NT

Ulloq
Saqqummersitaq pingaarneq:

NT - 27.04.1984, Qupperneq 18

NT - 27.04.1984, Qupperneq 18
Föstudagur 27. apríl 1984 1 8 Ferðist til Norðurlandanna Átak til eflingar ferðalaga á milli Norðurlandanna ■ Ferðamálaráö Norður- landanna eru nú aö hefja átak í þá átt að auka ferðalög innan Norðurlandanna, þ.e.a.s. á milli þeirra. í þessu skyni hefur verið gefmn út bæklingur sem verður dreift í 400.000 ein- tökum á Norðurlöndunum. Hér á íslandi kemur út danska útgáfan af bæklingnum, með aukasíðum á íslensku sem kynna ferðir íslenskra ferða- skrifstofa til Norðurlandanna. í könnun sem efnt var til á Norðurlöndunum í tengslum við þetta átak kom í ljós að ísland var efst á lista sem vinsælasti áfangastaður Norðulandabúa. Af um 30.000 þátttakendum kusu um 7.000 Island, 6.300 Danmörku, 5.500 Noreg, 5.100 Svíþjóð og um 5.000 Finnland. í fyrrnefndum bæklingi eru miklar upplýsingar um fjölda ferða hinna ýmsu ferðaskrif- stofa um Norðurlöndin. Til að livetja ferðaskrifstofur til að senda inn ferðir í bæklinginn var ákveðið að auðkenna sér- lega forvitnilegar og fróðar ferðir í bæklingnum. Nokkrar ferðir til íslands fengu gæða- stimpil, í norsku útgáfu bækl- ingsins þrjár ferðir, þar af tvær ferðir Samvinnuferða og ein ferð sem Flugleiðir bjóða í Noregi í samvinnu við íshesta og Úlfar Jacobsen. í finnska bæklingnum er sérstaklega bent á tvær ferðir fyrir ellilíf- eyrisþega, í sænska bæklingn- um er mælt með helgarferðum Flugleiða vor og haust, og í Danmörku hlaut 5-daga ferð Ferðaskrifstofu Ríkisins sér- staka viðurkenningu. Bæklingurinn mun innan skamms fást afhentur á íslen- skum ferðaskrifstofum og hjá Flugleiðum. Málþing - ráðstefnur Menntun, hagsæld og nýjar hugmyndir í atvinnulífínu ■ Bandalag háskólamanna gengst fyrir ráðstefnu á laugardag í Borgartúni 6 og hefst hún kl. 10.00. Yfirskrift hennar er: „Menntun, og hagsæld, nýjar hugmyndir í atvinnulífinu. Fjall- að verður um nýjar hugmyndir í sjávarútvegi, landbúnaði, iðnaði, verslun og markaðsmálum, verktastarfsemi og bankastarf- semi. Meðal framsögumanna verða Björn Dagbjartsson for- stjóri Rannsóknarstofnunar fisk- iðnaðarins, Ingjaldur Hannibals- son forstjóri Iðntæknistofnunar og Þráinn Þorvaldsson forstjóri Hildu h.f. Að endingu verða pallborðsumræður undir stjórn Guðmundar Einarsson verkfræð- ings og taka framsögumenn þátt ásamt forustumönnum Alþýðu- sambands íslands og Vinnuveit- endasambands íslands. Ráð- stefnan er öllum opin. Siðfræði geðrænnar meðferðar ■ Félag sálfræðinema við Há- skóla íslands heldur málþing um siðfræði geðrænnar meðferðar í stofu 301 í Árnagarði á morgun og hefst málþingið kl. 14.00. Frummælendur verða Páll Skúla- son prófessor í heimsspeki, Arn- ór Hannibalsson formaður Sál- fræðingafélags íslands, Ingólfur Sveinsson geðlæknir og Jónas Gústafsson sálfræðingur. Á eftir verða pallborðsumræður undir stjórn Onnu Valdimardóttur