NT - 18.05.1984, Blaðsíða 28
LÚRIR ÞÚ Á FRÉTT?
HRINGDU ÞÁ Í SlMA 0-65-38
Vid tökum við ábendingum um fréttír allan sólaitiriraginn.
Greiddar verða 10OO krónur fyrir hverja áibendingu sem leiðir
til ffréttar í blaðinu og 10.000 krónur ffyrir ábendingu sem leiðir
til bitastaeðustu ffráttar mánaðaríns. Fullrar nafnieyndar er gætt
Einstæð móðir á Eiðsgrandanum sem gleymdi að slökkva á útvarpinu:
Kærir lögregíuna fyrir að
brjótast inn í íbúð sína!
■ Fjórir lögregluþjónar brut-
ust inn í íbúð einstæðrar móður
á Öldugranda 3 í Reykjavík á
laugardagskvöldið fyrir hálfum
mánuði. Erindi lögreglumann-
anna inn í íbúðina var að
slökkva á útvarpinu, sem kom-
an hafði skilið eftir í gangi
meðan hún skrapp frá. Lög-
regluþjónarnir munu ekki hafa
aflað sér heimildar dómara og
hefur konan nú kært athæfí
þeirra til ríkissaksóknara.
NT hafði tal af Ingibjörgu
Hafberg, en svo heitir konan.
Sagðist hún hafa skroppið út
um fimmleytið þennan laugar-
dag og skilið útvarpið eftir í
gangi.
„Af ýmsum ástæðum dvaldist
mér lengur en ætlunin var í
upphafi“ sagði hún. „M.a. fór-
um við sonur minn niður að
höfn og skoðuðum alla bátanna,
og þegar við vorum búin að því
þurftum við náttúrlega að
skreppa aðeins út á Seltjarnar-
nes og sjá vitann, þannig að við
vorum ekki komin heim fyrr en
upp úr hálf ellefu.“
Ingibjörg sagðist strax hafa
tekið eftir því að einhver hafði
verið inni í íbúðinni. Útvarpið
var þagnað og hafði verið tekið
úr sambandi og ljóslaust var í
stofunni. Ingibjörg hringdi fyrst
í móður sína sem brá óðar við
og kom á staðinn, dóttur sinni
til halds og trausts.
Þegar hringt var til lögregl-
unnar til að kæra innbrotið kom
í ljós að lögreglan hafði sjálf
verið þarna að verki.
Nágrannar Ingibjargar höfðu ■ Ingibjörg Hafberg með son sinn, Rúnar Logi. Við hlið þeirra er útvarpstækið sem málið snerist um og ofan á því liggur hnífurinn.
NT-mynd: Ari
hringt til lögreglunnar og kvart-
að undan hávaða. Þegar enginn
reyndist vera heima í íbúðinni
príluðu lögreglumennirnir upp
á svalir og skrúfuðu eldhús-
gluggann af hjörum.
„En svo kyrfilega höfðu þeir
slökkt á útvarpinu", sagði Ingi-
björg, „að það hefur ekki farið
í gang síðan. Ég hef heldur ekki
fengið neina skýringu á því
hvað einn borðhnífurinn minn
var að gera við hliðina á tækinu.
Þegar ég spurði lögregluþjón-
ana um það, fékk ég mjög loðin
og óljós svor um að þeir hefðu
þurft að „skrúfa" eitthvað.“
Ingibjörg sagði að lögeglu-
mennirnir hefðu komið aftur
eftir að hún var komin heim og
reynt lengi en árangurslaust að
kveikja á útvarpinu sem þeir
höfðu slökkt á skömmu fyrr.
Ingibjörg sagðist hafa beðið
lögregluna að sýna sér skriflega
heimild til að fara inn í íbúðina,
en án árangurs. Hins vegar hafi
hún fengið afrit af lögreglu-
skýrslu um málið og megi reynd-
ar lesa ut úr henni að engin
heimild hafi verið fyrir hendi.
„Ég get bara ekki trúað því
að lögreglan hafi leyfi til að
brjótast svona inn í hús hjá fólki
að eigin geðþótta. Þar að auki
gátu þeir ekki einu sinni læst
íbúðinni á eftir sér þegar þeir
fóru, heldur skildu þeir svala-
dyrnar eftir opnar, þannig að
hver sem er hefði getað gengið
þar út og inn. Mér finnst ekki
hægt aðláta þetta viðgangast.
Pess vegna hef ég kært þá“,
segir Ingibjörg Hafberg að
lokum.
Neðanjarðarstjórnstöð
á Keflavíkurflugvelli?
sem stæðist sjö daga gjöreyðingarstríð
■ í umræðum um utan-
ríkismál á Alþingi í gær
fullyrti Svavar Gestsson að
hjá bandarískum stjórn-
um að staðsetja neðan-
jarðarstjórnstöð á Kefla-
víkurflugvelli er staðist
gæti gjöreyðingarstríð í 7
daga. Þá væru áform
um að byggja níu sprengju-
held flugskýli, auka olíu-
birgðir hersins og byggja
nýja radarstöðvar í tveim-
ur eða þremur lands-
hlutum.
Steingrímur Hermanns-
son, forsætisráðherra
sagði að engar óskir hefðu
borist inn á borð ríkis-
stjórnarinnar um aukið
umfang herstöðvarinnar
og vísaði hann því á bug
að um aukin umsvif varn-
arliðsins væri að ræða.
Steingrímur tók fram að
rætt hefði verið um radar-
stöðvar fyrir norðan og
vestan, en engin formleg
ósk hefði borist um það
frá Bandaríkjastjórn.
Mikilvægt væri að íslenskir
aðilar rækju þessar stöðv-
ar ef af yrði. Þá gætu þær
aukið mjög öryggi flug-
samgangna okkar.
Utanríkisráðherra hóf
umræðuna með sinni ár-
legu skýrslu um utanrík-
ismál. Fjölmargir þing-
menn úr öllum flokkum
tóku þátt í umræðunni.
Fulltrúum í
útgerðarráði
BUR fækkað
úr sjö í fimm
- minnihlutaflokkarnir á móti
■ í gærkvöldi staðfesti borgar- fylgjastmeðmálefnumBÚRog
stjórn fyrri samþykkt borgar- hafa áhrif á þau.
ráðs um að fulltrúum í útgerð-
arráði BÚR yrði fækkað út 7 í Tillagan er upphaflega komin
5. Minnihlutafulltrúarnir voru frá lögfræði og stjórnsýsludeild
á móti þessari nýju skipa, töldu borgarinnar sem vinnur nú að
að með henni væri dregið úr endurskoðun á stjórnkerfi
möguleika rninni flokka til að hennar.