NT - 18.05.1984, Blaðsíða 14
Föstudagur 18. maí 1984 14
■ Klæðir býkúpuhárgreiðsl-
an mín mig ekki vel, gæti þessi
brosandi ungmey verið að
spyrja nærstadda.
. <f . t-i'-
■ Flugurnar drífur að
ekki við að hrinda henni líka í
framkvæmd.
létu m.a. stoppa upp í eyru sín
og nasir vaxi, svo að flugurnar
ættu ekki greiða leið inn í vit
þeirra. Síðan príluðu þær upp
í píramíta, þrjár neðst, tvær á
öxlum þei<ra og ein efst. Svo
hófst biðin
B Það virðast lítil takmörk
vera á þeim uppátækjum, sem
fólk grípur til, til að komast í
Heimsmetabók Guinness.
Reyndar ætti að vera nóg að
láta sér detta sum vitleysan í
hug til að komast í bókina, það
ætti að vera óþarfi að fram-
kvæma hana iíka! En stúlkurn-
ar <>, neinendur við Kaliforníu
háskóla, létu sér ekki nægja
hugmyndina eina, þær hikuðu
Fyrst létu þær smyrja sig
með kemisku efni, sem að ilmi
til líkist því, sem býflugna-
drottningin gefur frá sér og
laðar að sér skara suðandi - og
í sumuni tilfellum stingandi -
býflugna, sem standa í þeirri
meiningu, að nýtt býflugnabú
sé í uppsiglingu. Stúlkurnar
Suð heyrðist úr fjarska. Það
færðist nær og varð sífellt há-
værara. Síðan varð allt hljótt á
ný. Þarna hafði framvörður
verið í njósnaferð og ekki leið
á löngu þar til hann hafði náð
sambandi við félaga sína og
tilkynnt þeim, að öllu væri
óhætt. Innan skamms stefndi
stór flugnasveimur í átt að
stúlkunum og loftið fylltist af
flugnasuði. Flugurnar settust
á líkama stúlknanna ein af
annarri og áður en við var litið
voru þær þaktar býflugum.
■ Ein stúlka kreistir aftur augun, þegar flugurnar leggja
hana undir sig.
„Um það leyti fóru að renna
á mig tvær grímur,“ segir ein
stúlknanna. „Þegar fyrstu flug-
urnar setjast á mann, fer
maður að hugsa sem svo: Ham-
ingjan sannasta, af hverju asn-
aðist ég eiginlega út í þetta?
Fyrstu flugurnar kitla nefni-
lega, en þegar þeim fjölgar,
fær maður hálfgerða gæsahúð.
Það er eiginlega eins og að
vera í sturtu!“
Jafnskyndilega og flugurnar
höfðu birst, flugu þær á brott,
en afrekið var unnið. Nú bíða
stúlkurnar bara spenntar eftir
því að sjá nafnið sitt á prenti í
hinni eftirsóknarverðu heims-
metabók. Nema þ\ í aðeins svo
slysalega vilji til, að einhverj-
um öðrum hafi áður hug-
kvæmst að mynda mannlegan
býflugnapíramíta. Það yrði nú
meira áfallið!
■ Hinn hugumstóri píramíti
bíður þess sem koma skal
1 ':Æ 1 i I m
£ i |
^ 'Íwí ,« B v. ;am
1 í* 1 B M
té, \ *■3
F • ■-■&$<
1 ■ Ér* 1 J
;MjSS , WjSE.;
li ShÍ flHv > Wm Wm * 9m .■:*!
Mw Hs JL i
||if 'flgBUm.. MjmB',.-.-..... .
v UH