sál- fræðings. Öllum er heimill að- gangur. ■ Lúdó og Stefán. Upp á svið eftir 20 ára hlé. Ferðir — útivist ■ Kl. 10.30 á sunnudag verður lagt af stað í ferð Útivistar um Svínaskarð, gömlu þjóðleiðina til Vesturlands. Verð kr. 250. Útivist efnir einnig til ferðar á slóðir Eyjafellsmóra á sunnudag kl. 13.00. Létt ganga fyrir alla í nágrenni Irafells og Svínadals í Kjós. Verð kr. 250, frítt fyrir börn í fylgd með fullorðnum. Brottferð verður frá Bensínsölu BSI. Á 1. maí verða tvær ferðir á vegum Útivistar. Kl. 10.30 verður lagt upp í ferð til Þorlákshafnar og um Selvog og gengið um strand- lengjuna. Ferðin kostar 300 krónur. Kl. 13.00 sama dagverður farið á slóðir þjóðsagnapersónunn- ar sr. Eiríks í Vogsósum, Eiríks- varða verður heimsótt, gengið í hella og komið að Strandarkirkju. Lúdó og Stefán aftur á sviðið ■ Lúdó og Stefán. Flestir sem komnir eru á fertugsaldur- inn og þar yfir muna eftir nafninu og lögunum, þeir lang- minnugustu muna jafnvel eftir nafninu Plútó, en svo hét flokkurinn í upphafi. En hafi menn haldið að þessi hljóm- sveit heyrði nú algerlega sóg- unni tU, þá vaða þeir í villu, Lúdó og Stefán troða upp í Þórscafé í kvöld eftir 20 ára hlé. Nöfn hljómsveitarmeðlima vekja gamlar endurminningar, Berti Möller, söngur, og gítar, Hans Krogh trommur, Elfar Berg hljómborð, Arthur Moon bassi, Hans Jensen tenórsax, Þorleifur Gíslason tenórsax og Stefán Jónsson söngur. Þessir menn mynduðu kjarnann í sveitinni fyrir 20 árum. Lúdó spilaði upphaflega í Vetrargarðinum og seinna í Storkklúbbnum, sem seinna fékk nafnið Glaumbær. Þaðan lá leiðin í Þórscafé, þar sem Lúdó tók við, þegar hinn frægi KK sextett hætti. Æskan á þeim árum virðist hafa verið haldin mikilli skemmtanafíkn þá ekki síður en nú því Þórs- cáfé var opið alla daga vikunn- ar og alltaf var fullt út úr dyrum. Á laugardagskvöldum voru gömlu dansarnir í Þórs- café og þá héldu Lúdó og Stefán jafnan austur fyrir fjall og léku á sveitaböllum, sem þá voru á hátindi vinsælda. Stemmningin frá þessum árum verður sem sagt rifjuð upp í Þórscafé í kvöld og er ekki að efa að gamlir aðdáend- ur fylla staðinn eins og forðum. Kvikmyndasýningar Kvikmyndaklúbbur- inn Norðurliós ■ Kvikmyndaklúbburinn NORÐURLJÓS sýnir á sunnud. 29. apríi kl. 17:00 dönsku kvikmyndina TÆNK PÁ ET TAL gerð eftir sögu danska rithöfundarins Anders Bodelsens, og fjallar um hæg- látan bankagjaldkera, sem kemst í feitt þegar bankaræn- ingi birtist í gervi jólasveins einn kaldan desemberdag. Leikstjóri er Palle Kjærulff- Ferðafélag íslands ■ Á sunnudaginn verða tvær ferðir á vegum Ferðafélagsins, kl. 10.30 verður farið að Garðskaga- vita, gengið með ströndinni til Sandgerðis, ekið þaðan Stafnnesi og gengið um Básenda. Kl. Í3.00 sama verður ekið að Þjófaskarði við Melafjall og gengið þaðan á Tindastaðafjall sem er 700 metra hátt, norðvestan í Esjunni. Verð er krónur 200. Lagt