ég skil, að þú sérð mig, að þú situr hérna og hvilir stóru, ekki alveg hreinu höndina á þér á stólarminum hjá mér. Ég skil að þú talar við mig, en þó skil ég það ekki. — Ég tala oft afturábak, sagði hún og fann að hún roðnaði. — Alveg eins og pabbi, hló hann og sló höndinni á stólarminn. — Alveg sama tón- tegundin. Stórkostlegt! Þú hefðir átt að hitta pabba, ykkur hefði komið vel sam- an. Hann var kjarnakarl . Ég er ennþá ekki alveg kominn yfir, að hann er dáinn. Þú mátt trúa þvi, að hann var góður karl, sem þér hefði likað! — Ég trúi mér... ég á við, ég trúi þér sagði hún mjóróma og orðin ætluðu varla aðþora útmilli vara hennar. Bara, að þaö liði ekki yfir mig, hugsaði hún. — Þú hlýtur að vera ný, sagði hann. — Annars hefði ég séð þig. Hvað er annars klukkan? Æ, ég verð að fara. Getum við ekki talað saman seinna? Mér geðjast vel að þér, þú skilur um hvaðhlutirnir snúast. Svo var hann horfinn. Hún lagði hönd- ina varlega á stólarminn, þar sem hann hafði haldið sinni. Staðurinn var ennþá volgur. Ylurinn frá honum! Hún var yfir sig hamingjusöm. Fyrsti sigurinn var unninn. Hann hafði séð hana! Annar sigurinn var næstum unninn lika. Honum geðjaðist að henni, hún skildi það varla. Hann hafði sagt, að honum geðjaðist að henni.. Þetta var yndislega, stórkostlega dásamlegt! En hún hafði varla sagt orð. En þetta átti eftir að verða enn stór- kostlegra. Þegar hún kom út eftir siðasta tima, stóð hann þar. Andlitið varð að einu stóru brosi, þegar hann kom auga á hana. — Halló, sagði hann. — Ég stend hér og er að hugsa um....Hann hikaði og hló svo- litið i staðinn. — Húff, mér gengur vfst ekki sem best að koma fyrir mig orði, en þú hlýtur að vera ný hérna. Ég er búinn að hugsa um þig allan siðasta timann. Þú sagðir eitthvað, sem ég er búinn að gleyma, en sem....jæja, mig langaði til að tala meira við þig. Ekki horfa svona á mig. Ég verð svo óstyrkur, þegar einhver horfir á mig og segir ekkert. Ég er með bilinn hérna rétt hjá, hann er ljótur að ut- an, en það er púður I honum. Viltu ekki koma með i bilferð? Ef þig langar, það er að segja? Marit beit á vörina. — Skelfing er ég vitlaus, sagði hún. Hann leit mógaður á hana og þá rann upp fyrir henni, að hún hafði hugsað upp- hátt. — Þetta þarna með púðrið, flýtti hún sér að bæta við. — Ég er svo vitlaus, að ég er hrædd i bil. En hún meinti það auðvitað ekki. Gleð- in, eða þakklætið, sem hún fann til vegna þessarar klaufalegu tilraunar hans til að ná sambandi við hana, streymdi um hana alla... — Máttu ekki vera að þvi, kannske? spurði hann. — Eiginlega ekki, laug hún blákalt, — en það gerir ekkert til með smástund, bara stutta ferð. — Já, ég get ekki boðið upp á neitt fint, sagði hann afsakandi og strikaði á undan henni að bilastæðinu. — Aðrir hafa stereó- útbúnað og önnur stöðutákn.... Skelfing erég vitlaus, að hlaupa svona á eftir honum, sagði hún við sjálfa sig. Hvað á hann eiginlega við? Ætti ég að hafa meiri áhuga á einhverjum, sem ekur um i silfurgljáandi bil? En sambandið milli skynseminnar og hjartans, sem ólmaðist i brjósti hennar, var ekki lengur fyrir hendi. — Mér finnst satt að segja gaman að fara i ökuferðir með stúlkum, sem — já, sem hægt er að tala við. Sem.... Hann bandaði frá sér hendinni og hló. Svona eins og mér, hugsaði hún. Svolitið barnalegum, dálitið heimskum og óreyndum. — Sem eru manneskjulegar og komnar yfir diskótekaldurinn, sagði hann, þegar hann var seztur undir stýri. — Sem eru eins og þú, á ég við. Hún deplaði augunum og dró djúpt að sér andann, til að hann sæi ekki, ef hún færi að hlægja að vandræðasvipnum á andliti hans. Jafnframt fann hún til ein- hverrar viðkvæmni. Ekki i hans garð, heldur þeirra beggja. 1 garð einhverrar Maritar, sem var langt i burtu og vegna vináttu sem ennþá var bara angalitill. glitrandi depill. — Það verður að halda upp á þetta, sagði Skotinn og flctti upp á „kampavín” i orðabókinni. 4 Tárin i augum hennar tjáðu manni, að skinnið i krókódilstöskunni væri ekta. Lifið er eins og gáta. Lausnina er að finna á bakhliðinni. 4 — Mér liður eins og blindri manneskju i koidimmu herbergi, að leita að svörtum ketti, sem er . þar alls ekki. Mæðurnar vara dætur sinar við honum, en þær vilja fyrir HVERN MUN komast að ástæðunni. : 4 Verið ekki hrædd við að spyrja heimskulcgra spurninga. Maður sleppur betur frá þeim, en heimsku- legum mistökum. 4 Ilunda sem eru að éta og karlmcnn sem eru að sofa er skynsamlegast að sjá i friði. ér Þau dáðu hvort annað, en hvorugt gat skilið, hvernig hinu gat tekizt að verða prófessor. Brandari leysir oft vandasömustu mál betur cn alvara og skarpskyggni. 'ét Llfið er það sem er innan i manni, þegar maður er einn. Venjuleg, heilbrigð skynscmi er alls ekki svo venjuleg. I/

x

Heimilistíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heimilistíminn
https://timarit.is/publication/304

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.