verður af stað frá Umferðarmiðstöðinni austanmegin og farmiðar eru af- greiddir við bíl. Börn í fylgd full- orðinna fá frítt. Schmidt og í aðalhlutverkum eru Henning Moritzen og Bibi Andersson. ívan grimmi II. í MÍR-salnum ■ Fyrri hluti hinnar frægu kvikmyndar S. Eisensteins „ívan grimmi“ var sýndur í MÍR-salnum, Lindargötu 48, á annan í páskum. Sfðari hluti myndarinnar verður sýndur á sama stað nk. sunnudag, 29. apríl, kl. 16. Aðgangur er ókeypis og öllum heimill. Miðvikudagur 2. maí 7.00 Veðurfregnir. Fréttir. Bæn Á virkum degi. 7.25 Leiktimi 8.00 Fréttir. 8.15 Veöurfregnir. Morgunorð - Anna Hilmarsdóttir talar 9.00 Fréttir 9.05 Morgunstund barnanna: „Hnífaparadansinn" eftir Jón frá Pálmholti Höfundur les (5) 9.20 Leikfimi 9.30 Tiikynningar. Tón- - leikar. 9.45 Þingfréttir. 10.00 Fréttir. 10.10 Veðurfregnir. Tón- leikar. 10.45 íslenskir einsöngvarar og kór- ar syngja 11.10 Tónsmíðar i hjáverkum - I. þáttur Guðrún Guðlaugsdóttir ræðir við Gunnar Guðmundsson og leikin eru lög eftir hann. 12.00 Dagskrá. Tónleikar. Tilkynning- ar. 12.20 Fréttir. 12.45 Veðurfregnir. Til- kynningar. Tónleikar. 13.30 Léttlög frá 1955-1960 14.00 Ferðaminningar Sveinbjarnar Egilssonar; seinni hluti Þorsteinn Hannesson les (15) 14.30 Miðdegistónleikar Taru Valj- akka syngur lög eftir Jean Sibelius. Ralf Gothóni leikur með á pianó. 14.45 Popphólfið - Jón Gustafsson. 15.30 Tilkynningar. Tónleikar. 16.00 Fréttir. Dagskrá. 16.15 Veður- fregnir. 16.20 Siðdegistónleikar Filadelfiu- hljómsveitinleikur Sinfóníu nr. 2 i e-moll eftir Sergej Rakhmaninoff; Eugene Ormandy stj. 17.10 Síðdegisvakan 18.00 Snerting Þáttur Arnþórs og Gísla Helgasona. 18.10 Tónleikar. Tilkynningar. 18.45 Veðurfregnir. Dagskrá kvöldsins 19.00 Kvöldfréttir. Tilkynningar. 19.50 Við stokkinn Stjórnendur: Mar- grét Ólafsdóttir og Jórunn Sigurðar- dóttir 20.00 Barnalög 20.20 Útvarpssaga barnanna: „Vesl- ings Krummi" eftir Thöger Birke- land Þýðandi: Skúli Jensson. Einar M. Guðmundsson les (7). 20.40 Kvöldvaka a. Kristin fræði forn Stefán Karlsson handritafræðingur flettir blöðum kirkjulegra bókmennta miðalda. b. Kór Söngskólans i Reykjavik syngur Stjórnandi: Garðar Cortes. c. Um kaffi Hall- gerður Gísladóttir fjallar um kaffi og kaffidrykkju Islendinga. 21.10 Hugo Wolf - 5. og síðasti þáttur: „ítalska Ijóðabókin" Umsjón: Sigurður Þór Guðjónsson. Lesari: Guðrún Svava Svavarsdótt- ir. 21.40 Útvarpssagan: „Þúsund og ein nótt“ Steinunn Jóhannesdóttir les valdar sögur úr safninu i þýðingu Steingrims Thorsteinssonar (5). 22.15 Veðurfregnir. Fréttir. Dagskrá morgundagsins. Orð kvöldsins 22.35 Við Þáttur um fjölskyldumál. Umsjón: Helga Ágústsdóttir. 23.15 Tónlist eftir Pál ísólfsson a Ragnar Björnsson leikur á orgel Dómkirkjunnar i Reykjavík „Inn- gang og passacagliu'' i f-moll. b. Sinfóníuhljómsveit Islands leikur „Lýríska svítu"; Páll P. Pálsson stj. 23.45 Fréttir. Dagskrárlok Fimmtudagur 3. maí 7.00 Veðurfregnir. Fréttir. Bæn. Á virkum degi. 7.25 Leikfimi 8.00 Fréttir. 8.15 Veðurfregnir Morgunorð - Magnús Guðjónsson talar. 9.00 Fréttir 9.05 Morgunstund barnanna: „Hnifaparadansinn" eftir Jón frá Pálmholti Höfundur les (6) 9.20 Leikfimi 9.30 Tilkynningar. Tón- leikar. 9.45 Þingfréttir. 10.00 Fréttir. 10.10 Veðurfregnir. For- ustugr. dagbl. (útdr.). Tónleikar. 11.00 „Eg man þá tið“ Lög frá liðnum árum. Umsjón: Hermann Ragnar Stefánsson. 11.30 Blandað geði við Borgfirðinga Umsjón: Bragi Þórðarson. 12.00 Dagskrá. Tónleikar. Tilkynning- ar. 12.20 Fréttir. 12.45 Veðurfregnir. Til- kynningar. Tónleikar. 14.00 Ferðaminningar Sveinbjarnar Egilssonar; seinni hluti Þorsteinn Hannesson les (16). 14.30 Á frívaktinni Sigrún Sigurðar- dóttir kynnir óskalög sjómanna. 15.30 Tilkynningar. Tónleikar. 16.00 Fréttir. Dagskrá. 16.15 Veður- fregnir. 16.20 Síðdegistónleikar Barry Tuck- well og Vladimir Ashkenazy leika Adagio og allegro i As-dúr fyrir horn og píanó op. 70 eftir Robert Schu- mann / Yehudi Menuhin, Robert Masters, Ernst Wallfisch, Cecil Aro- novitsj, Maurice Gendron og Derek Simpson leika Sextett nr. 2 í G-dúr op. 36 eftir Johannes Brahms. 17.10 Siödegisvakan 18.00 Af stað með Tryggva Ja- kobssyni 18.10 Tónleikar. Tilkynningar 18.45 Veðurfregnir. Dagskrá kvöldsins 19.00 Kvöldfréttir. Tilkynningar. Dag- iegt mál. Siguröur Jónsson talar. 19.50 Við stokkinn Stjórnendur: Mar- grét Ólafsdóttir og Jórunn Sigurðar- dóttir. 20.00 Halló krakkarl Stjórnandi: Gunnvör Braga Aðstoðarmaður: Irpa Sjöfn Gestsdóttir 20.30 Frá tónleikum Sinfónfuhljóm- sveitar jslands f Háskóiabfói; fyrri hluti Stjórnandi: Jean-Pierre Jacquillat. Einleikari Unnur Svein- bjarnardóttir. a. Svíta nr. 5 eftir Johann Sebastian Bach. b. Konsert fyrir lágfiðlu og hljómsveit eftir Áskel Másson. (Frumflutningur). - Kynnir: Sigurður Einarsson 21.20 Samtal náttúrunnar og íslend- ings Halldór Þorsteinsson segir frá ítalska Ijóðskáldinu Giacomo Leo- pardi og les þýðingu sína á þætti eftir hann i óbundnu máli. Lesari ásamt Halldóri: Andrea Oddsteins- dóttir 21.50 „Kiss me Kate“ eftir Cole Port- er Kathryn Grayson, Howard Keel o.fl. syngja lög úr söngleiknum með kór og hljómsvejt; André Previn stj. 22.15 Veðurfregnir. Fréttir. Dagskrá morgundagsins. Orð kvöldsins 22.35 Reikistjarnan Marz Gerður Steinþórsdóttir les erindi eftir Stein- þór Sigurðsson stjörnufræðing. 23.05 Síðkvöld með Gylfa Baldurs- syni 23.50 Fréttir. Dagskrárlok. Miðvikudagur 2. maí 10.00-12.00 Morgunþáttur Stjórnend- ur: Páll Þorsteinsson, Ásgeir Tóm- asson og Jón Ólafsson. 14.00-16.00 Allrahanda Stjórnandi: Ásta Ragnheiður Jóhannesdóttir. 16.00-17.00 Rythma Blús Stjórnandi: Jónatan Garðarsson. 17.00-18.00 Konur í rokkmúsik Stjórnandi: Andrea Jónsdóttir. Fimmtudagur 3. maí 10.00-12.00 Morgunþáttur Stjórnend- ur: Páll Þorsteinsson, Ásgeir Tóm- asson og Jón Ólafsson. 14.00-16.00 Eftir tvö Stjómendur: Jón Axel Ólafsson og Pétur Steinn Guðmundsson. 16.00-17.00 Rokkrásin Stjórnendur: Snorri Skúlason og Skúli Helgason. 17.00-18.00 Einu sinni áður var Stjórnandi: Bertram Möller. Föstudagur 4. maí 10.00-12.00 MorgunþátturStjórnend- ur: Páll Þorsteinsson, Ásgeir Tóm- asson og Jón Ólafsson. 14.00-16.00 Pósthólfið Stjórnendur: Hróbjartur Jónatansson og Valdís Gunnarsdóttir. 16.00-17.00 Bylgjur Stjórnandi: Ás- mundur Jónsson. 17.00-18.00 í föstudagsskapi Stjórn- andi: Helgi Már Barðason. 23.15-03.00 Næturvakt á Rás 2 Stjórnandi: Ólafur Þórðarson. Rásir 1 og 2 samtengdar með veðurfrétt- um kl. 01.00 og heyrist þá í Rás 2 um allt land. Laugardagur 5. maí 24.00-00.50 Listapopp (endurtekinn þáttur frá Rás 1) Stjórnandi: Gunn- ar Salvarsson. 00.50-03.00 Á næturvaktinni Stjórn- andi: Kristin Björg Þorsteinsdóttir. Rásir 1 og 2 samtengdar kl. 24.00 og heyrist þá í Rás 2 um allt land. sjonvarp Miðvikudagur 2. maí 19.20 Fólk á förnum vegi. Endur- sýning 23. Matseld Enskunám- skeið i 26 þáttum. 19.23 Söguhornið. Sagan af Sólfaxa eftir Ármann Kr. Einarsson, höf- undur les. Umsjónarmaður Hrafn- hildur Hreinsdóttir 19.45 Fréttaágrip á táknmáli 20.00 Fréttir og veður 20.30 Auglýsingar og dagskrá 20.40 Synir og elskhugar. Sjötti þáttur. Framhaldsmyndaflokkur í sjö þáttum frá breska sjónvarpinu, sem gerður er eftir samnefndri sögu eftir D.H. Lawrence. Þýðandi Vetur- liði Guðnason. 21.45 Úr safni Sjónvarpsins. Sýndir veröa tveir þættir úr myndaflokknum „Við Djúp" sem gerður var sumarið 1971. Fjallað er m.a. um samgöngur við ísafjarðardjúp og komið við á nokkrum útgerðarstöðum. Umsjón- armaður Ólafur Ragnarsson. 22.50 Fréttir i dagskrárlok Föstudagur 4. maí 19.35 Tónlistarskólinn bresk teikni- mynd. 19.45 Fréttir á táknmáli 20.00 Fréttir og veður 20.35 Auglýsingar og dagskrá 20.45 Á döfinni Umsjónarmaður Karl Sigtryggsson. Kynnir Birna Hrólfs- dóttir. 20.55 Dire Straits Stuttur dægurlaga- þáttur með hljómsveitinni „Dire Straits" sem leikur tvö lög. 21.15 Paradís samkvæmt tilskipun Þýsk heimildamynd frá Norður- Kóreu sem lýsir landi og þjóð og þá skki sist þjóðskipulaginu en það er reist á kennisetningum kommúnis- mans. Þýðandi Veturliði Guðnason. Þulur Bogi Amar Finnbogason. 22.00 Besti maðurinn (The Best Man) Bandarisk bíómynd frá 1964. Leikstjóri Franklin Schaffner. Aðal- hlutverk: Henry Fonda, Cliff Roberf- son, LeeTracy, Shelley Berman og Mahalia Jachson. Tveir stjórnmálamenn keppa um útnefningu til framboðs i forseta- kosningum í Bandaríkjunum. Stuðningur rikjandi forseta er þeim mikið keppikefli og grípur annar frambjóðandinn til örþrifaráða til að öðlast hann. Þýðandi Guðbrandur Gíslason. 23.40Fréttir í dagskrárlok

x

NT

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: NT
https://timarit.is/publication/305

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.